Samgönguslys
1 2 3 4 5 6 … 47 ›
Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Bandarísk kona, sem sofnaði undir stýri og olli alvarlegu umferðarslysi í Borgarfirði árið 2023, var dæmd í þrjátíu daga fangelsi auk þess að vera svipt ökuréttidum í sex mánuði í Héraðsdómi Vesturlands. Var það mat dómara að konan hefði gerst sek um stórkostlegt gáleysi við akstur bifreiðarinnar. Innlent 13.6.2025 22:59
Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki Ráðherra flugmála á Indlandi segir að flugriti farþegaþotunnar sem fórst í Ahmedabad í gær sé fundinn. Enn liggur ekki fyrir hversu margir létust á jörðu niðri þegar þotan brotlenti á íbúðabyggð. Erlent 13.6.2025 15:06
Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að kínversk ferðaskrifstofa eigi ekki rétt á bótum úr hendi TM vegna banaslyss sem varð árið 2017. Ferðaskrifstofan hefur þegar greitt aðstandendum þeirra tveggja sem létust bætur og taldi sig því hafa eignast kröfu þeirra á hendur TM. Landsréttur hélt nú ekki. Innlent 13.6.2025 10:50
Leita vísbendinga um flugslysið og fleiri fórnarlamba Indversk flugmálayfirvöld rannsaka nú tildrög og aðstæður við flugslys í Ahmedabad á Indlandi í gær. Flugslysið er eitt það mannskæðasta í flugsögu Indlands en allir farþegar vélarinnar nema einn, sem var á leið til London, létust. Vélin brotlenti um fimm mínútum eftir flugtak í íbúðarhverfi í Ahmedabad á hóteli fyrir lækna. Erlent 13.6.2025 08:11
Umferðarslys austan Selfoss Tveggja bíla árekstur varð við Þingborg austan Selfoss á fjórða tímanum í dag. Bílarnir eru óökuhæfir og verða dregnir af vettvangi. Slys á fólki eru ekki talin alvarleg. Búið er að opna fyrir umferð um veginn. Innlent 12.6.2025 15:29
Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á ofsahraða, lenti á afleggjara, kastaðist yfir hann og stöðvaðist utan vegar eftir rúma fimmtíu metra. Ökumaður og farþegi létust af völdum fjöláverka en samkvæmt gögnum úr árekstrareftirlitskerfi var bíllinn á 201 kílómetra hraða þegar slysið varð. Innlent 12.6.2025 08:48
Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Tveir sjúkrabílar eru á vettvangi á gatnamótum Stekkjarbakka og Breiðholtsbrautar eftir að tveir bílar skullu saman. Innlent 9.6.2025 16:24
Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Meginorsök banaslyss sem varð á Suðurlandsvegi, skammt vestan Péturseyjar, í janúar í fyrra var að ökumaður jeppa gætti ekki að umferð fyrir framan sig. Hann ók aftan á dráttarvél á áttatíu kílómetra hraða. Aðrar orsakir slyssins voru að ökumaðurinn var undir áhrifum slævandi lyfja, í lækningalegum skammti þó, og að sætisbak dráttarvélarinnar var aðeins 35 sentimetra hátt. Innlent 6.6.2025 11:42
Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Árekstur varð á Vesturlandsvegi á fjórða tímanum í dag. Umferð um veginn í báðar áttir var lokað um tíma en opnað hefur verið fyrir umferð í suðurátt. Bílaröðin teygir sig marga kílómetra í suður. Enginn er alvarlega slasaður. Innlent 30.5.2025 16:52
Barn fórst í Hvítá í gær Banaslys varð í Hvítá í Hrunamannahreppi í gær þegar dráttarvél rann fram af háum bakka og hafnaði ofan í ánni. Ökumaðurinn var tíu ára gamall drengur og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Innlent 29.5.2025 15:32
Enn unnið að því að ná dráttarvélinni upp eftir alvarlegt slys í Hvítá Enn stendur yfir vinna á vettvangi við að ná upp dráttarvélinni sem hafnaði í Hvítá í gærkvöldi. Um alvarlegt slys var að ræða en einn var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu vegna slyssins. Innlent 29.5.2025 12:09
Flugmaðurinn hafi verið mjög heppinn Meðlimur í Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík segist hafa orðið verulega skelkaður þegar hann sá litla flugvél nálgast Suðurlandsveg óðfluga í gærkvöldi. Hann segir flugmanninn hafa verið í góðu skapi og hund hans jafnvel hressari. Innlent 27.5.2025 21:32
Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Flugvélin sem lent var á Suðurlandsvegi í gærkvöldi er sú sama og samband rofnaði við þegar verið var að fljúga henni frá Grænlandi í gær. Landhelgisgæslan lýsti yfir óvissustigi vegna flugvélarinnar eftir að flugmaður hennar hafði ekki samband við flugumferðarstjórn á tilteknum tíma, svaraði ekki kalli og flugvélin sást ekki á ratsjám. Innlent 27.5.2025 12:19
Skipstjórinn svarar fyrir sig Fyrrverandi skipstjóri á Huginn VE55 sem missti akkeri sem olli skemmdum á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjum fyrir hálfu öðru ári segir mikil vonbrigði hvernig stjórnendur og eigendur Vinnslustöðvarinnar hafi komið fram eftir atvikið. Útgerðin sverti starfsmenn sína og dragi úr eigin ábyrgð á slysinu. Innlent 26.5.2025 11:59
Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu á Reykjanesbraut Bíll valt á Reykjanesbraut í átt til Keflavíkur og voru tveir um borð. Þau voru flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en hvorugur er alvarlega slasaður. Innlent 25.5.2025 18:09
Slæmur frágangur akkerisins olli slysinu Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur ástæðu þess að akkeri Hugins VE festist í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar, með þeim afleiðingum að vatnslögn til Eyja fór í sundur, hafi verið að hvorki hafi verið gengið rétt né nægjanlega vel frá akkerisbúnaði skipsins. Innlent 21.5.2025 16:07
Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Íslenskur ferðamaður í Indónesíu var farþegi í bíl sem lenti í bílslysi sem varð til þess að fimm ára gamall drengur lést. Greint er frá þessu í indónesískum fjölmiðlum. Erlent 18.5.2025 14:46
Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Fimm eru látnir eftir að tvær þyrlur rákust saman og brotlentu skammt frá Eura í suðvesturhluta Finnlands. Þyrlurnar voru báðar á leið til finnska bæjarins Kokemäki til að taka þátt í viðburði flugklúbbs. Erlent 17.5.2025 18:44
Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Bíl var ekið á vegfaranda á hlaupahjóli við gatnamót Miðhúsabrautar og Þórunnarstrætis á Akureyri rétt fyrir klukkan átta í morgun. Innlent 13.5.2025 09:46
Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Flugstjóri og flugmaður tyrkneskrar farþegaþotu sem lenti í alvarlegri ókyrrð yfir Íslandi árið 2023 tókust óafvitandi á um stjórn vélarinnar. Sjö manns um borð slösuðust í ókyrrðinni. Viðbrögð áhafnarinnar var talin orsök atviksins en bæði Veðurstofa Íslands og Isavia fengu tilmæli um umbætur vegna þess. Innlent 9.5.2025 09:37
Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys á brúnni fyrir ofan Fífuhvammsveg við Smáralind í Kópavogi. Innlent 6.5.2025 17:36
„Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Kona ók bíl inn í garð nágranna síns og utan í hús hans í Yrsufelli í Reykjavík í morgun. Eigandi hússins var að drekka morgunkaffi þegar hann fann höggið og sá bílinn í garðinum. Konan reyndi síðan að keyra í burtu og gat engar skýringar gefið á árekstrinum. Innlent 6.5.2025 12:17
Strætó og jeppi skullu saman á Reykjanesbraut Strætisvagn og jeppabifreið lentu saman á Reykjanesbraut í gær. Tiago Miguel náði myndbandi af atvikinu og birti það á Facebook síðunni íslensk bílamyndbönd. Innlent 25.4.2025 18:38
Tveir enn á gjörgæslu og samfélagið harmi slegið Tveir drengjanna sem slösuðust í alvarlegu bílslysi í grennd við Hofsós á föstudagskvöld eru enn á gjörgæslu. Samfélagið í Skagafirði er harmi slegið vegna málsins að sögn setts skólameistara, en boðað hefur verið til samverustundar í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki á morgun. Innlent 14.4.2025 11:53
Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Íslenskir feðgar fóru í útsýnisflug með þyrlunni sem hrapaði í Hudson-ánna á fimmtudag. Skömmu eftir að þeir flugu yfir borgina hrapaði þyrlan til jarðar og létust allir sex um borð. Erlent 14.4.2025 09:44
Tveir flutningabílar höfnuðu utan vegar og annar á hliðinni Tveir flutningabílar höfnuðu utan vegar á Suðurlandsvegi við Lómagnúp á ellefta tímanum. Í dag. Annar bíllinn valt á hliðina. Innlent 13.4.2025 11:22
Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni Ökumaður var handtekinn um hálf sjö í morgun eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á Skarphéðinsgötu í miðborg Reykjavíkur með þeim afleiðingum að hún endaði á hliðinni. Innlent 12.4.2025 14:55
Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Fjórir drengir voru fluttir á Landspítalann í Reykjavík eftir alvarlegt umferðarslys sem varð suður af Hofsósi í gærkvöldi. Um þrjátíu ungmenni voru á vettvangi en tilkynning um slysið barst klukkan hálf níu í gærkvöldi. Pétur Björnsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir tildrög slyssins ekki liggja fyrir að svo stöddu en rannsókn þess stendur yfir. Innlent 12.4.2025 13:13
Tæplega þrjátíu ungmenni á leið í samkvæmi þegar slysið varð Tæplega þrjátíu ungmenni voru á leið í samkvæmi á Hofsósi í gærkvöldi, þegar einn bíll endaði utanvegar. Fjórir voru í bílnum og voru allir fluttir til aðhlynningar í Reykjavík. Þar af þrír með flugvélum og einn með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 12.4.2025 09:50
Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Fjórir slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Siglufjarðarvegi í gærkvöldi. Bíll lenti utanvegar við Grafará, suður af Hofsós, en allir sem voru í bílnum voru fluttir til Reykjavíkur til aðhlynningar. Innlent 12.4.2025 07:24