„Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 7. júlí 2026 12:36 Matvælastofnun og Hvalur hf. elda með sér grátt silfur. vísir/ívar „Ég bara ítreka það að þetta eru náttúrulega alvarlegar ásakanir. Ef menn eru komnir í slíkt rökþrot þegar þeir fara í persónuna í staðinn fyrir málefnið þá held ég að menn séu bara komnir á slæman stað.“ Þetta segir forstjóri Matvælastofnunar sem sakar forstjóra Hvals um að afvegaleiða umræðuna með persónulegum árásum. Hún segir ummælin dæma sig sjálf og tekur fram að það hafi ekki áhrif á sig þó að námsferill hennar sé dreginn í svaðið. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sakaði forstjóra Matvælastofnunar um að hafa reynt að koma höggi á fyrirtækið og starfsmenn þess í kvöldfréttum í gær með því að deila staðsetningu hvalveiðiskipa í eftirlitsskýrslum. Fréttin hefur verið uppfærð þar sem Kristján kom því á framfæri við fréttastofu að það hafi alls ekki verið ætlunin að gera lítið úr námi Hrannar heldur hafi stakt orð vafist fyrir honum. Sakar Kristján um persónulegar árásir Greint var frá því í síðustu viku að hnit hvalveiðiskipa Hvals hafi verið í eftirlitsskýrslu MAST sem ýmsir fengu aðgang að á grundvelli upplýsingalaga. Kristján sagðist hafa rökstuddan grun um að staðsetningin hafi ratað til áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna. Hvalur hafi því neyðst til að leita á minna gjöful veiðimið enda hafi samtökin ítrekað hótað að binda enda á hvalveiðar með einum eða öðrum hætti. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, sakar Kristján um að afvegaleiða umræðuna. „Í fyrsta lagi finnst mér það bara gríðarlega alvarlegt að það sé verið að saka ríkisforstjóra opinberar stofnunar um að vinna að óheilindum og óheiðarleika og sigla undir fölsku flaggi. Þetta er hins vegar þekkt aðferð fyrir þá sem vilja afvegaleiða umræðuna. Þá er frekar farið í persónulegar árásir en að ræða faglega um málin,“ segir hún og bætir við: „Hann er að afvegaleiða umræðuna. Í staðinn fyrir að ræða þetta á faglegu nótunum, bæði hvalveiðar og hvernig þær eru framkvæmdar og þessa gagnrýni sem beinist gegn honum og hans fyrirtæki. Matvælastofnun er eftirlitsstofnun og hvort sem hvalveiðar eru leyfðar eða ekki þá er það náttúrulega bara ákvörðun sem er tekin af ríkisstjórninni.“ Nám og starfsferill dregin í svaðið Kristján rakti jafnframt námsferil og starfsferil Hrannar og virtist gera lítið úr doktorsritgerð hennar. „Hún hefur skrifað doktorsritgerð og varið hana, sem er nú ekki mikið verk að gera,“ sagði Kristján í gær. Kristján hafði samband við fréttastofu í dag til að árétta að um misskilning hafi verið að ræða. Orðið „ekki“ hafi þvælst fyrir honum og var ætlun hans á engan hátt að gera lítið úr námsferli Hrannar heldur þvert á móti segja hversu hæf og vel menntuð hún væri. Hann hafi ætlað að segja að það væri ekkert lítið mál að skrifa doktorsritgerð og að það væri vel gert. Rannsóknir hennar og ferill væri sömuleiðis tilkomumikill. Að mati Hrannar dæma ummælin sig sjálf. „Ef það hentar hans málflutningi að draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið, þá held ég að hann verði bara að bera ábyrgð á þeim orðum. Ég stend alveg við það sem að ég hef gert í gegnum tíðina og er vel menntuð og vel fær í mínu starfi, þannig að þetta hefur ekki mikil áhrif á mig.“ Var ekki hjá Mast á meðan Brúneggjamálið var Kristján sagði Hrönn eiga að vita betur en svo að deila viðkvæmum upplýsingum og nefnir því til stuðnings Brúneggjamálið þar sem Hæstiréttur beindi því til MAST að leita skoðunar fyrirtækis áður en viðkvæmum upplýsingum er dreift. Slíkt væri í takt við vandaða stjórnsýsluhætti. Í málinu var þó fallist á að MAST hafi verið skylt að deila umræddum upplýsingum á grundvelli upplýsingalaga. Hrönn segir upplýsingagjöf ávallt matskennda. „Hún var í þessu svokallaða Brúneggjamáli og þar segir Hæstiréttur að hún skuli skoða sína stjórnsýslu,“ sagði Kristján í gær. „Þetta er náttúrulega alltaf metið í hverju tilfelli fyrir sig og sem sagt oft verið að horfa þá til viðskiptalegra hagsmuna aðilans sem er verið að biðja um gögnin frá og þá gögnin og hvers eðlis þau eru sem við erum að afhenda. Þannig að það er engan veginn sambærilegt að bera saman Brúneggjamálið við þessa upplýsingabeiðni og náttúrulega kannski líka ágætt að koma því á framfæri að Brúneggjamálið var algjörlega fyrir mína tíð hér hjá stofnuninni og ég hef ekki komið að því máli,“ segir Hrönn. Hún áréttar þá að hún hafi hvergi komið nálægt Brúneggjamálinu. „Ég var ekki starfsmaður Matvælastofnunar og vann ekki á stofnuninni á þeim tíma, þannig að það gerðist algjörlega fyrir mína tíð,“ segir hún og bætir við að stofnunin vinni ávallt faglega og út frá gögnum. „Við erum ekki að vinna samkvæmt okkar persónulegu skoðunum, heldur sambærilegt við lögregluna og fleiri eftirlitsstofnanir. Okkur ber bara að fylgja þeim lögum og reglum sem eru í landinu hverju sinni.“ Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Matvælastofnun Stjórnsýsla Hvalveiðar Sjávarútvegur Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Sjá meira
Kristján hafði samband við fréttastofu í dag til að árétta að um misskilning hafi verið að ræða. Orðið „ekki“ hafi þvælst fyrir honum og var ætlun hans á engan hátt að gera lítið úr námsferli Hrannar heldur þvert á móti segja hversu hæf og vel menntuð hún væri. Hann hafi ætlað að segja að það væri ekkert lítið mál að skrifa doktorsritgerð og að það væri vel gert. Rannsóknir hennar og ferill væri sömuleiðis tilkomumikill.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Matvælastofnun Stjórnsýsla Hvalveiðar Sjávarútvegur Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Sjá meira