Innlent

Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn hefði getað stytt sóttkvína með því að gangast undir sýnatöku við komuna til landsins.
Maðurinn hefði getað stytt sóttkvína með því að gangast undir sýnatöku við komuna til landsins. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur fengið áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í máli sínu á hendur íslenska ríkinu vegna sóttkvíar sem honum var gert að sæta í miðjum heimsfaraldri kórónuveiru. Maðurinn heldur því fram að hann hafi verið sviptur frelsi sínu með ólögmætum hætti og krefst tveggja milljóna króna í miskabætur. Ríkið hefur áður verið sýknað bæði í héraði og fyrir Landsrétti.

Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni mannsins segir að málið varði miskabótakröfu mannsins vegna stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis frá 24. nóvember 2021, þar sem honum hafi verið gert að sæta sóttkví í 14 daga frá komu hans til landsins. Kröfuna hafi maðurinn reist á ákvæði stjórnarskrár um að engan megi svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum.

Vissi að hann hefði losnað fyrr gegn því að gefa sýni

Vísir fjallaði um niðurstöðu Landsréttar á sínum tíma en rétturinn staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sýknu ríkisins af öllum kröfum mannsins.

Í dóminum segir að við komu til landsins hefði maðurinn ekki framvísað neinu þeirra vottorða sem tilgreind væru í reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19 faraldursins, en meðal þeirra væri viðurkennt vottorð um bólusetningu. Þá rakti Landsréttur að maðurinn hefði ekki farið eftir fyrirmælum reglugerðarinnar um að fara í PCR-sýnatöku við komu til landsins, en að fenginni neikvæðri niðurstöðu úr slíkri sýnatöku fimm dögum eftir komuna til landsins hefði hann verið laus úr sóttkví. 

Maðurinn hefði verið meðvitaður um að í almennum fyrirmælum sóttvarnalæknis fælist að hann yrði af þessum sökum að halda sóttkví í 14 daga frá komu til landsins. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að reglugerðin hefði í tilviki mannsins haft viðhlítandi stoð í sóttvarnalögum. Þá yrði við úrlausn málsins að líta til þess að skerðing á réttindum hans í formi sóttkvíar væri gerð til verndar lífi og heilsu fólks sem nyti verndar stjórnarskrár og alþjóðlegra sáttmála sem íslenska ríkið væri bundið af. Yrði því að játa löggjafanum og stjórnvöldum nokkurt svigrúm við mat á nauðsyn aðgerða. Niðurstaða héraðsdóms væri því staðfest.

Verulegt almennt gildi

Í ákvörðun Hæstaréttar segir að maðurinn hafi byggt á því að sakarefnið hafi verulegt almennt gildi. Málið varði lögmætisreglu, skýrleika lagaheimilda og mörk reglugerðarvalds þegar stjórnvald grípi til ráðstafana sem feli í sér frelsisskerðingu. Þá varði málið rétt einstaklings til leiðbeininga og raunhæfs aðgangs að dómstólum þegar honum er gert að sæta sóttkví. 

Maðurinn byggi á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur og gangi gegn stjórnarskrá og almennum lögum. Loks varði úrslit málsins sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans.

Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að að virtum gögnum málsins verði litið svo á að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi þannig að fullnægt sé skilyrðum laga um meðferð einkamála. Beiðni um áfrýjunarleyfi sé því samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×