Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 21:16 Systurnar Hildur Ylfa og Sara segja að það hafi verið eins og einhver hefði vakið yfir þeim, þar sem þær sluppu með minni háttar meiðsl eftir bílveltu. Samsett Systur voru á ferð yfir Klettsháls á Vestfjörðum þegar bíllinn valt af veginum og þær enduðu á hlið. Bíllinn eyðilagðist en þær sluppu með minni háttar meiðsl. Eftir slysið voru þær fastar í bílnum en náðu ekki að hringja í neyðarlínuna vegna lélegs símsambands.
Systurnar Hildur Ylfa og Sara Eyþórsdætur, voru á leið til Reykjavíkur frá Ísafirði laugardaginn 14. febrúar. „Það var búið að vera fín færð þar til við komum á Klettshálsinn og þá var kominn svolítill snjór, maður sá ekki að það var glerhálka. Ég hægi mikið á mér og það er bíll fyrir framan mig sem alveg brunar í gegnum hálkuna,“ segir Hildur. Þær hafi síðan keyrt fram á hálkublett og lýsir Hildur því að sama hvað hún gerði gat hún ekki haldið bílnum á veginum, þrátt fyrir að bíllinn væri á nagladekkjum. „Við rennum út af, við vissum ekki að við hefðum farið í veltu, þetta gerðist svo fljótt að um leið og þetta gerðist þá vorum við í nokkrar mínútur að hugsa hvað við ættum að gera næst.“ Þær systur lágu á hlið þegar vegfarendur bar að.Aðsend Hildur segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að bíllinn valt fyrr en hún sá myndir af gjöreyðilögðum bílnum. Stálheppnar að sjúkraflutningamann bar að Hildur segir þær báðar hafa verið nokkrar mínútur að átta sig á aðstæðunum. Hún reyndi að hringja í neyðarlínuna en gat það ekki þar sem ekkert símasamband var á svæðinu. Bíllinn var á hlið, Hildur nær jörðinni og Sara ofar, og þær komust ekki út. Hildur deildi myndskeiði af þeim úr bílnum og skrifar undir hversu mikilvægt það sé að nota belti. @hildurylfaa Beltin bjarga❤️👏🏻það er ekkert grín að keyra í glerhálku. ♬ scott street x i know the end - 𝘿𝙞𝙢𝙚𝙣𝙨𝙞𝙑𝙞𝙗𝙚𝙨🎧 „Við vorum stálheppnar að það kemur bíll fimm mínútum seinna, sér okkur og stoppar og kom og hjálpar okkur út úr bílnum,“ segir Hildur. Í bílnum var ungt par sem opnaði dyrnar farþegamegin. Það reyndist hins vegar erfitt að losa Söru án þess að hún myndi detta á systur sína. Bíllinn var í rústi alls staðar nema þar sem við vorum, segir Hildur.Aðsend „Ég nota fæturna mína og spyrni henni upp. Ég tek síðan í handfangið á hliðinni og næ að klifra sjálf út. Þegar við erum komnar út er komið annað par sem er á leið til Ísafjarðar og konan var sjúkraliði. Hún bauð okkur verkjalyf en við afþökkuðum enda fundum við ekki fyrir verkjum fyrr en nokkrum tímum seinna.“ Þriðja parið kom þeim til aðstoðar nokkrum mínútum seinna en þar um borð var sjúkraflutningamaður frá Reykjavík. Hildur segir þær afar heppnar að fólk með reynslu hafi komið þeim til aðstoðar. Rétt potað Hildur og Sara fengu far nokkra leið til að komast í símasamband og keyrði síðan föðurbróðir þeirra systurnar til Reykjavíkur. Þar fóru þær á bráðamóttöku Landspítalans „Þá fengum við að vita að við værum tognaðar í hálsi og herðum og ég í brjóstkassanum líka. Ég er góð þar núna en finn enn rosalega í hálsinum og herðunum en þegar við förum upp á bráðamóttöku þá læt ég vita að ég vilji láta kíkja á systur mína fyrst þar sem hún var í heilaskurðaðgerð í fyrra,“ segir Hildur. Hún var heldur óánægð með þjónustuna á bráðamóttökunni og segir læknana hafa „rétt potað“ í þær og útskrifað án verkjalyfja. Hildur fór sjálf á Læknavaktina nokkrum dögum síðar og fékk uppáskrifuð verkjalyf vegna meiðslanna.
Samgönguslys Umferðaröryggi Reykhólahreppur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Sjá meira