Haaland hunsaði Holland Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. júlí 2026 11:29 Erling Haaland vissi ekkert hver Tom Holland væri þegar hann fékk frá honum kvöldverðarboð. Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri.
Haaland var til viðtals í norska sjónvarpsþættinum A Laget síðasta haust og var þar spurður út í kvöldverðarboð sem hann fékk frá Marvel-stjörnu. Haaland kannaðist ekki við hvern var átt áður en það heyrðist kallað úr salnum: „Tom Holland, Köngulóarmaðurinn.“ Haaland kveikti þá loks á perunni og sagði: „Já auðvitað, þetta er dálítið vandræðalegt, satt að segja. Við vorum í Mónakó á Formúlu 1 þegar ég fékk skilaboð.“ „Ég horfi ekki mikið á kvikmyndir svo ég þekki ekkert fólk. Það var einn sem spurði mig hvort ég vildi fara út að borða með honum en ég hafði aldrei séð hann, svo ég sleppti því að svara honum. Ég vildi ekki svara einhverjum ókunnugum,“ sagði hann. Haaland virtist þó dálítið skömmustulegur yfir því að hafa hunsað kauða. „Ég hugsa að ég þurfi að senda honum skilaboð núna. Ég gleymdi þessu alveg.“ Auðmýkjandi upplifun Holland var svo til viðtals hjá Jimmy Fallon í The Tonight Show á mánudaginn til að auglýsa Spider-Man: Brand New Day, nýjustu myndina um Köngulóarmanninn, sem kemur út í lok mánaðar. Fallon hafði frétt af kvöldverðarboðinu og spurði Holland hvort það væri eitthvað til í því að hann hefði sent Haaland skilaboð. „Já og ég skal segja þér það, þetta er akkúrat svona auðmýkjandi upplifun sem er mikilvæg fyrir leikara,“ sagði Holland. „Ég var að horfa á Lewis [Hamilton] keppa og sá hann,“ sagði Holland um Haaland sem var þá staddur í stúku rétt hjá leikaranum. „Ég hugsaði: „Ég sendi honum skilaboð og býð honum út að borða.“ En það kom ekkert svar, ekki einu sinni afsökun: „Ég er upptekinn í kvöld“ eða „Ég er að spila fótbolta.“ Ekkert,“ sagði Holland. Holland viðurkenndi að hann hefði ekki búist við því að þurfa að ræða þetta mál í sjónvarpi. Fallon spurði leikarann þá hvort hann væri enn spenntur fyrir því að borða kvöldverð með fótboltakappanum. Haaland var súr eftir tapið. „Ég efast um að hann vilji fara út að borða með mér eftir síðustu helgi,“ sagði Holland og vísaði þar til taps Norðmanna gegn Englendingum í átta liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku. Hann hrósaði svo frammistöðu þess norska gegn Englendingum. „Ég meina, hann er algjör goðsögn,“ sagði Holland um Haaland.
Hollywood Bíó og sjónvarp Noregur Bretland HM 2026 í fótbolta Akstursíþróttir Tengdar fréttir David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast. 14. júlí 2026 16:50 Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Norski framherjinn Erling Braut Haaland tók sín fyrstu skref á norskri grund á sérstakan hátt en norska landsliðið er nú lent heima í Noregi. Það sem bíður landsliðshetjanna er áheyrn hjá konungsfjölskyldunni og svo mikil gleði með norsku þjóðinni í miðborg Osló. 13. júlí 2026 17:51 Krýndur tískukóngur fótboltans Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur spilað sig inn í hjörtu margra fótboltaunnenda og eru fáir leikmenn sem hafa vakið jafn mikla athygli á HM í ár, sérstaklega ef marka má samfélagsmiðilinn TikTok. Hann er ekki bara stjarna í fótboltanum því hann virðist vera einn sá vinsælasti hjá tískuheiminum líka. 1. júlí 2026 11:01 Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira
David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast. 14. júlí 2026 16:50
Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Norski framherjinn Erling Braut Haaland tók sín fyrstu skref á norskri grund á sérstakan hátt en norska landsliðið er nú lent heima í Noregi. Það sem bíður landsliðshetjanna er áheyrn hjá konungsfjölskyldunni og svo mikil gleði með norsku þjóðinni í miðborg Osló. 13. júlí 2026 17:51
Krýndur tískukóngur fótboltans Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur spilað sig inn í hjörtu margra fótboltaunnenda og eru fáir leikmenn sem hafa vakið jafn mikla athygli á HM í ár, sérstaklega ef marka má samfélagsmiðilinn TikTok. Hann er ekki bara stjarna í fótboltanum því hann virðist vera einn sá vinsælasti hjá tískuheiminum líka. 1. júlí 2026 11:01