Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. maí 2026 12:01 Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, reiknar með að umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið klárist á morgun. vísir/Vilhelm Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst.
Áframhaldandi umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er á dagskrá þingfundar sem hefst klukkan hálf tvö í dag. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir umræðuna hafa gengið vel. „Hún hefur verið góð. Almenn þátttaka og góð umræða,” sagði Þórunn þegar fréttastofa sló á þráðinn í morgun. Í þingsályktunartillögunni er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin laugardaginn 29. ágúst. Til þess að það gangi eftir þarf að ljúka umræðunni og samþykkja tillöguna í þessari viku þar sem það þarf að gera að minnsta kosti þremur mánuðum fyrir atkvæðagreiðslu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er einn þeirra þingmanna í minnihluta utanríkismálanefnd sem lögðu til að þjóðaratkvæðagreiðslu yrðu frestað til 17. október.vísir/vilhelm Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks í utanríkismálanefnd lögðu til að atkvæðagreiðslunni yrði frestað til 17. október og bent hefur verið á að stjórnarandstaðan gæti farið í málþóf sem myndi þá leiða til þess að hverfa þyrfti frá fyrirhugaðri dagsetningu í ágúst. Þórunn segir hins vegar ekki útlit fyrir það. Umræðan sé á áætlun. „Allt bendir til þess að við náum að ljúka henni á morgun.” Samtöl við þingflokksformenn allra flokka gefi það til kynna. „Mér heyrist að það séu allir á því að það sé gott að ljúka þessari umræðu í tæka tíð.”
Alþingi Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Sjá meira