Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2026 11:36 Brúin verður átta metrum yfir sjávarmáli. Vegagerðin Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef þeirra en útboðið stendur til klukkan 14, 14. júlí á þessu ári. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að brúin verði af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu, nema hún verði bæði lengri og hærri en þær, eða 210 metra löng og 25 metrar á hæð. Brúin verður átta metrum yfir sjávarmáli og því verður hægt að sigla undir hana. Svona mun hún líta út að vetrarlagi. Vegagerðin Þá mun sérstaða brúarinnar felast í því að hún verður í einu hafi, án millistöpla, yfir sjó þar sem mikill munur er á flóði og fjöru og sterkir sjávarstraumar algengir. Í tilkynningu kemur jafnframt fram að nokkrir möguleikar séu við byggingu brúar yfir sjó. Brúin hafi verið hönnuð þannig að með styrkingum sé hægt að draga eða ýta stálvirkinu í heilu lagi yfir brúarstæðið. Það væri þá gert með bráðabirgðaundirstöðum á 70 metra bili eða nota pramma, sem hægt er að færa til, sem undirstöðu. Stálvirkið væri þá smíðað í hlutum, flutt og sett saman á verkstað. Vestfjarðarveg um Gufudalssveit má sjá hér á kortinu ásamt fleiri verkefnum Vegagerðarinnar í sumar: Sumarvegaframkvæmdir Skrunið inn og smellið á fletina til að sjá upplýsingar um verkefnin. Aðrar aðferðir hafa einnig verið notaðar, eins og hreinlega að flytja brúna (stálvirkið) í heilu lagi á pramma frá verksmiðju að verkstað og setja á stöpla af prammanum. Eftir að brúin er komin á sinn stað er komið að brúargólfinu, fyrst með forsteyptum einingum og síðan útlagðri steypu sem yfirborð og hluta af burði brúarinnar. Fjallað var um mannvirkið í kvöldfréttum Sýnar. Þetta er lokaáfanginn í endurnýjun Vestfjarðvegar um Gufudalssveit, vegagerð sem var í raun strand í nærri tvo áratugi vegna deilna um Teigsskóg þar til höggvið var á hnútinn fyrir sex árum. Síðan er búið að þvera Þorskafjörð, vegurinn er kominn um sjálfan Teigsskóg, búið er að leggja af veginn um Hjallaháls en eftir er að ljúka brúagerð yfir tvo firði, Gufufjörð og Djúpafjörð. Vegfarendur þurfa því enn að aka yfir Ódrjúgsháls en þá reynslu má upplifa hér í sjónvarpsfréttinni:
Vegagerð Umferðaröryggi Umferð Skipulagsmál Ísafjarðarbær Reykhólahreppur Samgöngumál Samgönguáætlun Vesturbyggð Súðavíkurhreppur Bolungarvík Tengdar fréttir Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. 24. mars 2026 21:00 Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, tefst um þrjá mánuði hið minnsta. Ástæðan er óleyst kærumál vegna verkútboðsins en Vegagerðin hafnaði tveimur lægstu tilboðunum. 13. ágúst 2025 13:31 Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í eitt af stærstu útboðsverkum ársins, smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Þess í stað hefur Vegagerðin ákveðið að ganga til samninga við norskan verktaka, sem átti þriðja lægsta boð. Ákvörðunin hefur verið kærð til Úrskurðarnefndar útboðsmála. 3. júlí 2025 16:54 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. 24. mars 2026 21:00
Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, tefst um þrjá mánuði hið minnsta. Ástæðan er óleyst kærumál vegna verkútboðsins en Vegagerðin hafnaði tveimur lægstu tilboðunum. 13. ágúst 2025 13:31
Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í eitt af stærstu útboðsverkum ársins, smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Þess í stað hefur Vegagerðin ákveðið að ganga til samninga við norskan verktaka, sem átti þriðja lægsta boð. Ákvörðunin hefur verið kærð til Úrskurðarnefndar útboðsmála. 3. júlí 2025 16:54