Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Smári Jökull Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 11:03 Það borgar sig því að gera verðsamanburð áður en haldið er af stað með bílinn í dekkjaskipti. vísir/jóhanna Miklu munar í verði á umfelgun bíla samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ þar sem verð á umfelgun og dekkjaskiptum var skoðað fyrir ólíkar felgu- og bílastærðir. Fyrir bíl á 22 tommu dekkjum er hæsta verð nærri þrefalt hærra en það lægsta.
Borin voru saman verð hjá tuttugu og níu fyrirtækjum á tímabilinu 13.–26. október. Í pistli á vef ASÍ segir að samanburðurinn miði við sömu felgustærð og bílaflokk en misjafnt sé eftir verðskrám hvort þær miði einungis við felgustærð eða hvort tillit sé tekið til tegundar bíls, það er hvort um sé að ræða fólksbíl eða jeppling. Lægsta verðið fyrir smábíl með 12–13 tommu felgustærð er 8.990 hjá Bílaverkstæðinu No22 en hæst 16.990 hjá N1 en þar er miðað við 10–16 tommu stærð. Umfelgun á 14–16 tommu felgum kostar 10.990 hjá Fastparts í Hafnarfirði en í þeim flokki er N1 líka hæst. Fyrir heimili með tvo fólksbíla á 16 tommu tekkjum getur því munað 12.000 krónum eftir því hvort leitað er til aðila sem býður lægsta eða hæsta verðið. Munurinn eykst þegar verð fyrir umfelgun jepplinga eða óbreytts jeppa er skoðað, það er lægst hjá Fastparts en kostar 19.990 hjá Betridekk og munar 9.000 krónum eða 81,9 prósentum. Mestur er munurinn þó þegar skoðað er verð fyrir umfelgun fólksbíls með 22 tommu felgu. Þar kostar umfelgunin 13.900 hjá Pitstop á Selfossi en 36.375 hjá Max1 Bílavaktinni í Reykjavík og Hafnarfirði og munar því 161,6 prósentum. Tekið skal fram að verðið hjá Pitstop er óháð stærð felgu. Þá munar einnig umtalsverðu fyrir dekkjaskipti og jafnvægisstillingu þegar bílar eru á sérfelgum. Þar er verðið á bilinu 9.990-12.490 fyrir fólksbíla á 16 tommu dekkjum og 10.490-14.490 á 17 tommu dekkjum. Segir í tilkynningu ASÍ að lægri verð hafi verið skráð þar sem ekki hafi komið fram hvort jafnvægisstilling væri innifalin. Því sé ekki tryggt að sama þjónusta sé borin saman. Einnig er tekið fram að verð séu birt án skilyrtra afslátta en víða er boðið upp á afslátt á umfelgun ef dekk eru keypt auk þess sem vildarkorthafar fá afslátt eða safna punktum.
Bílar Umferð Nagladekk Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira