Borgarbyggð

Borgarbyggð

Mannfjöldi: 4.102 (2025). Flatarmál: 4.927 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Borgarnes, Hvanneyri, Bifröst, Reykholt, Varmaland, Kleppjárnsreykir.

Fréttamynd

Þúfan veltir þungu flat­böku­hlassi

Þegar hinn rómaði flat­bökustaður La Colina í Borgar­nesi hætti sáu vin­konurnar Rann­veig Rögn Leifs­dóttir og Agnes Hjaltalín Andra­dóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafna­klett. Undir­tektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Starfs­menn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum

Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnin treystir Margréti

Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans.

Innlent
Fréttamynd

Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ó­tengdar sakir

Kennara við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst var sagt upp störfum í sömu viku og stjórnendur skólans báðu siðanefnd um að kanna störf hans en fyrir ótengdar sakir. Hann var sagður hafa brotið trúnað með því að kenna við annan háskóla.

Innlent
Fréttamynd

Náttúru­verndar­samtök fjar­lægðu stíflu

Stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal var fjarlægð í desember á síðasta ári í því augnamiði að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska. Einnig á aðgerðin að gera sjóbirtingi kleift að ferðast upp ána.

Innlent
Fréttamynd

Akademískir starfs­menn lýsa yfir van­trausti á rektor

Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) hefur lýst yfir vantrausti á stjórnsýslu rektors skólans, Margrétar Jónsdóttur Njarðvík. Félagið segir framgöngu rektors, deildarforseta viðskiptadeildar skólans og rannsóknarstjóra í kærumálum gegn þremur starfsmönnum hafa einkennst af ófaglegum vinnubrögðum. 

Innlent
Fréttamynd

Drónar, buggy- og snjó­bíll nýttust við björgun göngufólks

Björgunarsveitir á Vesturlandi sinntu tveimur útköllum vegna göngufólks í vanda síðdegis í gær. Drónar voru nýttir við leit að tveimur göngumönnum í erfiðum aðstæðum á Skessuhorni og í Eyrarhyrnu hafði göngumaður runnið nokkuð niður hlíðina vegna ísingar.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar meðal sak­borninga en enginn í varð­haldi

Rannsókn lögreglu á meintum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar er enn í fullum gangi að sögn rannsóknarlögreglumanns sem sér enn ekki fyrir endann á málinu. Íslenskir ríkisborgarar eru meðal sakborninga en fjórum sakborningum hefur verið vísað til Albaníu. Á sumum stöðum hafi kannabisframleiðsla staðið yfir í nokkur ár.

Innlent
Fréttamynd

Kom ráð­herra á ó­vart að við­ræðum hefði verið slitið

Logi Már Einarsson ráðherra háskólamála segir ákvörðun Háskólaráðs Háskólans á Akureyri um að slíta viðræðum um sameiningu við Háskólann á Bifröst hafa komið sér á óvart. Ekkert slíkt hafi verið í farvatninu þegar hann ræddi við rektora skólanna fyrir fáeinum vikum síðan.

Innlent
Fréttamynd

Hætt við sam­einingu HA og Há­skólans á Bif­röst

Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur ákveðið að hætta frekari viðræðum um sameiningu við Háskólann á Bifröst og hefur tilkynnt stjórnendum skólans um ákvörðun sína ásamt menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Niðurstaðan var samþykkt einróma og gerð að vandlega athuguðu máli.

Innlent