Lífið

Draugar og ó­freskjur taka yfir Húsdýragarðinn

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Það er eins gott að þessi litli selur í Húsdýragarðinum sé hugaður.
Það er eins gott að þessi litli selur í Húsdýragarðinum sé hugaður. vísir/vilhelm

Alls konar vættir, draugar og ófreskjur úr íslenskum sagnaarfi munu lifna við í Húsdýragarðinum í dag. Þjóðfræðingur sem mun leiða gesti um garðinn til að hitta umrædd skrímsli segir gönguna fyrir unga sem aldna en þó sé mikilvægt að þeir sem mæta séu hugaðir.

Um þessar mundir fer fram haustfrí í grunnskólum Reykjavíkurborgar og víða annars staðar og er af því tilefni boðið upp á ýmsa afþreyingu víða um borg fyrir börn og fjölskyldur.

Á fjölmörgum söfnum og bókasöfnum má finna skapandi smiðjur fyrir unga sem aldna. Í dag er fyrsti dagur vetrar og af því tilefni blæs Húsdýragarðurinn til hrekkjavökuveislu þar sem að alls konar draugar og ófreskjur lifna við.

Klukkan hálf fimm mun þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir leiða gesti um garðinn og segja sögur úr íslenskum þjóðsögum.

„Það verður drauga- og skrímslaganga í Húsdýragarðinum og ég ætla að fara í göngu og þarna verður líka fólk úr Pilkington Props og Hringleik. Ég mun segja nokkrar vel valdar og skemmtilegar íslenskar þjóðsögur og frá þessum skrímslum sem við eigum í þjóðsagnaarfinum og síðan munum við rekast á nokkur þeirra sem eru á vappi þarna í garðinum.“

Erum við að tala bara um Skoffín og Urðarkött og allt það helsta eða hvað verður þarna á seyði?

„Ég hef það eftir öruggum heimildum að það verði þarna bæði draugar og tröll og svo verður þarna fjörugalli og skrímslamóðirin en svo eigum við líka þjóðsögur eins og til dæmis um selina.“

Vika er til hrekkjavöku og er því gangan vel til þess gerð að fá smá forskot á sæluna. Dagný segir bandarísku hátíðina og íslenskan draugagang eiga góða samleið.

„Það eru náttúrulega hefðir fyrir því að hér hafi verið einhver hátíðarhöld svona í kringum þessar vetrarnætur sem eru nú að bresta á, þótt hrekkjavakan sem við höldum núna sé náttúrulega að erlendri fyrirmynd sem við sjáum í kvikmyndum og svona. Við eigum nóg af óhugnaði sem er hægt að draga fram á hrekkjavökunni.“

Hún segir gönguna vera fyrir unga sem aldna.

„Þetta er hugsað bara fyrir alla fjölskylduna og svona þá sem eru kannski aðeins hugaðri. Það getur verið pínu svona óhugnanlegt kannski en líka mjög skemmtilegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.