Nýr Camp Nou míglekur Stefán Árni Pálsson skrifar 10. september 2026 10:31 Verkið ekki alveg tilbúið. Það var ekki aðeins á vellinum sem mikil úrkoma vakti athygli þegar Barcelona tók á móti Feyenoord í Meistaradeildinni í gær. Blaðamenn á leikvanginum fengu heldur betur að finna fyrir veðrinu þegar vatn tók að flæða inn á fjölmiðlasvæðið.
Myndskeið sem hollenski blaðamaðurinn Mikos Gouka birti á samfélagsmiðlum sýnir vatn streyma niður úr þaki Camp Nou og yfir vinnuaðstöðu blaðamanna. Vatn safnaðist á borðum og stólum og þurftu nokkrir fjölmiðlamenn að forða fartölvum, símum og öðrum búnaði frá vatnsflaumnum. Perstribune Camp Nou. #barfey pic.twitter.com/Cry3ssEJ1i— Mikos Gouka (@MikosGouka) September 9, 2026 Atvikið vekur sérstaka athygli þar sem Camp Nou hefur verið í umfangsmikilli endurbyggingu sem kostað hefur um 1,2–1,3 milljarða punda. Barcelona sneri aftur á sinn sögufræga heimavöll í nóvember á síðasta ári eftir rúmlega tveggja ára fjarveru, en framkvæmdir eru enn langt frá því að vera fullkláraðar. Stór hluti efri stúkunnar er enn í framkvæmdum og völlurinn er því enn aðeins í takmarkaðri notkun. Stefnt er að því að auka sætin í um 105 þúsund þegar verkinu lýkur. Þakið er einn af þeim verkþáttum sem enn á eftir að ljúka og samkvæmt fréttum er uppsetningu þess ekki lokið. Því kom mikil rigning illa við hluta leikvangsins á miðvikudagskvöldið. Á meðan blaðamenn börðust við vatnið gekk allt eftir á vellinum hjá Barcelona. Lið Hansi Flick vann Feyenoord örugglega 5-1 þar sem Raphinha skoraði tvívegis og Karim Adeyemi, Lamine Yamal og Gabriel Jesus bættu við mörkum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla FC Barcelona Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Sjá meira