Sport

Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arrow leiðir lið sitt til leiks í hundraðasta og síðasta leik sínum.
Arrow leiðir lið sitt til leiks í hundraðasta og síðasta leik sínum. Darrian Traynor/Getty Images

Rúgbýkappinn Jai Arrow átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann fékk að leika sinn hundraðasta leik fyrir félag sitt í Ástralíu eftir að hafa greinst með MND. Sérstaka undanþágu þurfti til og það var falleg stund þegar hann gekk til vallar.

Arrow er 31 árs gamall Ástrali sem hefur leikið sem atvinnumaður í heimalandinu frá árinu 2016. Fyrst með Brisbane Broncos, svo Gold Coast Titans og loks með South Sydney.

Hann hafði leikið 98 leiki fyrir Sydney-liðið frá árinu 2021 þegar hann greindist með hreyfitaugungahrörnun, einnig þekkt sem MND (e. motor neuron disease), ALS eða Lou Gehrig-sjúkdómurinn.

Um er að ræða taugahrörnunarsjúkdóm sem einkennist af minnkandi styrk vöðva og rýrnun þeirra. Sjúkdómurinn er ólæknandi.

Forráðamenn South Sydney hafa stutt við bakið á Arrow frá greiningunni og hjálpuðu honum þá að uppfylla draum sinn um að ná 100 leikjum fyrir félagið. Til þurfti sérstaka undanþágu frá ástralska rúgbýsambandinu en Arrow fékk að spila fyrstu sekúndur síðustu tveggja leikja tímabilsins og ná þannig 100 leikjum.

Myndskeið af því þegar Arrow leiddi lið sitt til vallar í hundraðasta leiknum má sjá í spilaranum. Stuðningsmenn liðsins sendu honum hlýjar kveðjur úr stúkunni og úr varð tilfinningarík stund fyrir Arrow.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×