Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Áróra L Davíðsdóttir skrifar 18. júní 2026 20:51 Valgerður Árnadóttir er formaður Hvalavina. Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð.
Hvalveiðiskipið Hvalur 9 sigldi úr höfn rétt fyrir klukkan fimm í dag með Hólmstein Harðarson sem sat í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum um borð. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Hólmsteinn skipulagði mótmælin einn. Rætt var við Valgerði Árnadóttur, formann Hvalavina, í kvöldfréttum á Sýn en þar segir hún Hólmstein hafa verið skráður farþegi skipsins að honum óvitandi. Honum hafi ekki verið tjáð í hvaða tilgangi hann hafi gefið upp persónuupplýsingar þegar hann var beðinn um þær. Hólmsteinn hafi séð Hval 8 siglt úr höfn í morgun og hafi þá ákveðið að fara um borð í Hval níu og fara upp í mastur skipsins. Valgerður segir lögmenn sem hún hafi rætt við segja atvikið vera brot á siglingarlögum og að málið sé mjög alvarlegt. Katrín Oddsdóttir, lögmaður, hafi verið í samskiptum bæði við lögreglu og Landhelgisgæslu fyrr í dag og séu báðar upplýstar um málið. Valgerður segist hafa beðið lögreglu um að skerast í leikinn og að hún vilji að bátarnir séu stöðvaðir og þeir sem komi að þessari ákvörðun verði yfirheyrðir. Hún segir ákvörðunina um að sigla af stað með mótmælandann um borð koma beint frá Kristjáni Loftssyni, eiganda Hvals hf., og segir atvikið alfarið á hans ábyrgð. Hann hafi ekki óskað eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja Hólmstein úr mastri skipsins áður en skipið sigldi úr höfn með mótmælandann um borð.
Hvalir Hvalveiðar Hvalfjarðarsveit Reykjavík Hafnarmál Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira