Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Hafró telur að kanna þurfi áhrif magnesíumverkamiðju á Grundartanga á loftslag þar sem hún gæti dregið úr getu sjávar til þess að taka upp koltvísýring og þannig verið „andstæða loftslagsverkfræðilegra aðgerða“. Fyrirtækið segir starfsemina ekki eiga að hafa áhrif á kolefnisbindingu sjávar. Viðskipti innlent 27.4.2026 13:20
„Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Oddvitaefni Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit segir það ekki tortryggilegt að hann hafi sagt upp sem bæjarstjóri Akraness til að fara í framboð. Hann sé ekki í framboði til að sameina sveitarfélögin eins og mótframbjóðendur hafa gefið í skyn. Innlent 27.4.2026 12:47
Endurræsing hafin hjá Norðuráli Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði. Viðskipti innlent 24.4.2026 09:47
Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Allt tiltækt slökkvilið á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit var kallað út á fimmta tímanum í dag eftir að tilkynning barst um sinubruna undir Akrafjalli. Innlent 19. febrúar 2026 17:33
Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðju á Grundartanga. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og enginn peningur fer á milli aðila. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga. Viðskipti innlent 13. febrúar 2026 10:39
Hvalfjörður er líka okkar fjörður Enn einu sinni þurfa íbúar Kjósarhrepps að verjast uppbyggingu á mengandi iðnaði í Hvalfirði og að þessu sinni er það gríðarstórt „landeldi“ á laxi sem við nánari athugun er ekki það jákvæða landeldi sem virðist við fyrstu sýn. Skoðun 18. janúar 2026 14:01
Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Í Skipulagsgátt stjórnvalda liggur nú til umsagnar umhverfismatsskýrsla vegna fyrirhugaðs 28.000 tonna svokallaðs landeldis Aurora fiskeldis í Hvalfirði. Um er að ræða aðila sem hafa verið áberandi í sjókvíaeldi hér á landi, með fjármagn og rekstrarlíkan sem að stórum hluta á rætur að rekja til Noregs. Skoðun 26. desember 2025 07:02
Kirkjan skuldar Kristni ekki eftir allt saman Landsréttur sýknaði í dag Þjóðkirkjuna af kröfum Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, og sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði dæmt kirkjuna skaðabótaskylduna. Innlent 27. nóvember 2025 22:25
Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Nýsköpunarfyrirtæki með stór áform um magnesíumvinnslu úr sjó stefnir að því að prófa framleiðsluna í fyrsta skipti hér á landi á næsta ári. Hvarfatankur sem íslenskur verkfræðingur hefur þróað á að vera lykilinn að því að vinna málminn með mun umhverfisvænni og skilvirkari hætti en tíðkast hefur til þessa. Viðskipti innlent 26. nóvember 2025 10:33
Treystir á að Norðurál borgi Forstjóri Orkuveitunnar segir hegðun Norðuráls mikil vonbrigði en fyrirtækið hefur sagst ekki ætla að greiða fyrir orku sem það nýtti ekki eftir bilanir á Grundartanga. Bæði hann og borgarstjóri ætlast þó til þess að Norðurál greiði á endanum. Innlent 25. nóvember 2025 14:16
Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Norðurál hefur tilkynnt Orkuveitunni um greiðslufall vegna endurtekinna bilana í álveri þess á Grundartanga. Orkuveitan gerir ráð fyrir lægri rekstrarhagnaði í ár vegna þessa og að arðgreiðslur lækki um tvo milljarða króna á næsta ári. Forstjóri Orkuveitunnar gagnrýnir aðgerðir Norðuráls og segir fyrirtækinu bera að greiða fyrir alla umsamda orku óháð því hvort hún sé nýtt. Viðskipti innlent 24. nóvember 2025 17:30
„Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Forstjóri Elkem á Íslandi lýsir því sem varnarsigri að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætli að eiga í samráði við íslensk og norsk stjórnvöld um áhrif verndartolla á kísilmálm. Áhrif aðgerðanna á fyrirtækið ráðist af viðbrögðum markaða. Viðskipti innlent 18. nóvember 2025 12:13
Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu Forstjóri Elkem á Íslandi segir mikla óvissu ríkja um verndarráðstafanir Evrópusambandsins á íslenskan og norskan kísilmálm og lítið sé hægt að geta sér til um ákvörðun sambandsins. Raungerist ráðstafanirnar hafi hún mestar áhyggjur af getu til að bregðast við áföllum á öðrum mörkuðum. Viðskipti innlent 17. nóvember 2025 12:51
Fundinum mikilvæga frestað Fundi þar sem greiða átti atkvæði um tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um verndarráðstafanir vegna kísilmálms hefur verið frestað fram á mánudag. Samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnarinnar verða íslenskir og norskir framleiðendur kísilmálms ekki undanþegnir verndarráðstöfununum. Viðskipti innlent 14. nóvember 2025 15:53
Grafalvarleg staða Grafalvarleg staða er að teiknast upp vegna bilunarinnar hjá Norðuráli, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Samkvæmt nýjustu áætlunum fyrirtækisins er ekki gert ráð fyrir að framleiðsla verði komin í fullan gang fyrr en eftir ár. Viðskipti innlent 7. nóvember 2025 13:06
Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins. Viðskipti innlent 7. nóvember 2025 08:24
Telja viðgerð geta tekið allt að ár Forsvarsmenn Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, telja að viðgerð vegna alvarlegrar bilunar í álverinu á Grundartaka gæti tekið allt ellefu til tólf mánuði. Þangað til bilunin hefur verið löguð er framleiðslan í álverinu einungis þriðjungur af því sem hefðbundið er. Viðskipti innlent 6. nóvember 2025 23:45
Engar uppsagnir í farvatninu Enn sem komið er eru engin áform uppi um uppsagnir starfsmanna Norðuráls á Grundartanga, þrátt fyrir alvarlega bilun sem kom upp í verksmiðjunni í síðustu viku. Þá stendur ekki annað til en að verksmiðjan verði rekin á fullum afköstum þegar viðgerðum hefur verið lokið. Innlent 30. október 2025 06:54
Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Afleiðingar bilunar í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga gætu byrjað að komast á hreint í næstu viku ef línur skýrast þá um hvenær nýr búnaður fæst til landsins. Viðskipti innlent 27. október 2025 10:24
Verðmætasköpunarlaust haust Forsætisráðherra hefur frá fyrsta degi ítrekað sagt að efnahagsmálin séu áherslumál vinstri stjórnarinnar númer eitt, tvö og þrjú hjá ríkisstjórninni. Í humátt hafa svo fylgt frasar á borð við það að ríkisstjórnin muni „gera meira hraðar“ ef árangurinn lætur á sér standa. Skoðun 24. október 2025 11:32
„Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins, segir stöðuna á Grundartanga grafalvarlega, og fyrir samfélagið í heild. „Norðurál er eitt stærsta útflutningsfyrirtæki þjóðarinnar og útflutningsverðmætin sem tapast geta verið allt að sex milljarðar á mánuði,“ segir Sigurður sem fór yfir málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Viðskipti innlent 23. október 2025 21:00
„Þá erum við að tala um 60 milljarða í töpuðum útflutningstekjum“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir félagsfólk kvíðið vegna stöðu Norðuráls á Grundartanga. Óljóst er hve langan tíma mun taka að koma framleiðslu fyrirtækisins í fullan gang á ný og forsætisráðherra segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23. október 2025 19:28
Viðgerð muni taka einhverja mánuði Forstjóri Norðuráls segir mikið tjón blasa við eftir að starfsemi fyrirtækisins var stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga í gær. Hann segir einhverja mánuði þar til starfsemi verði komin í eðlilegt horf á ný. Innlent 22. október 2025 17:50
Norðurál stendur undir um fjórtán prósent af öllum tekjum Orkuveitunnar Norðurál á Grundartanga, sem þarf núna að óbreyttu að stöðva framleiðsluna um tvo þriðju um margra mánaða skeið vegna bilunar, keypti meðal annars raforku af Orkuveitu Reykjavíkur fyrir samtals um níu milljarða í fyrra, en fyrirtækið er sömuleiðis stór viðskiptavinur hjá HS Orku og Landsvirkjun. Innherji 22. október 2025 16:11