Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 21:04 UEFA Champions League - Bayern Munich vs FK Bodo/Glimt epa13229753 Jamal Musiala of Bayern Munich (C, partially seen) celebrates with teammates after scoring the 1-0 goal during the UEFA Champions League phase match between FC Bayern Munich and FK Bodo/Glimt, in Munich, Germany, 10 September 2026. EPA/ANNA SZILAGYI Fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu lauk í kvöld með fjórum leikjum þar sem gekk á ýmsu.
Norðmennirnir í Bodö/Glimt sóttu Bayern Munchen heim á Allianz Arena. Þeir stóðust vel prófið gegn Bæjurum framan af leik og staðan var markalaus í hléi. Heimamenn virðast hafa farið vel yfir málin í hléi og voru töluvert skarpari í síðari hálfleik. Aðeins 90 sekúndur voru liðnar af hálfleiknum þegar Jamal Musiala kom Bæjurum yfir og Harry Kane skoraði annað markið tæpu korteri síðan. Alphonso Davies skoraði þriðja markið með góðu skoti þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir og Michael Olise skoraði með stórglæsilegu langskoti á 83. mínútu. Fimm mínútum síðar fékk Odin Lurås Bjørtuft að líta rautt spjald í liði Bodö og gegn tíi leikmönnum skoraði Olise öðru sinni með flottu skoti úr teignum til að innsigla 5-0 stórsigur Bæjara á þeim norsku. Enn skrifar Fabregas söguna Como, stýrt af Cesc Fabregas, var að spila fyrsta leik liðsins í Meistaradeildinni í sögu félagsins er RB Leipzig kom í heimsókn við Como-vatn. Heimamenn voru með öll völd og mörk frá Martin Baturina og Anastasios Douvikas veittu liðinu 2-0 forystu í hléi. Assane Diao skoraði þriðja markið á 54 mínútu og skömmu síðar klúðraði liðið algjöru dauðafæri fyrir opnu marki. Leipzig geistist upp í sókn og 19 ára gamli kantmaðurinn Andrija Maksimović minnkaði muninn. Leipzig var þó aldrei líklegt til að vinna sig inn í leikinn og í lokin setti Máximo Perrone fjórða mark Como og 4-1 úrslit leiksins. Ótrúleg dramatík í Prag Í Tékklandi tók Slavia Prag á móti Lens í Tékklandi. Heimamenn voru sterkari aðilinn gegn þeim frönsku en urðu fyrir áfalli snemma í síðari hálfleik þegar Mikulás Konečný fékk að líta rautt spjald. Slóveninn Danijel Šturm skoraði strax í næstu sókn fyrir tíu Slaviu-menn og þeir komnir verðskuldað yfir. Senegalinn Abdallah Sima, fyrrverandi leikmaður Slaviu, jafnaði hins vegar fyrir Lens korteri fyrir leikslok. Šturm var ekki hættur og skoraði öðru sinni á 88 mínútu fyrir tíu Slaviu-menn og allt ætlaði um koll að keyra á vellinum. Adam var þó ekki lengi í paradís þar sem fyrirliðinn Florian Thauvin jafnaði fyrir Lens á fyrstu mínútu uppbótartíma og tveimur mínútum síðar féll boltinn fyrir vængbakvörðinn Ruben Aguilar í teignum og hann afgreiddi hann snyrtilega í fjærhornið til að tryggja Lens ótrúlegan 3-2 sigur.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira