Innlent

Bílvelta á Vestur­lands­vegi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Nokkrar tafir eru á umferð en búið er að koma bilnum aftur á dekkin samkvæmt slökkviliði.
Nokkrar tafir eru á umferð en búið er að koma bilnum aftur á dekkin samkvæmt slökkviliði. Aðsend

Bíll valt á Vesturlandsvegi við Bauhaus síðdegis í dag í kjölfar áreksturs. Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki mikil slys á fólki. Nokkrar umferðartafir voru á meðan bílunum var komið af veginum. Búið er að opna fyrir umferð.

„Við erum á vettvangi, þar urðu ekki mikil slys á fólki en það valt bíll eftir árekstur. Hann er kominn á hjólin aftur,“ segir Stefán.

„Það losnar vonandi fljótlega um þær,“ segir hann og unnið sé að því að koma bílunum burt.

Hér má sjá annan bíl uppi á kanti. Aðsend

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×