Viðskipti innlent

„Lukku­hjól“ Byko talið villandi fyrir neyt­endur

Kjartan Kjartansson skrifar
Þó að lukkuhjól Byko hafi verið með fimm vinningum á átta reitum var vinningum raunverulega útdeilt með slembivali tölvualgríms og aðeins ellefu vinningar voru í boði.
Þó að lukkuhjól Byko hafi verið með fimm vinningum á átta reitum var vinningum raunverulega útdeilt með slembivali tölvualgríms og aðeins ellefu vinningar voru í boði. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa telur að Byko hafi brotið lög með villandi framsetningu á verðlaunaleik sem fyrirtækið kallaði „lukkuhjól“. Neytendur hafi mátt hafa réttmætar væntingar um mun meiri sigurlíkur en raunin var.

Á svonefndu lukkuhjóli sem Byko auglýsti í nóvember í fyrra og var aðgengilegt á netinu voru átta reitir og á fimm þeirra voru vinningar á borð við kaffivél, borvél og gjafabréf.

Þrátt fyrir útlitið á hjólinu voru sigurlíkur þátttakenda þó mun minni en fimm á móti átta. Vinningshafar voru raunverulegar valdir með sjálfvirku slembivali tölvukerfis. Alls voru ellefu vinningar í boði á þeim mánuði sem leikurinn var í gangi.

„Lukkuhjól Byko – snúðu til að vinna“ - úr auglýsingu Byko fyrir lukkuhjólið

Þegar Neytendastofa gerði fyrst athugasemdir við framsetningu leiksins í janúar og að fyrirtækið kynni að hafa brotið lög neitaði það allri sök. Síðar viðurkenndi það að „samspil sjónrænnar framsetningar leiksins og raunverulegrar virkni“ hefði getað verið skýrari.

Engar rangar upplýsingar hefðu þó verið gefnar um eðli leiksins eða framkvæmd hans. Byko benti einnig á að þátttakendur hefðu ekki þurft að greiða fyrir eða þurft að skuldbinda sig til kaupa á vörum.

Söfnuðu persónuupplýsingum þátttakenda

Neytendastofa benti á að ekkert hefði komið fram í auglýsingum eða skilmálum leiksins að vinningum yrði útdeilt með slembivali og að ekki hefði verið upplýst um fjölda vinninga. Þó að komið hefði fram á samfélagsmiðlareikningi Byko að vinningshafar yrðu dregnir út af handahófi væri ekki hægt að ætlast til þess að þær upplýsingar hefðu borist öllum þátttakendum.

Álit stofnunarinnar var að framsetning leiksins væru ekki í samræmi við raunverulega virkni lukkuhjólsins. Þátttakendur í honum hefðu mátt hafa réttmætar væntingar um að líkur á að lenda á vinningsreit væru fimm á móti átta. Framsetningin hefði þannig verið villandi gagnvart neytendum.

Þó að þátttakendur hefðu ekki skuldbundið sig fjárhagslega hafi Byko safnað persónuupplýsingum um þá sem tóku þátt í leiknum.

Niðurstaðan var að Byko hefði með framsetningu lukkuhjólsins og skorti á upplýsingum brotið lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×