Innlent

Holta­vörðu­heiði lokað vegna hjólhýsis

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa
Löng röð bíla hefur myndast.
Löng röð bíla hefur myndast. Vísir/Árni Konráð

Holtavörðuheiði er lokuð vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð hefur myndast á heiðinni. Á vef Vegagerðarinnar er ökumönnum bent á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði.

Að sögn lögreglunnar fauk hjólhýsi á hliðina á norðanverðri heiðinni og hindrar umferð um veginn. Mjög hvasst er á svæðinu og lögreglan og aðrir viðbragðsaðilar eru á leiðinni til að færa hjólhýsið. Engin slys urðu á fólki. 

Fréttin er í vinnslu. Hún var síðast uppfærð klukkan 17:13.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×