Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 08:32 Magnús Már Einarsson, Aron Elí Sævarsson, Höskuldur Gunnlaugsson og Ólafur Ingi Skúlason munu berjast um bikartitilinn á föstudaginn kemur. Vísir/Anton Brink Bikarhelgi er fram undan í fótboltanum og af nægu er að taka í aðdraganda úrslitaleikjanna tveggja sem fram fara á Laugardalsvelli.
Karlarnir verða fyrri til þar sem Bestu deildar lið Breiðabliks mætir Lengjudeildarmeisturum Aftureldingar. Klippa: Pressa á Blikum, skipulagið gagnrýnt og vallarmál í sviðljósinu Mikið er undir hjá Blikum sem voru utan Evrópukeppni í ár, í fyrsta sinn síðan 2018 og verða það annað árið í röð ef þeir vinna ekki á föstudagskvöldið. Afturelding er aftur á móti í úrslitum í fyrsta sinn og spilaði deild neðar í sumar. Þjálfari liðsins segir alla pressuna á Blikum. „Ef þú horfir í sögubækurnar hefur það einu sinni gerst að lið úr næst efstu deild vinni bikarinn og það var fyrir 55 árum, árið 1971, 18 árum áður en ég fæddist. Þannig að já, ég held það sjái það allir á hverjum pressan er fyrir þennan leik,“ segir Magnús Már. Magnús Már segir alla pressuna á lærisveinum Ólafs Inga í Breiðabliki.Vísir/Anton Brink Aðspurður um pressuna segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks: „Ég skil að það sé eitthvað upplegg. En á endanum eru tvö lið í úrslitaleik og það er til alls að vinna. Það er hægt að mála þetta allskonar upp en bæði lið geta unnið, þetta er úrslitaleikur, og bæði lið geta tapað. Pressan er á báðum endum.“ Sammála öllu sem hann sagði Eftir úrslitaleik karlanna á föstudag eigast við Þróttur og Grindavík/Njarðvík á laugardag. Bæði lið geta orðið bikarmeistarar í fyrsta sinn. Jóhann Kristinn Gunnarsson og Gylfi Tryggvason sammælast um að skipulag laugardagsins hefði mátt vera betra.Vísir/Anton Brink Úrslitaleikur karlanna á föstudeginum er eini fótboltaleikurinn sem fram fer hér á landi þann daginn en aðra sögu er að segja af laugardeginum. Lokaumferð Lengjudeildar kvenna fer fram sama dag og úrslitaleikurinn. Það gagnrýnir þjálfari Þróttar. „Ég hef svolitlar áhyggjur af því að við séum að fara dálítið gegn sjálfum okkur með því að stilla því þannig upp að Lengjudeildin sé að fara ofan í þennan viðburð. Ég held það séu ansi margir aðilar sem mæta ekki á völlinn sem hefðu annars gert það,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar. „Ég held ég hafi ekki verið ósammála neinu sem hann skrifaði. Mér fannst þetta bara flott hjá honum. Mér finnst mjög lélegt að það séu aðrir leikir á sama tíma og bikarúrslitaleikur,“ segir Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur. Þú sérð að það er ekki sama uppi á teningunum þegar karlarnir spila á föstudeginum? „Já, það er þannig,“ segir Gylfi. Munur á parketi og grasi Bikarhelgi er hugtak sem oft er heldur tengt við inniíþróttir líkt og handbolta eða körfubolta frekar en fótboltann. Enda er stigsmunur á því að spila tvo leiki með skömmu millibili á parketi samanborið við gras. Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að unnið verði næturlangt að því að gera við völlinn eftir úrslitaleik karlanna á föstudag, fyrir úrslitaleik kvennana á laugardag.Vísir/Anton Brink En þarf að hafa áhyggjur af sliti vallarins þegar konurnar mæta til leiks á laugardag? „Ég hef engar áhyggjur. Ég er með alveg ótrúlega öflugt starfsfólk sem hefur unnið að þessu og þetta er heljarinnar vinna. Karlarnir eru hérna á föstudaginn eins og þú segir og svo verðum við að vinna fram yfir nóttina og fram undir morgun fyrir kvennaleikinn,“ „Þannig að það verður mikil vinna milli leikja og ég vona að það verði enginn munur á vellinum á milli daga,“ segir Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar.
Mjólkurbikar karla Mjólkurbikar kvenna Besta deild karla Besta deild kvenna Lengjudeild karla Afturelding Breiðablik UMF Grindavík UMF Njarðvík Þróttur Reykjavík Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“