Atvinnulíf

Meiri árangur í líkams­rækt og í­þróttum með nýrri ís­lenskri tækni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Arnar Lárusson, stofnandi Tymewear, telur líklegt að innan tveggja til fjögurra ára muni fólk ekki aðeins mæla hjartslátt við æfingar, heldur líka öndun. Enda séu það öndunarmælingar sem tryggi meiri árangur fyrir hvern og einn af æfingum.
Arnar Lárusson, stofnandi Tymewear, telur líklegt að innan tveggja til fjögurra ára muni fólk ekki aðeins mæla hjartslátt við æfingar, heldur líka öndun. Enda séu það öndunarmælingar sem tryggi meiri árangur fyrir hvern og einn af æfingum. Vísir/Vilhelm

Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan við heyrðum síðast í nýsköpunarfyrirtækinu Tymewear, sem nú hefur þróað nýja vöru sem er að vaxa hratt í heimi íþrótta: VitalPro, lausn sem mælir öndun þannig að fólk nái meiri árangri á æfingum.

Notendur VitalPro eru um allan heim. Þar á meðal hjá 26 atvinnuhjólaliðum, atvinnuþríþrautaköppum, rugby- og fótboltaliðum í efstu deildum í Evrópu.

„En langstærsti hluti notenda okkar er venjulegt fólk sem vill bæta þrek og heilsu sína, hvort sem það er fyrir maraþon eða bara til að auka lífsgæði,“ segir Arnar Lárusson, stofnandi Tymewear, og bætir við:

Notendur okkar lýsa því hvernig æfingar verða miklu skilvirkari með okkar tækni. 

Fólk sem hefur staðnað eða hlaupið á vegg lýsir þessu eins og endurnýjun. 

Þetta hefur verið mjög skemmtilegt að sjá en kemur í sjálfu sér ekki á óvart.“

Arnar segir það hafa verið mikið rannsakað hversu mikið happdrætti árangur af æfingum er þar sem eingöngu er miðað við hefðbundin tæki eins og GPS-úr eða hjartsláttarmæla.

„Æfingar sem miðast við öndunarmælingar hafa sýnt fram á fullkomna skilvirkni og rúmlega tvöfaldan árangur á við hefðbundnar æfingar í tugum rannsókna. Hjartsláttargögn veita ekki upplýsingarnar sem við þurfum til að einstaklingsmiða æfingar. Fólk er því að styðjast við mælingar miðað við eitthvað meðaltal mannskynsins. Þegar staðreyndin er sú að það er engin meðalmanneskja til.“

Upphafið og nú

Þegar við heyrðum síðast í Tymew ear var allt á fullu; árið 2020 og undirbúningur fyrir sölu fyrstu vörunnar í Bandaríkjunum. Spennan lá í loftinu og bjartsýnin var algjör.

Arnar minnist tímans með hlýju. En segir ótrúlega margt hafa lærst síðan þá. Svona eins og gengur og gerist í heimi nýsköpunar.

„Við byrjuðum á því að þróa vöruna sem bol með öndunarnema. Sem var bylting á sínum tíma því fram að því hafði fólk eingöngu getað mælt öndun með grímum á rannsóknarstofum . Nú gat fólk hins vegar farið að mæla öndunina sjálft hvar sem er.“

Strappinn VitalPro er hins vegar skynjari sem er auðvelt fyrir íþróttafólk að festa á sig.

„Við vinnum mikið með atvinnufólki í íþróttum og fólki sem stundar rannsóknir á þessu sviði. Beinum spjótunum þá helst að þrekgreinum þar sem upptakan er hvað mest,“ segir Arnar og vísar sérstaklega til hjólreiðakeppninnar Tour de France þar sem rúmlega helmingur liða notar tæknina í dag.

„Endurgjöfin sem við fengum í upphafi var hins vegar sú að bolurinn væri ekki nógu praktískur. Hann væri of heitur á sumrin og erfitt að nota hann á hverri einustu æfingu.“

„Notendur okkar báðu okkur um lausn sem þeir gætu með auðveldu móti notað á hverri æfingu án fyrirhafnar.“ 

Áhuginn fyrir öndunarmælingunum var vakinn og ljóst að nú yrði ekki aftur snúið.

Við birtum fyrst VitalPro-strappann á árlegri ráðstefnu við opnun Tour de France og við höfðum ekki undan. 

Fólk stóð í röðum við básinn og spurði: 

Hvenær hefst salan?“

VitalPro mælir öndun og hjartslátt en Arnar segir markmiðið að allir sem æfa líkamsrækt og íþróttir styðjist við öndunarmælingar til að ná sem mestum árangri. 

Strappi í útlöndum

VitalPro mælir öndun og hjartslátt. Úr gögnunum er gerð þolgreining sem er undirstaða markvissra og einstaklingsmiðaðra æfinga.

Arnar segir gagnasöfnunina nú þegar telja hundruð þúsunda æfinga í hverjum mánuði.

„Þessi gögn hafa enga hliðstæðu hvað dýpt og nákvæmni varðar og eru að leggja grunninn að öflugu þjálfunarkerfi sem byggist á gögnum hvers og eins. Við erum núna farin í loftið með einstaklingsmiðaðar æfingar, æfingaplön sem blanda saman einstaklingsmiðuðum mælingum og sjálfvirkni við framleiðslu æfinganna.“

Arnar segir notendur á aldrinum 18–80 ára en meðalaldurinn sé fólk um fimmtugt. 

Markmiðið sé að allir sem æfa líkamsrækt og íþróttir styðjist við öndunarmælingar til að ná sem mestum árangri.

Í samtali við Arnar heyrist þó að í raun snúist verkefnið um meira en að ná enn betri árangri í maraþoni eða að byggja upp góðan rekstur. Hugsjónin er ríkjandi líka:

Það er fyrirséður heimsvandi ef lífsstílssjúkdómar fara að hrjá tvær billjónir manna vegna hreyfingarleysis. 

Liður í að sporna við því vandamáli er að happdrættið yfir því hvort fólk sé að ná árangri með hreyfingum eða ekki sé ekki svona mikið. 

Að hreyfingar séu örugglega að skila sér fyrir hvern og einn.“

VitalPro er einkaleyfisvarin lausn en Tymewear er staðsett í Boston í Bandaríkjunum, en þar hefur félagið fengið um 5,5 milljónir dollara í fjármögnun.

Arnar segir líklegt að frekari fjármögnun sé fram undan. Félagið sé enn að þróa vöruna, samhliða því að stækka.

Sjálfur segist Arnar stökkva á milli heimsálfa. Því á Íslandi býr fjölskyldan en vinnan er í Boston, framleiðslan í Kína og samstarfsaðilar um heim allan.

„Miðað við árangurinn sem notendur okkar eru að sjá, held ég að innan tveggja til fjögurra ára muni engum finnast það meika sens að mæla eingöngu hjartslátt eða GPS við æfingar. Fólk mun mæla öndun og hjartslátt til að átta sig betur á því hvernig það nær árangri.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×