Fótbolti

Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir er í mjög stóru hlutverki hjá Angel City og næst á dagskrá er úrslitakeppnin.
Sveindís Jane Jónsdóttir er í mjög stóru hlutverki hjá Angel City og næst á dagskrá er úrslitakeppnin. Getty/Edwin So

Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var í aðalhlutverki í sigri Angel City í lokaumferðinni í bandarísku NWSL-deildinni í nótt.

Angel City vann 4-1 sigur á Boston Legacy og endaði því í fimmta sæti deildarinnar. Liðið mætir Kansas City Current í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.

Staðan var 1-1 í hálfleik en í þeim seinni tók Sveindís til sinna ráða.

Hún lagði fyrst upp mark fyrir Evelyn Shores sem skoraði með skalla á 53. mínútu og Sveindís skoraði síðan þriðja markið sjálf á 72. mínútu. Angel City var komið í lykilstöðu en bætti við fjórða markinu áður en yfir lauk.

Sveindís Jane varð um leið fyrsta íslenska knattspyrnukonan til að skora tíu mörk á einu tímabili í bandarísku kvennadeildinni.

Sveindís er alls með 10 mörk og 4 stoðsendingar í 23 leikjum í NWSL-deildinni í ár. Hér fyrir neðan má sjá markið hennar í nótt.

Þetta er í fyrsta sinn sem Sveindís skorar tíu mörk á tímabili síðan hún skoraði fjórtán mörk í aðeins fimmtán leikjum fyrir Breiðablik sumarið 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×