Viðskipti innlent

Ráðnir for­stöðu­menn hjá OK

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason.
Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason.

Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason hafa verið ráðnir forstöðumenn hjá tæknifyrirtækinu OK.

Í tilkynnigu segir að Gunnar Ingi hafi tekið við starfi forstöðumanns innviðasölu hjá OK. 

„Hann býr yfir víðtækri reynslu af sölu- og markaðsmálum á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði og kemur til félagsins frá alþjóðlega dreifingaraðilanum Exclusive Networks þar sem hann starfaði sem sölustjóri á Íslandi. Áður gegndi hann stöðu sölu- og markaðsstjóra Premis sem sameinaðist Opnum Kerfum undir merkjum OK. Gunnar Ingi hefur einnig víðtæka stjórnunarreynslu, meðal annars sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar og áður framkvæmdastjóri Heimkaup.

Andri Tryggvason hefur tekið við starfi forstöðumanns netlausna hjá OK. 

Hann býr yfir áratugareynslu af net- og tæknilausnum, bæði sem sérfræðingur og stjórnandi. Andri kemur til OK frá Advania þar sem hann gegndi meðal annars stöðu deildarstjóra netrekstrar. Andri hefur einnig víðtæka reynslu af netkerfum og netlausnum, meðal annars hjá Sensa þar sem hann leiddi teymi netkerfisfræðinga,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×