Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11.6.2026 11:36
Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ „Það rekur hér hvert kjaftshögg annað,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari á Hóteli Breiðavíkur við Látrabjarg. Hún lenti nýverið í klóm netþrjóta sem bjóða upp á norðurljósaferðir í júlí í nafni hótelsins og segir sömuleiðis að það rigni inn afbókunum vegna óvissu með Breiðafjarðarferju. Innlent 10.6.2026 12:45
„Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ „Það segir sig sjálft að þú rekur ekki hótel í Flatey ef það eru ekki ferjusiglingar,“ segir einn eigenda Hótels Flateyjar. Innlent 8.6.2026 11:03
Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. Innlent 12. maí 2026 20:31
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. Innlent 24. mars 2026 21:00
Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Systur voru á ferð yfir Klettsháls á Vestfjörðum þegar bíllinn valt af veginum og þær enduðu á hlið. Bíllinn eyðilagðist en þær sluppu með minni háttar meiðsl. Eftir slysið voru þær fastar í bílnum en náðu ekki að hringja í neyðarlínuna vegna lélegs símsambands. Innlent 21. febrúar 2026 21:16
Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa ráðist á annan mann í matsal vinnubúða verktakafyrirtækis við Gufufjörð í Reykhólahreppi í febrúar síðastliðnum. Innlent 26. desember 2025 08:45
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11. desember 2025 21:51
Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Innviðaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi með tillögum að víðtækum breytingum á sveitastjórnarlögum. Meðal tillaga er lögfesting á 250 íbúa lágmarki sveitarfélaga og er stefnt að sameiningu fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átta sveitarfélög eru undir lágmarkinu. Innlent 23. september 2025 09:43
Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur hafnað beiðni Hótel Flateyjar um að breytingar verði gerðar á deiliskipulagi svo hægt verði að byggja við hótelið. Sveitarstjóri segir að tillagan þurfi að falla betur að athugasemdum Minjastofnunar eigi hún fram að ganga. Innlent 21. ágúst 2025 23:31
Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, tefst um þrjá mánuði hið minnsta. Ástæðan er óleyst kærumál vegna verkútboðsins en Vegagerðin hafnaði tveimur lægstu tilboðunum. Innlent 13. ágúst 2025 13:31
Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Vindorkuver á fjöllunum ofan Gilsfjarðar á Vestfjörðum fær grænt ljóst, samkvæmt tillögu sem ráðherra umhverfis- og orkumála hyggst leggja fram á Alþingi í haust. Þetta gæti orðið fyrsti stóri vindmyllugarðurinn á Íslandi sem rís á vegum einkaaðila. Innlent 24. júlí 2025 21:21
Hóteleigendur vilja byggja á verndarsvæði og ábúendur ekki sáttir Ábúendur í Flatey lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri stækkun Hótels Flateyjar sem hefur óskað eftir að breytingar verði gerðar á deiliskipulagi á friðlýstu landi. Innlent 24. júlí 2025 11:43
Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Með því breytir hann tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar og þetta er í fyrsta skipti sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk. Innlent 7. júlí 2025 14:03
Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Vegagerðin hefur hafnað tveimur lægstu tilboðum sem bárust í eitt af stærstu útboðsverkum ársins, smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Þess í stað hefur Vegagerðin ákveðið að ganga til samninga við norskan verktaka, sem átti þriðja lægsta boð. Ákvörðunin hefur verið kærð til Úrskurðarnefndar útboðsmála. Innlent 3. júlí 2025 16:54
Sveitastjóraskipti í Reykhólahreppi Ingibjörg Birna Erlingsdóttir hefur sagt af sér sem sveitarstjóri Reykhólahrepps og lætur af störfum í júní. Ólafur Þór Ólafsson hefur verið ráðinn í hennar stað. Innlent 28. maí 2025 20:05
Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Vörubílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi átti lægsta boð í smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Tilboð Selfyssinga hljóðaði upp á 1.626 milljónir króna, sem er 0,1 prósenti yfir kostnaðaráætlun. Innlent 29. apríl 2025 18:54
Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum. Innlent 20. apríl 2025 10:10
Ákærður fyrir að aka stolnum bíl út af skakkur og dauðadrukkinn Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að aka stolnum bíl undir miklum áhrifum áfengis og kannabiss. Innlent 4. apríl 2025 16:21
Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit Vegagerðin hefur boðið út smíði tveggja steyptra brúa í Gufudalssveit, yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Gert er ráð fyrir verklokum eftir eitt og hálft ár, haustið 2026. Innlent 14. mars 2025 13:00
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11. mars 2025 23:17
Sex verslanir fá sautján milljónir í ríkisstyrk Sex verslanir í dreifbýli fá úthlutað samtals sautján milljónum í verkefnastyrk frá hinu opinbera sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022 til 2036. Innlent 10. desember 2024 10:08
Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Vestfjarða og Norðvesturkjördæmis, krefst þess að samgönguyfirvöld skýri það undanbragðalaust fyrir komandi alþingiskosningar hversvegna vegaframkvæmdir í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði stöðvuðust og hvort fjármunir, sem Alþingi hafði ráðstafað í verkin, hafi verið fluttir í Hornafjarðarfljót. Innlent 20. nóvember 2024 11:50
Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. Innlent 28. júní 2024 14:36