„Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eiður Þór Árnason skrifar 6. september 2026 22:15 Jón Ólafsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Magnús Árni Skjöld Magnússon hafa allir notið góðs af alþjóðlegu samstarfi við störf sín og notfært sér utanaðkomandi fjármagn. Vísir Prófessor við Háskólann á Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar, hafnar því að hafa verið „á launum hjá Evrópusambandinu“. Hann hafi sótt um styrk í menntasjóð á vegum sambandsins áður en hann tók við formennsku hjá Evrópuhreyfingunni og peningarnir séu ekki notaðir til að greiða laun hans.
Ummæli Magnúsar Árna Skjöld Magnússonar koma í kjölfar viðtals við Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, í Spursmálum á mbl.is. Þar tengdi hann styrkveitingar úr sjóðum Evrópusambandsins til Magnúsar og Baldurs Þórhallssonar, prófessors við Háskóla Íslands, við þátttöku þeirra í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við sambandið. Magnús segir að um sé að ræða samkeppnissjóð og hann hafi síðast hlotið styrk til þess að efla kennslu, umræðu og rannsóknir á breyttu öryggisumhverfi á norðurslóðum. Styrkinn megi ekki nýta til að greiða laun þeirra fræðimanna sem styrkinn hljóta. Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor og fyrrverandi forsetaframbjóðandi.Vísir/Vilhelm Baldur, sem hefur líkt og Magnús kennt og rannsakað Evrópusamrunann, hlaut árið 2008 Jean Monnet-viðurkenningu Evrópusambandsins og titilinn Jean Monnet-prófessor. Mbl.is segir að samkvæmt upplýsingum frá HÍ hafi viðurkenningunni fylgt 7,5 milljóna króna fjárframlag til kennslu. Báðir hafa Baldur og Magnús farið fram fyrir Samfylkinguna en Hannes var lengi nátengdur Sjálfstæðisflokknum. Þeir bestu fái styrkina Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði við Háskóla Íslands, blandar sér í umræðuna og gagnrýnir málflutning Hannesar harðlega. Þá skýtur hann föstum skotum í átt að stjórnmálaheimspekiprófessornum. „Það er alltaf merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug. Íslenskt háskóla- og rannsóknasamfélag hefur notið góðs af því að vera hluti evrópsks rannsóknasamfélags um áratugaskeið. Það þýðir að íslenskir rannsakendur hafa getað sótt um – og hafa fengið – góða evrópska rannsóknarstyrki á öllum sviðum vísinda og fræða,“ skrifar Jón á Facebook og tekur undir með Magnúsi. „Þess vegna dafna íslenskir háskólar og rannsóknastofnanir þrátt fyrir svikin loforð íslenskra stjórnvalda um sterkari fjármögnun. En það eru auðvitað bara þeir bestu sem fá styrkina – þeir sem láta sér gremjast að fá enga styrki nema frá sérhagsmunahópum og vinum sínum ættu því að líta í eigin barm.“ Gerir athugasemd við að styrkirnir séu gerðir tortryggilegir Magnús, sem er prófessor í stjórnmálafræði, segist fyrst hafa hlotið styrk úr svonefndu Jean Monnet-prógrammi, sem er hluti af Erasmus+ áætluninni, eftir aldamót til að kenna námskeið um Evrópusamrunann og þróun Evrópusambandsins. „Í byrjun síðasta árs, löngu áður en ég tók að mér formennskuna í Evrópuhreyfingunni, sótti ég um styrk úr þessu prógrammi að nýju, nú til þess að efla kennslu, umræðu og rannsóknir á breyttu öryggisumhverfi á norðurslóðum. Ég hlaut styrkinn, enda búinn að vera lengi að sinna rannsóknum og kennslu í háskólum hér og erlendis,“ skrifar hann í færslu á Facebook-síðu sinni. Hann gerir athugasemd við að Hannes hafi „gert þetta tortryggilegt“ og hafnar því sömuleiðis að hann hafi þegið laun frá Evrópuhreyfingunni til að berjast fyrir því að meirihluti myndi kjósa að Ísland hæfi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Viðurkenning á hans starfi „Ég er ekki að „leika mér“ með þennan pening til að komast til útlanda og ég notaði sumarfríið mitt í þessa baráttu í ágúst. Að öðru leyti var ég í jafn fullri vinnu við annað og Sólveig Anna, Halldór Benjamín eða Haraldur Ólafsson, svo einhver sem voru dugleg í baráttunni séu nefnd, enda er stjórnarmönnum í Evrópuhreyfingunni bannað að þiggja laun fyrir störf sín skv. lögum félagsins,“ skrifar Magnús. „Ég er mjög stoltur af því að hafa hlotið þennan litla styrk, enda er hann viðurkenning bæði á mínu starfi og þeirri stofnun sem ég starfa hjá. Ég mun standa við það sem stendur í umsókninni sem ég gerði í samstarfi við gott fólk á Bifröst í janúar 2025 og næsti liður í því er málþing um Allsherjarvarnir, sem fer fram í samstarfi við sænska og finnska sendiráðið og ríkislögreglustjóra í Norræna húsinu 17. september næstkomandi.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Háskólar Evrópusambandið Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Sjá meira