Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 22:58 Judi Dench, Ricky Gervais og Leona Lewis láta sig hvalina varða. Getty/samsett Breska leikkonan Judi Dench, grínistinn Ricky Gervais og tónlistarkonan Leona Lewis eru meðal þeirra sem skora á atvinnuvegaráðherra að tryggja að hvalveiðum verði hætt við Íslandsstrendur. Í bréfi til Hönnu Katrínar Friðriksson er það sagt sorglegt að hvalveiðar hafi byrjað að nýju í sumar og átján langreyðar hafi verið drepnar af Hvali hf. Þá er minnst á þau ummæli ráðherrans að hún skoði að leggja fram lagafrumvarp á nýju þingi sem takmarki eða banni veiðar. „Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga.“ Undir bréfið skrifa breski sjófarinn Tracy Edwards og Mary McCartney, kvikmyndagerðarkona, aðgerðarsinni og dóttir Paul McCartney, ásamt áðurnefndum Dench, Gervais og Lewis. Bréfið er sent til Hönnu Katrínar með milligöngu dýraverndunarsamtakanna Humane World for Animals. Fréttin er í vinnslu. Bréfið í heild sinni (þýtt úr ensku)
Í bréfi til Hönnu Katrínar Friðriksson er það sagt sorglegt að hvalveiðar hafi byrjað að nýju í sumar og átján langreyðar hafi verið drepnar af Hvali hf. Þá er minnst á þau ummæli ráðherrans að hún skoði að leggja fram lagafrumvarp á nýju þingi sem takmarki eða banni veiðar. „Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga.“ Undir bréfið skrifa breski sjófarinn Tracy Edwards og Mary McCartney, kvikmyndagerðarkona, aðgerðarsinni og dóttir Paul McCartney, ásamt áðurnefndum Dench, Gervais og Lewis. Bréfið er sent til Hönnu Katrínar með milligöngu dýraverndunarsamtakanna Humane World for Animals. Fréttin er í vinnslu. Bréfið í heild sinni (þýtt úr ensku) Kæri ráðherra Hanna Katrín Friðriksdóttir Við skrifum þér til að lýsa yfir djúpri sorg okkar vegna áframhaldandi hvalveiða í atvinnuskyni á Íslandi á þessu tímabili. Þegar þetta er skrifað erum við harmi slegin yfir fréttum frá Humane World for Animals um að 18 fallegar langreyðar hafi verið drepnar, þar á meðal ein þunguð kýr og ófæddur kálfur hennar, og að einn hvalur hafi verið skotinn fjórum sinnum með sprengiskutlum og tekið 31 kvalafulla mínútu að deyja. Við virðum niðurstöður Matvælastofnunar (MAST) frá 2023 sem komst að þeirri niðurstöðu að sumir hvalir sem drepnir voru í íslenskum veiðum hafi tekið allt að tvær klukkustundir að deyja og að 41% hvala hafi þjáðst gríðarlega áður en þeir drápust. Íslensk dýravelferðarlög og reglugerðir um hvalveiðar banna slíka grimmd. Langreyðar eru stórfenglegir risar hafsins sem Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) flokkar á heimsvísu í hættu á útrýmingu. Alþjóðlegt veiðibann er í gildi til að vernda stórhveli. Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga. Með virðingu Dame Judi Dench, Leona Lewis OBE, Tracy Edwards MBE, Ricky Gervais, Rankin og Mary McCartney.
Kæri ráðherra Hanna Katrín Friðriksdóttir Við skrifum þér til að lýsa yfir djúpri sorg okkar vegna áframhaldandi hvalveiða í atvinnuskyni á Íslandi á þessu tímabili. Þegar þetta er skrifað erum við harmi slegin yfir fréttum frá Humane World for Animals um að 18 fallegar langreyðar hafi verið drepnar, þar á meðal ein þunguð kýr og ófæddur kálfur hennar, og að einn hvalur hafi verið skotinn fjórum sinnum með sprengiskutlum og tekið 31 kvalafulla mínútu að deyja. Við virðum niðurstöður Matvælastofnunar (MAST) frá 2023 sem komst að þeirri niðurstöðu að sumir hvalir sem drepnir voru í íslenskum veiðum hafi tekið allt að tvær klukkustundir að deyja og að 41% hvala hafi þjáðst gríðarlega áður en þeir drápust. Íslensk dýravelferðarlög og reglugerðir um hvalveiðar banna slíka grimmd. Langreyðar eru stórfenglegir risar hafsins sem Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) flokkar á heimsvísu í hættu á útrýmingu. Alþjóðlegt veiðibann er í gildi til að vernda stórhveli. Við stöndum með þeim fjölmörgu á Íslandi sem vilja ekki að þessum hvalaslátrunum verði haldið áfram og vilja hefja nýjan kafla í sambandi Íslands við hvali, kafla sem byggir á virðingu, samkennd og tryggð við náttúruna. Þegar þú lofaðir nýlega að leggja fram frumvarp til að banna hvalveiðar í atvinnuskyni á Íslandi fagnaði heimurinn því. Með því getur þú snúið við blaðinu, hætt að drepa hvali fyrir kjöt sem nánast enginn markaður er fyrir og þess í stað gert Ísland að leiðandi áfangastað á heimsvísu fyrir friðsæla hvalaskoðunarferðamennsku. Vinsamlegast láttu þetta vera síðustu hvalina sem deyja í veiðum Íslendinga. Með virðingu Dame Judi Dench, Leona Lewis OBE, Tracy Edwards MBE, Ricky Gervais, Rankin og Mary McCartney.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira