Hvalveiðar

Fréttamynd

Gagn­rýna með­ferð lög­reglu á á­höfninni

Paul Watson-samtökin gagnrýna harðlega meðferð áhafnar Bandero, segja lagalegar forsendur þess að þeim sé haldið óljósar og að áhöfnin hafi ekki fengið að setja sig í samband við ástvini sína og lögmann. Meðferðin veki upp stórar spurningar þegar komi að lagalegum réttindum og mannréttindum.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­heyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæslu­varð­hald

Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Hálf á­höfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár

Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir allan 21 áhafnarmeðlim Bandero hafa stöðu grunaðs fyrir hættubrot. Skipstjóri, fyrsti stýrimaður og fyrsti vélstjóri voru teknir í skýrslutöku í dag.

Innlent
Fréttamynd

Paul Watson afar á­nægður með hand­tökuna

Paul Watson fer ekki í grafgötur með að helsti tilgangur aðgerða Bandero er að ná athygli heimsins. Myndavélarnar eru hans helsta vopn og það að Gæslan hafi ráðist til uppgöngu gráir fyrir járnum skaffaði honum myndefnið sem hann þurfti.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei liðið að öryggi sjó­manna sé ógnað

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir aðgerðir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi sem beindust að Bandero, sem hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi, ekki snúast um afstöðu fólks til hvalveiða, heldur um öryggi þeirra sem sækja sjóinn við Íslandsstrendur.

Innlent
Fréttamynd

Myndi glaður sjá réttar­höld yfir skip­verjum Bandero

Paul Watson hvalaverndunarsinni hvers skip, Bandero, stefndi í dag að hvalveiðiskipinu Hval 9 þannig að Landhelgisgæslan greip inn í, segir að honum sé sama þó áhöfn skips hans yrði handtekin og réttað yfir þeim hér á landi. Slíkt myndi einungis auka athyglina á málefninu sem hann berst fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Bandero hrellir Hval 9

Bandero, skipið sem hefur undanfarnar vikur verið undan lögsögu Íslands og er í eigu Paul Watson-samtakanna, er nú að reyna að stöðva hvalveiðiskipið Hval 9.

Innlent
Fréttamynd

Saka Kristján um að beita Land­helgis­gæslunni fyrir sig

Áfram siglir áhöfn hvalavina og aðgerðarsinna um borð í Bandero um utan tólf mílna lögsögunni og reynir að hafa uppi á hvalveiðiskipum Hvals hf. Skipverjar saka Kristján Loftsson um að setja þrýsting á Landhelgisgæsluna að hún beiti sér af óþörfu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða

Matvælastofnun (MAST) telur nauðsynlegt að bregðast við og koma á framfæri skýringum vegna meintra annmarka á skráningu eftirlitsgagna vegna hvalveiða. Vísir birti fyrr í dag frétt upp úr yfirlýsingu Hvalavina, samtaka sem berjast gegn hvalveiðum.

Innlent
Fréttamynd

Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum

Hvalavinir segja eftirlitsskýrslur Matvælastofnunar (MAST) vegna hvalveiða sýna að langdregin dauðastríð dýranna séu enn algeng. Þá séu annmarkar á skráningu eftirlitsgagna. Opinberar skýrslur séu aðeins tuttugu og ein á meðan veidd dýr séu tuttugu og fjögur.

Innlent
Fréttamynd

Bandero stefnir í átt að Ís­landi á ný

Skipið Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, stefnir í átt að Íslandi á ný. Skipið er statt „djúpt“ suðaustur af landinu en Landhelgisgæslan áætlar komu þess í íslenska efnahagslögsögu klukkan ellefu í kvöld. 

Innlent
Fréttamynd

Bikarveiðar í búningi at­vinnu­rekstrar

Kristján Loftsson er löngu orðinn meira en maður í umræðunni um hvalveiðar. Hann er orðinn tákn. Tákn um gamla, dapurlega og ofbeldisfulla hugmynd um náttúruna: að allt sem syndir, flýgur, vex eða andar sé fyrst og fremst hráefni. Að það sem hægt er að drepa megi drepa. Að það sem hægt er að selja eigi að selja. Að líf annarra vera skipti minna máli en hvernig við getum notfært okkur þau.

Skoðun
Fréttamynd

„Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu fé­lagi“

Katrín Oddsdóttir lögmaður, sem meðal annars hefur látið sig dýravelferð varða, gagnrýnir harðlega niðurstöðu Matvælastofnunar (MAST) um að ekki hafi verið brotið gegn lögum um velferð dýra þegar langreyður háði hálftíma langt dauðastríð. Katrín vill sjá harðari aðgerðir af hálfu MAST, líkt og beitingu stjórnvaldssekta. 

Innlent
Fréttamynd

„Galið að komast að þessari niður­stöðu“

Formaður Hvalavina segir það koma á óvart að Matvælastofnun (MAST) telji að Hvalur hf. hafi ekki brotið gegn lögum um dýravelferð þegar langreyður var skotin fjórum sinnum í júní og hún háði dauðastríð í 31 mínútu.

Innlent
Fréttamynd

Hálf­tíma dauða­stríð ekki talið brot á lögum um vel­ferð dýra

Hvalur hf. braut ekki gegn lögum um velferð dýra eða reglugerð um veiðar á langreyðum þegar hvalur var skotinn með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Þetta er niðurstaða Matvælastofnunar (MAST) sem hefur lokið rannsókn á málinu. Um var að ræða fyrstu langreyði yfirstandandi vertíðar.

Innlent
Fréttamynd

Heil­brigðis­eftir­litið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslu­stöð Hvals

Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands segir að fyrri yfirlýsing um óásættanlega meðhöndlun Hvals hf. á soðvatni hafi byggt á röngum upplýsingum. Fitugildra í vinnslustöðinni virðist virka en unnið sé að því að greina hvort fita og önnur efni séu fjarlægð með fullnægjandi hætti. Myndefni sem fulltrúar Paul Watson-samtakanna segjast hafa tekið í dag sýnir mengun í fjörunni við vinnslustöðina sem heilbrigðiseftirlitið hefur ekki séð áður.

Innlent
Fréttamynd

Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Lofts­son

Það er ýmislegt sem mér þykir leitt í þessu þjóðfélagi og er eitt af því hrokagikkir sem vaða áfram og gera það sem þeim sýnist án tillits til annarra og skammast svo út í allt og alla ef þeir fá ekki að fara sínu fram óáreittir.

Skoðun
Fréttamynd

Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey.

Innlent
Fréttamynd

„Þessi kona er ekkert skyni skroppin“

For­stjóri Hvals hf. sakar for­stjóra MAST um að hafa reynt að koma höggi á fyrir­tækið og starfs­menn þess með því að deila stað­setningu hval­veiði­skipa í eftir­lits­skýrslum. Hann segist ekki hafa tekið á um­deildu at­hæfi starfs­manns sem lék sér að limi hvalskrokks og bendir hvala­skoðunarfólki á að horfa í hina áttina þegar þeir nálgast skip við veiðar.

Innlent
Fréttamynd

„Hver vill ganga í gjald­þrota ríkja­sam­band?“

„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986.

Innlent