Fótbolti

Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálf­leik í toppslagnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Amin Cosic og félagar urðu að sætta sig við tap í toppslagnum á móti Bodö/Glimt.
Amin Cosic og félagar urðu að sætta sig við tap í toppslagnum á móti Bodö/Glimt. Getty/Charlotte Wilson

Bodö/Glimt hélt sér á lífi í titilslagnum í norska fótboltanum með 3-2 sigri á Íslendingaliði Viking í risaslag í kvöld.

Viking hefði getað náð sex stiga forskoti á Bodö/Glimt með sigri en nú eru liðin jöfn að stigum þegar fimm umferðir eru eftir.

Íslenski unglingaliðsmaðurinn Amin Cosic var á bekknum hjá Viking en kom inn á völlinn í uppbótartíma.

Öll fimm mörkin í leiknum voru skoruð í fjörugum fyrri hálfleik.

Bodö/Glimt komst í 2-0 en gestirnir náðu að jafna með tveimur mörkum á sjö mínútna kafla. Jens Petter Hauge kom Bodö/Glimt aftur yfir rétt fyrir hálfleik.

Í hálfleik lenti þjálfurum liðanna saman sem endaði með því að báðir fengu að líta rauða spjaldið.

Sjónvarpsvélarnar sýndu Kjetil Knutsen, þjálfara Bodö/Glimt, kippa í derhúfu Morten Jensen, þjálfara Vikings, sem var allt annað en sáttur með það.

Viking fékk vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik en myndbandsdómarar gerðu athugasemd og dómarinn dró dóm sinn til baka.

Hvorugu liðinu tókst að skora í seinni hálfleik og heimamenn fögnuðu mikilvægum sigri í leikslok. Þeir eru enn á fullu í baráttunni um Noregsmeistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×