Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. ágúst 2026 14:59 Kári G. Schram, vísir/aðsend Munum sem voru í eigu Gísla á Uppsölum hefur verið safnað saman á nýrri sýningu á bænum hans í Selárdal. Einn þeirra sem stendur á bak við verkefnið segir Gísla kominn heim og er stoltur af því að fá að lyfta sögu hans og lífshlaupi.
Unnið hefur verið að því að koma upp safni Gísla á Uppsölum í nokkur ár og Kári G. Schram einn hvatamaður þess segir að síðustu þrjú sumur hafi farið í að koma bænum, sem stendur innarlega í Selárdal, í stand. „Húsið var svolítið illa á sig komið og við þurftum að laga þetta allt til og græja. Svo erum við núna búin að vera setja upp sýningu sem við erum að klára og hún verður tilbúin fyrir opnunina 7. ágúst, sem verður á Selárdalshátíðinni sem við höldum alltaf annað hvert ár,“ segir Kári. Gísli á Uppsölum, eða Gísli Októvíanus Gíslason, var bóndi og einbúi í Selárdal á Vestfjörðum. Hann var fæddur árið 1907 og lést árið 1986.vísir/aðsend Hópurinn sem stendur á bak við safnið hefur sankað að sér ýmsum munum sem voru í eigu Gísla. „Við erum að tala um stólinn hans, hattinn, jakkann, gleraugun og húsmuni líkt og borðin og rúmið þannig það er allt komið þangað til baka. Þess vegna segjum við að okkur finnist eins og hann sé kominn heim með alla sína muni.“ Ýmsum munum sem voru í eigu Gísla hefur verið safnað saman á bænum. Gísli spilaði á píanó og gerði það meðal annars þegar Ómar Ragnarsson sótti hann heim í Stikluþætti.vísir/aðsend Mununum hefur verið komið fyrir í gamla herbergi Gísla þar sem fólk mun geta virt þá fyrir sér. Á safninu verður einnig myndbandsverk, frásagnir af Gísla og ljósmyndir auk ýmiss konar fróðleiks. Kári rekur einnig Listasafn Samúels í Selárdal og er hugmyndin sú að gera dalinn að enn betri áfangastað fyrir ferðamenn sem geti þá heimsótt bæði söfnin. Kári bendir á að Gísli hafi öðlast sess í hjörtum landsmanna eftir sýningu á sjónvarpsþættinum Stiklum þar sem Ómar Ragnarsson heimsótti hann og sýndi frá lífi einbúans í dalnum. Hann er stoltur af því að fá að lyfta hans sögu og segir marga hafa kíkt við á meðan verið var að gera upp húsið. Síðustu sumur hefur verið unnið að því að gera upp húsið og sýningin verður opnuð þann 7. ágúst.vísir/aðsend „Það kom okkur bara verulega á óvart hvað hann á fallegan stað í hugum Íslendinga og þess vegna er gaman að geta gert þetta að fallegri sýningu til þess að yngri kynslóðir fái að upplifa þessa sögu. Hann var sérstakur og einstakur maður og saga hans og lífshlaup voru náttúrulega mjög sérstök líka.“
Menning Ferðaþjónusta Vesturbyggð Söfn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira