Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Óttast að „bottar“ muni ýta undir á­greining í að­draganda at­kvæða­greiðslu

Umferð netþjarka, eða svokallaðra „botta“, á samfélagsmiðlum hefur aukist verulega á síðustu árum. Netöryggismiðstöð Íslands brýnir fyrir fólki að vera á varðbergi í aðdraganda atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þar sem samfélagsmiðlareikningar sem gefa sig út fyrir að vera alvöru fólk gætu reynst bottar. Almenningur er hvattur til að tilkynna það þegar þau telja sig rekast á botta.

Innlent
Fréttamynd

„Gott og vel við skulum trúa ráð­herranum“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kallar eftir skýrum svörum frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra varðandi samtöl hennar við Hollendinga um mögulega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Hart tekist á um ESB

Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Pall­borðið: Nei eða já?

Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi, til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eiga að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ljóst er að málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni getað komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður er að ræða. Mál málanna verður krufið í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Um­ræðan hafi „aftur og aftur snúist um get­gátur, mis­skilning og út­úr­snúninga“

„Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um eitt: Viljum við að Ísland setjist við samningaborðið og freisti þess að ná eins hagfelldum samningi og völ er á, með þessi markmið að leiðarljósi? Verði svarið já opnum við á tækifæri. Með því að segja nei lokum við þessum dyrum. Í báðum tilvikum er það þjóðin sjálf sem ræður. Það er kjarni málsins, og hann breytist ekki þótt reynt sé að flækja hann.“

Innlent
Fréttamynd

Segir Dag plata með úr­eltri skýrslu

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, fer hörðum orðum um skrif Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í pistli undir yfirskriftinni „Dagur, bannað að plata!“ Dagur fjallaði fyrr í dag um tólf ára gamla skýrslu þar sem segir að upptaka evru myndi fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland. Ásdís bendir á að skýrslan hafi verið rituð í efnahagsumhverfi sem sé fyrir löngu liðið undir lok.

Innlent
Fréttamynd

Segir ó­tíma­bært að ræða undan­þágur

Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Spunameistarinn Alastair Campbell mærir ís­lenska sumarsuddann

Breski spunameistarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Alastair Campbell, sem var lengi vel talsmaður Tony Blair, er staddur á Íslandi til að taka viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Campbell er feginn að komast undan hitanum á Bretlandi í kuldann og rigninguna á Íslandi.

Lífið
Fréttamynd

Gréta María og Hrund til liðs við Sjá

Samtökin Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB í ágúst, hafa fengið liðsauka með komu Grétu Maríu Grétarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Prís, og Hrundar Rudólfsdóttur, framkvæmdastjóra Sólvalla rekstrarfélags, í stjórn hreyfingarinnar. Fyrir í stjórn eru þau Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram Ís­land með opinn fund á Skaganum

Samtökin Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að þjóðin segi nei við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið, blása til opins fundar í Brekkubæjarskóla á Akranesi klukkan 17. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta voru al­gjör­lega mann­leg mis­tök“

Margrét Rós Sigurjónsdóttir, sem fullyrti í gær í myndskeiði á Instagramsíðu SJÁ að mjólkurlítrinn kostaði 380 krónur, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða og málið allt sé „svolítið vandræðalegt.“

Innlent
Fréttamynd

Ein­faldur seðill flýtir ekki lokatölum

Þrátt fyrir að einungis ein spurning verði á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst er ekki víst að lokatölur liggi fyrr fyrir en í hefðbundnum kosningum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir rúma viku.

Innlent
Fréttamynd

Sögðu mjólkur­fernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu

Fulltrúa samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, varð á í messunni í myndskeiði á Instagram þegar hann sagði mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur. Myndskeiðinu hefur nú verið eytt.

Innlent
Fréttamynd

„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu

Prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri telur að ef verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þjóðin ekki sömuleiðis að framselja löggjafarvaldið. Hins vegar felist í því að framselja dómsvaldið að hluta. Lagalega séð séu undanþágur frá samningnum mögulegar en á sama tíma séu þær háðar pólitískum vilja.

Innlent
Fréttamynd

Upp­taka evru myndi ekki einungis hafa á­hrif á vexti

Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlut­laus“

Nýr vefur sem á að auðvelda kjósendum lífið í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur litið dagsins ljós. Formaður landskjörstjórnar segir hlutlausar upplýsingar mikilvægar þegar um jafn mikið hitamál sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

ESB-deilan harðnar eftir um­mæli er­lendra ráða­manna

Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þá sé þetta sem næst úti­lokað“

Innganga Íslands í Evrópusambandið er svo gott sem úr myndinni áður en gengið er til hugsanlegra aðildarviðræðna. Þetta segir framkvæmdastjóri SFS í ljósi þess að forsætisráðherra Hollands tjáði sig um kröfu Íslands um undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert of­boðs­lega fréttnæmar

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, telur nokkuð ófréttnæmt að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, tali fyrir því að fólk svari neitandi í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það sé vegna þess að hann hafi á sínum stjórnmálaferli verið hrifnari af því að segja „nei“ en „já“.

Innlent
Fréttamynd

Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar

Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land skari fram úr ESB á flestum mæli­kvörðum

Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext.

Innlent