Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Freyja Þórisdóttir skrifar 7. júlí 2026 10:41 Meira að segja reyndustu lögreglumenn áttu mjög erfitt með þá sjón sem blasti við þeim á vettvangi morðsins. Getty Móðir fjögurra ára gamals drengs sem fannst látinn í bænum Wyong í suðvesturhluta Ástralíu á laugardag, þann 4. júlí, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Lögregla rannsakar nú hvort mannát hafi átt sér stað í tengslum við atvikið en barnaverndaryfirvöld í fylkinu hafa einnig hafið sjálfstæða rannsókn vegna tilkynninga sem þeim bárust fyrir andlátið.
Barnaverndaryfirvöld í fylkinu fengu fjölda tilkynninga um að drengurinn sætti illri meðferð en síðasta tilkynningin barst þeim fyrir átján mánuðum, er breski fréttamiðillinn The Guardian greinir frá. Þar kemur einnig fram að ráðherra samfélags- og fjölskyldumála í fylkinu Nýja Suður-Wales, Kate Washington, hafi tilkynnt að sérrannsókn yrði hafin vegna málsins. Jafnframt fékkst staðfest að fólk á vegum ráðuneytisins hafði haft samband við fjölskylduna áður. Sydney er höfuðborg fylkisins sem Wyong, bærinn þar sem morðið var framið, er í.Vísir/Aðsend Móðir drengsins, sem er ónafngreindur, var úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morð á sunnudag. Í staðarmiðlum segir frá því að lögregla hafi hraðað sér á heimilið í Wyong eftir að 31 árs gömul kona gaf sig fram á lögreglustöðinni í bænum á laugardag. Lík barnsins fannst með verulega áverka á handleggjum inni á heimilinu. Haft er eftir lögreglustjóra í umdæminu, Chad Gillies, að lögregla og sjúkraflutningamenn hefðu staðið frammi fyrir „einstaklega átakanlegri sjón,“ jafnvel fyrir reyndustu lögreglumenn. Tóku sýni úr munni móðurinnar Í umfjöllun ástralska fjölmiðilsins ABC kemur fram að heimildarmenn innan lögreglunnar hafi staðfest að mannát verði meðal þess sem rannsókn þeirra snerti á í tengslum við morðið. Þá kemur einnig fram í frétt þeirra að samkvæmt dómskjölum hafi lögregla fengið bráðabirgðadómúrskurð til að framkvæma réttarrannsókn á munni konunnar áður en hún var ákærð. Úrskurðurinn hafi heimilað lögreglu að taka sýni úr munni konunnar og heimilað henni einnig að taka sýni af nöglum konunnar. Getað gert meira til að vernda drenginn Mikil umræða hefur skapast á svæðinu þess efnis að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir morðið með því að grípa fyrr inn í, sérstaklega í ljósi þess að fjölmargar tilkynningar bárust barnaverndaryfirvöldum. Þá er haft eftir Washington í frétt Guardian að málið væri „mjög flókið“ þegar hún var spurð hvort það hefði verið viðeigandi að barnið hefði verið áfram í umsjá móður sinnar eftir að tilkynningar bárust um öryggi þess. Washington sagði að þessi spurning, ásamt meintri fíkniefnaneyslu og geðheilbrigðisvanda móðurinnar, yrði hluti af rannsókninni. „Rannsóknin mun skoða fyrri samskipti ráðuneytisins við fjölskylduna, hvers vegna barnið bjó hjá móðurinni, hvort ákvarðanir og aðgerðir ráðuneytisins hafi verið viðeigandi og hvort ráðuneytið hefði getað gert meira til að vernda þetta barn,“ er haft eftir Washington.
Ástralía Lögreglumál Ofbeldi gegn börnum Börn og uppeldi Dómsmál Barnavernd Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira