Kristín setti heimsmet og vann brons á HM: „Stolt af sjálfri mér“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2026 08:31 Kristín Þórhallsdóttir með bronsverðlaunin sem hún vann á heimsmeistaramótinu. @kraftlyftingasamband_islands Dýralæknirinn sterki Kristín Þórhallsdóttir vann til bronsverðlauna og setti tvö heimsmet á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í Litáen um helgina.
Kristín er ríkjandi Evrópumeistari og keppti í -84 kílóa flokknum. Hún átti einn sinn allra besta dag á ferlinum og lét ekki aldurinn trufla sig þar en Kristín er 42 ára gömul. Kristín leyfði fylgjendum sínum að fá smá innsýn í hvernig keppnin gekk frá sjónarhóli hennar sjálfrar. Brött eftir daginn „Ég er bara brött eftir daginn og er ánægð með hvernig til tókst í gær. Ég er sátt með árangurinn minn og bara stolt af sjálfri mér,“ sagði Kristín á samfélagsmiðlum sínum. „Ég ætlaði mér aðeins meira í hnébeygjunni því beygjuæfingar hafa gengið svo vel að mér fannst vera rými fyrir bætingu þar,“ sagði Kristín en það var smá vesen í byrjun. „Í fyrstu lyftu í beygjunni þá var hérna rekkahæðin mín röng og það tók smá tíma að breyta því. Ég var að reyna að koma því til skila að þetta væri rangt og ég hélt ég væri að falla á tíma meðan þeir voru að laga rekkahæðina, því við fáum bara eina mínútu á pallinum,“ sagði Kristín. Var í örlitlu uppnámi „Ég heyrði ekki tilkynninguna um að þeir hefðu endurstillt klukkuna þannig að ég fékk aftur mínútuna. Þannig að ég hélt, eins og ég segi, að ég væri að falla á tíma og fór svolítið óstöðug inn í lyftuna af því að ég var að flýta mér og hún var svolítið þung og ég var í svona örlitlu uppnámi,“ sagði Kristín „Það var því miður aðeins tónninn áfram í beygjunni, að ég væri svona lengi að ná mér niður eftir þetta uppnám, lét þetta aðeins slá mig út af laginu. Við tókum þarna minna stökk frá annarri upp í þriðju beygju en síðasta beygjan varð síðan eiginlega besta beygjan. Hún var eiginlega bara léttasta beygjan, fannst mér, þannig að það var aðeins meira inni þar,“ sagði Kristín. View this post on Instagram A post shared by Kraftlyftingasamband Íslands (@kraftlyftingasamband_islands) Í þriðju hnébeygjunni negldi Kristín 225 kílóa lyftu örugglega en sú lyfta tryggði henni brons í hnébeygju. Hún lyfti svo mest 120 kílóum í bekkpressu og fór síðan upp með 230 kíló í lokalyftunni í réttstöðulyftu. Sú lyfta var nýtt heimsmet í öldungaflokki 1 (M1) og samanlagður árangur, 575 kg, var einnig nýtt heimsmet í samanlögðu í þessum aldursflokki. Bara fimm kílóum frá hennar allra besta „575 kíló var tótalið mitt, sem er bara fimm kílóum frá mínu allra besta tótali. Minn besti samanlagði árangur á ferlinum er 580 kíló sem ég náði 2022 og skilaði mér silfri á HM. 575 í dag er sjötta sæti sem sýnir bara hvað hefur orðið gríðarleg þróun í sportinu og stelpurnar eru að verða mikið, mikið sterkari. Ég er stolt af minni frammistöðu,“ sagði Kristín. „Ég náði öllum lyftunum mínum, þetta voru níu gildar af níu tilraunum. Það er alltaf góð tilfinning að maður skilji ekkert eftir á pallinum. Ég náði öllu úr mér sem dagsformið mitt bauð upp á þennan dag og ég er bara gríðarlega stolt og ánægð með þá frammistöðu,“ sagði Kristín. Fyrsta sinn sem þjálfarinn er með á móti „Mér til aðstoðar voru Auðunn Jónsson og Jason Tremblay. Jason er þjálfarinn minn sem býr til prógrammið fyrir mig og býr í Kanada. Þetta var í fyrsta sinn sem hann var að hjálpa mér á móti og þeir tveir, Auðunn og hann, unnu gríðarlega vel saman,“ sagði Kristín. „Þeir þekkja mig báðir mjög vel sem íþróttamanneskju. Jason sér allar upptökur af öllum æfingunum mínum og Auðun hitti ég náttúrulega reglulega á Íslandi þegar ég er að æfa með honum í undirbúningi fyrir mót. Það er mjög gott að hafa fólk með sér sem þekkir mann vel og gott að taka ákvarðanir. Því þegar maður er sjálfur að keppa þá er maður bara í sínu actioni og á kannski erfitt með að takast á við einhverjar ákvarðanir sem þarf að taka, en þeir lásu mig alveg rétt í gær,“ sagði Kristín. „Þeir sáu hvað ég átti inni, þannig að meldingarnar fyrir öllum lyftunum í gær voru réttar. Mér tókst að ná þarna bætingu í mastersflokki, setti heimsmet í réttstöðulyftu og samanlögðu, þannig að það er bara gríðarlega flott. Og ég bara átti mjög góðan dag og skemmti mér vel,“ sagði Kristín. View this post on Instagram A post shared by IPF Powerlifting (@theipf)
Kraftlyftingar Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Sjá meira