Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. október 2026 11:05 Halldór Valur Pálsson var forstöðumaður fangelsanna á Hólmsheiði og Litla Hrauni en starfar nú hjá dómsmálaráðuneytinu. Vísir/Sigurjón Sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu segir kostnað við byggingu nýs fangelsis hafa aukist til muna eftir að framkvæmd var þarfagreining. Einungis lítill hluti upphæðarinnar fari í fangaklefana og þess í stað sé umgjörðin sem kosti bróðurhluta af þrjátíu milljörðunum sem verja á í fangelsið.
Fyrsta skóflustungan að nýja öryggisfangelsinu Stóra-Hrauni var tekin í vikunni en til stendur að taka nýja fangelsið í notkun árið 2031. Fangelsið á að taka við af Litla-Hrauni og vista allt að 128 fanga. Bygging fangelsisins á að kosta þrjátíu milljarða. Sú tala er mun hærri en áður var gert ráð fyrir en í nóvember árið 2024 var gert ráð fyrir því að kostnaðurinn yrði átján milljarðar króna. „Í samanburði við önnur öryggisfangelsi sem við höfum verið að skoða þá er kostnaðurinn ekkert að koma okkur neitt á óvart. Þótt þetta virki á myndum sem fáar byggingar þá er byggingamagnið í þessu fangelsi yfir fimmtán þúsund fermetrar,“ segir Halldór Valur Pálsson, sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og fyrrverandi forstöðumaður Litla-Hrauns, sem ræddu málið í Bítinu á Bylgjunni. Þrátt fyrir að litið sé til hinna Norðurlandanna við hönnun fangelsisins, þar á meðal þegar litið er til sterkrar umgjarðar fangelsanna, eru aðstæðurnar á Íslandi ekki þær sömu þar sem hér er ekki að finna fjölda fangelsa víðs vegar um landið. Halldór bendir á að á Íslandi séu örfá fangelsi en oft þurfi að skipta upp fangahópum. „Það kallar á flóknar lausnir, meiri aðgreiningu innan fangelsis og í rauninni gerir verkefnið talsvert flóknara.“ Ekki hægt að kaupa búnaðinn í íslenskri byggingavöruverslun Það gefi skakka mynd að horfa einungis á byggingarmagnið og fjölda plássa í fangelsinu. „Þú ert með risastóra lóð sem þú ætlar að vakta. Þú ert með myndavélakerfi á öllu svæðinu, þú ert að lýsa upp allt svæðið, þú ert með stórar girðingar, þú ert að aðgreina byggingar með öðrum girðingum, skipuleggja útisvæði og tengingar milli húsa,“ segir Halldór. „Við erum ekki einu sinni komin inn í húsið þegar þetta er strax orðið mjög dýrt. Síðan er í rauninni allur sá aðbúnaður sem þarf að vera í lokuðu fangelsi sem kallar á þetta fermetramagn. Þó að hver fangaklefi sé innan við tíu fermetrar eru þeir ekki nema í mesta lagi fimmtán prósent af heildarverkefninu.“ Fangarnir sjái að mestu um sig sjálfir, eldi mat, þvoi þvott, sæki nám eða vinnu og fari í búðina. Nauðsynlegt sé að hafa aðstöðu til að sinna öllu þessu. Sömuleiðis er reynt að koma í veg fyrir að fangarnir þurfi að yfirgefa fangelsið og þarf því að hafa aðstöðu fyrir heilbrigðisstarfsfólk. „Fyrst og fremst snýst þetta um það að búa til rekstrarhagkvæmni í fangelsinu. Allt sem er dýrt í svona fangelsisverkefnum snýr ekki að því að við séum að búa til einhverjar lúxusaðstæður fyrir þá sem vistast þar, þvert á móti,“ segir hann. „Kostnaðurinn liggur í aðbúnaðinum. Þú kaupir ekki venjulegar hurðir eða venjulegt gler. Það er ekkert í svona fangelsi sem þú kaupir í íslenskri byggingavöruverslun og er fjöldaframleitt fyrir markaðinn.“ Þarfagreiningin hækkaði verðmiðann Undirbúningurinn hefur staðið lengi yfir og segir Halldór kostnaðaráætlunina hafa hækkað til muna eftir að framkvæmd var þarfagreining. „Þetta fangelsi þarf að koma í staðinn fyrir Litla-Hraun sem við erum búin að vera að nota fangelsi sem er búið að reyna að byggja upp í mörgum litlum bútum síðustu hundrað árin,“ segir hann. „Húsið þvælist orðið fyrir okkur, aðbúnaðurinn og leysir ekki neitt fyrir okkur. Þetta fangelsi leysir í rauninni allt fyrir okkur sem við þurfum að leysa. Við getum tekið á þeim að vista á inni og hafa tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Við getum stýrt þeim hópum.“ Gert er ráð fyrir því að á milli níutíu og hundrað manns muni starfa í nýja fangelsinu samanborið við þá sjötíu sem starfa núna á Litla-Hrauni.
Fangelsismál Dómsmál Árborg Bítið Bylgjan Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Sjá meira