Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. Innlent 11.6.2026 11:44
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11.6.2026 11:36
Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ „Það rekur hér hvert kjaftshögg annað,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari á Hóteli Breiðavíkur við Látrabjarg. Hún lenti nýverið í klóm netþrjóta sem bjóða upp á norðurljósaferðir í júlí í nafni hótelsins og segir sömuleiðis að það rigni inn afbókunum vegna óvissu með Breiðafjarðarferju. Innlent 10.6.2026 12:45
Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Bæjarstjóri Vesturbyggðar er ósáttur við samráðsleysi þegar tekin er ákvörðun um að sigla ferjunni Baldri til Vestmannaeyja þar sem henni er ætlað að leysa af Herjólf. Tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða eru strandaglópar í Flatey vegna brotthvarfs Baldurs. Innlent 30. apríl 2026 15:49
Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir hættubrot, með því að gefa samstarfsmanni sínum í fiskeldisstöðinni í Þverá í Vatnsfirði í Vesturbyggð köku sem innihélt ótilgreint magn tetróhýdrókannabínóls, virka efnisins í kannabis. Innlent 30. apríl 2026 14:37
Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Starlink-tengingu hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án símasambands. Innlent 29. apríl 2026 19:26
Fékk í skrúfuna skammt frá landi Skömmu fyrir hádegi tilkynnti skipstjóri lítils fiskibáts sem var staddur utarlega í Patreksfirði, um að hann hefði fengið veiðarfæri í skrúfuna og væri því aflvana. Innlent 24. apríl 2026 13:08
„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum. Innlent 21. apríl 2026 20:30
Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Aðalsteinn Leifsson, guðfræðinemi og fyrrverandi ríkissáttasemjari, tók upp millinafnið Lúther fyrir ekki svo löngu síðan. Nafnabreytingin tengist ekkert guðfræðináminu sem Aðalsteinn byrjaði nýverið í heldur er það virðingavottur við afa hans, Aðalstein Lúther Indriðason. Lífið 27. mars 2026 16:27
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. Innlent 24. mars 2026 21:00
Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars. Skoðun 17. mars 2026 12:48
Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Vegurinn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum var opnaður rétt eftir klukkan sjö í morgun en snjóflóð féll á hann síðdegis í gær. Dynjandisheiðin er lokuð og sömu sögu er að segja af Kleifarheiði. Innlent 4. mars 2026 07:24
Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Snjóflóð féll á veginn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum síðdegis í dag. Í kjölfarið var ákveðið að loka veginum, sem og Dynjandisheiði og Kleifaheiði til morguns Innlent 3. mars 2026 17:28
Að standa af sér storminn Umræðan um sjókvíaeldi hefur verið þung og á köflum hörð. Hér fyrir vestan finnum við það vel. Margir íbúar hafa lýst því yfir að þeir upplifi umræðuna ekki aðeins sem gagnrýni á atvinnugrein heldur sem gagnrýni á samfélagið sjálft og fólkið sem hér býr og starfar. Skoðun 27. febrúar 2026 19:31
Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Hátt í fjörutíu ára gamall þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn í morgun. Hafnarvörður segir unnið að því finna út úr hvernig báturinn verður hífður upp úr höfninni. Innlent 25. febrúar 2026 12:06
Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Mönnun fagfólks er ein helsta áskorunin hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, líkt og víða annars staðar, samkvæmt úttekt embættis Landlæknis. Einn læknir sinnir þremur stjórnendastöðum og eru fengnir læknar frá Danmörku til að manna stöður. Þá fer rafmagnið reglulega af í húsnæði stofnunarinnar á Patreksfirði. Innlent 20. febrúar 2026 12:54
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Skoðun 9. febrúar 2026 17:01
Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga segir það afar sérstakt af fiskeldisfyrirtækjum á svæðinu að ákveða að lækka laun þeirra starfsmanna sem vinni mikilvægustu og erfiðustu störfin. Hann gefur lítið fyrir þau rök að um leiðréttingu launa sé að ræða. Innlent 30. janúar 2026 11:57
Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga segist harma að stjórnendur Arnarlax og Arctic fish hafi tekið þá ákvörðun að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og á að taka gildi þann 1. maí. Innlent 29. janúar 2026 22:59
Fiskeldi til framtíðar Nýr grunnskóli á Bíldudal. Heimavöllur bikarmeistara Vestra. Vatnsveitur og fráveitur. Skólastofur og slökkvistöð. Nemendagarðar og göngustígar. Allt eru þetta dæmi um hvernig framlög fiskeldissjóðs hafa styrkt sveitarfélög á Vestfjörðum síðustu ár til uppbyggingar, aukið lífsgæði og styrkt innviði. Skoðun 26. janúar 2026 07:45
Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Þann 30. desember flæddi yfir í keri Tunglsilungs í Tálknafirði með þeim afleiðingum að eldisbleikja komst út í sjó. Innlent 14. janúar 2026 11:52
Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rafmagnslaust hefur verið á Tálknafirði síðan á öðrum tímanum í nótt. Vonir standa til að rafmagn verði komið aftur á í þorpinu seinni partinn. Innlent 31. desember 2025 09:55
Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Hátt í þrjátíu þúsund fiskar Tungusilungs drápust í landeldi í Tálknafirði fyrir helgi eftir að rafmagni sló þar út. Rekstrarstjóri Tungusilungs segist hafa áttað sig á því að þessi staða gæti komið upp einn daginn því hann hafi ekki séð neinar framfarir í afhendingaröryggi raforku á svæðinu í áratugi. Vestfirðingar séu annars flokks þegar komi að innviðum. Innlent 17. desember 2025 14:18
Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Um tuttugu þúsund fiskar drápust í fiskeldi í Tálknafirði á föstudag. Lögreglu á Vestfjörðum barst tilkynning þessa efnis fyrir helgi. Innlent 17. desember 2025 07:21