Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11.6.2026 11:36
Framtíðarlistinn með meirihluta í Súðavíkurhreppi Framtíðarlistinn fékk meirihluta greiddra atkvæða í kosningunum í Súðavíkurhreppi í dag og þrjá fulltrúa í sveitarstjórn. Fjarðarlistinn fékk tvo fulltrúa kjörna. Innlent 17.5.2026 02:30
Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða. Innlent 16.4.2026 22:20
Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Rýma þurfti atvinnuhúsnæði á Ísafirði eftir að snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Áfram er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og þá eru gular viðvaranir í gildi vegna veðurs á Vestanverðu landinu. Innlent 17. mars 2026 11:52
„Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Innlent 14. mars 2026 12:53
Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. Innlent 12. mars 2026 11:01
Óvissustig í Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Innlent 11. mars 2026 22:01
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Skoðun 9. febrúar 2026 17:01
„Við vitum að áföllin munu koma“ Forseti Alþingis segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis svara þeim álitamálum sem lagt var upp með. Hún telur núverandi almannavarnarkerfi mun betur í stakk búið að takast á við atburði af álíka stærðargráðu en fyrir þrjátíu árum síðan. Innlent 16. desember 2025 13:02
Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Ljósi er varpað á málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík í skýrslu rannsóknarnefndar sem var kynnt í dag. Formaður nefndarinnar segir hægt að draga lærdóm af skýrslunni. Innlent 15. desember 2025 19:32
Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 segir nýja skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var í dag ekki til neins ef ekki verði brugðist við henni. Hann segir ekki dag líða þar sem hann hugsi ekki til dagsins örlagaríka í janúar þetta ár, stjórnvöld hafi með því að neita að horfast í augu við ábyrgð látið eins og fráfall íbúa í Súðavík hafi ekki skipt neinu máli. Innlent 15. desember 2025 19:12
Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna snjóflóðs í Súðavík árið 1995 er hvorki að finna álit né vangaveltur nefndarinnar um mögulega ábyrgð einstaklinga á atburðum 16. janúar 1995, þegar fjórtán fórust. Í skýrslunni segir hins vegar að auðvelt sé að vera vitur eftir á. Innlent 15. desember 2025 16:23
Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni. Skýrsla nefndarinnar verður afhent forseta Alþingis klukkan 13 og kynnt klukkan 15. Sjá má kynninguna í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 15. desember 2025 14:34
Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni og afhent forseta Alþingis skýrsluna. Skýrslan verður kynnt opinberlega klukkan 15. Innlent 15. desember 2025 13:18
Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Í dag mun rannsóknanefnd sem Alþingi skipaði til að rannsaka aðdraganda og eftirmál snjóflóðsins í Súðavík fyrir þrjátíu árum skila skýrslu sinni. Kona sem missti dóttur sína í flóðinu segist vona að sannleikurinn fái loksins að koma í ljós. Innlent 15. desember 2025 12:01
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11. desember 2025 21:51
Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Rannsóknarnefnd Alþingis vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995 hefur lokið rannsókn sinni. Skýrsla nefndarinnar verður afhent forseta Alþingis á mánudag og kynnt sama dag. Innlent 11. desember 2025 14:42
Segir göng undir Fjarðarheiði ekki fjárhagslega forsvaranleg Ríkisstjórnin er einhuga um að breyta forgangsröðun jarðganga og setja Fljótagöng í fyrsta sæti og hafa þingflokkar stjórnarinnar samþykkt tillöguna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að Fjarðarheiðargöng hafi ekki verið fjárhagslega forsvaranleg. Innlent 3. desember 2025 21:10
Fljótagöng sett í forgang Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán verða sett í forgang í nýrri jarðgangaáætlun sem kynnt verður í dag á fundi innviðaráðherra þar sem hann kynnir samgönguáætlun fyrir 2026 til 2040. Undirbúningur við næstu jarðgöng hefst 2026 og verður byrjað að bora 2027. Innlent 3. desember 2025 10:30
Óttast hópuppsögn sem samsvarar sextán þúsund höfuðborgarbúum Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur lýst yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum. Ástæðan er fyrirhugað afnám línuívilnunar, rækjubóta og skerðinga á byggðakvóta. Innlent 24. nóvember 2025 22:13
Stærðarinnar grjót féll á fjölfarinn veg Íbúi í Súðavík keyrði fram á stærðarinnar grjót sem runnið hafði úr Kirkjubólshlíð. Um er að ræða veg sem íbúar á svæðinu aka nær daglega. Innlent 25. september 2025 15:59
Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Innviðaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi með tillögum að víðtækum breytingum á sveitastjórnarlögum. Meðal tillaga er lögfesting á 250 íbúa lágmarki sveitarfélaga og er stefnt að sameiningu fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átta sveitarfélög eru undir lágmarkinu. Innlent 23. september 2025 09:43
Sameiningarhugur á Vestfjörðum Nokkur sveitarfélög og hreppir á Vestfjörðum hyggjast efna til óformlegra sameiningarviðræðna. Fulltrúar tveggja sveitarfélaga segja að í framtíðarsýn Vestfjarða séu færri sveitarfélög. Þeir telja að málið verði mikið rætt í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 25. júní 2025 14:27
Selfyssingar buðu lægst í brúasmíði á Vestfjörðum Vörubílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi átti lægsta boð í smíði tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit. Tilboð Selfyssinga hljóðaði upp á 1.626 milljónir króna, sem er 0,1 prósenti yfir kostnaðaráætlun. Innlent 29. apríl 2025 18:54