Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Agnar Már Másson skrifar 24. maí 2026 08:32 Nasire Best er talinn hafa átt við geðræn vandamál að stríða. Samkvæmt poinberum gögnm var handtekinn fyrir utan Hvíta húsið í fyrra. Samsett/Getty Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa nafngreint meintan byssumann sem var felldur af öryggissveitum Bandaríkjaforseta í gær eftir að hafa hleypt af skotum við Hvíta húsið. Lögreglan hefur oft áður haft afskipti af honum fyrir utan Hvíta húsið en hann er talinn hafa átt við geðræn vandamál að stríða.
Greint var frá því í gær að skothvellir heyrðust í grennd við Hvíta húsið. Þar reyndist maður hafa hleypt af skotum úr skammbyssu, samkvæmt umfjöllun bandarískra fjölmiðla, og sært þar einn vegfaranda. Byssumaðurinn var síðan felldur. Maðurinn hét Nasire Best, að því er CNN kemst næst, en Best var 21 árs karlmaður. Hægra megin á myndinni má sjá lögreglumenn hlúa að vegfaranda sem varð fyrir skoti. Vinstra megin hlúa lögreglumenn að meintum byssumanni eftir að hann hafði verið skotinn.Getty Samkvæmt gögnum frá dómstólum var hann einu sinni lagður inn á sjúkrahús gegn eigin vilja og hefur áður verið handtekinn og hann hafi þá haldið því fram að hann „væri Jesús Kristur“. CNN greinir frá því að í einni samfélagsmiðlafærslu virðist hann hóta lífi forsetans og í annarri færslu skrifar hann: „Ég er í alvörunni sonur Guðs.“ Öryggissveitir sögðu að lögreglumenn hefðu skotið mann, sem heimildarmenn úr lögreglunni sem ræddu við CNN sögðu vera Best, þegar hann nálgaðist hlið fyrir utan Hvíta húsið og hóf að skjóta á lögreglumenn. Annar vegfarandi varð fyrir skoti í skotbardaganum. Ekki liggur fyrir hvernig líðan hans er. Donald Trump Bandaríkjaforseta sakaði ekki en hann var í Hvíta húsinu á þeim tíma. Í færslu á samfélagsmiðlum þakkar forsetinn öryggissveitum fyrir skjót viðbrögð og minnir á að aðeins mánuður sé frá því að atlaga var gerð að lífi hans á galakvöldverði á Hilton hótelinu í Washington. Lögreglumenn höfðu mætt Best mörgum sinnum nálægt Hvíta húsinu síðasta sumar, samkvæmt framburði úr dómsskjölum, þar sem segir að hann hafi verið „þekktur af leyniþjónustunni“ fyrir að „ganga um svæði Hvíta hússins og spyrjast fyrir um hvernig hægt væri að komast inn á ýmsum inngöngustöðum“. Hann var skikkaður í varðhald 26. júní 2025 fyrir að „hindra aðgang ökutækja“ að hluta af svæði Hvíta hússins, að því er fram kemur í dómsskjölunum. Þann 10. júlí 2025 hunsaði Best viðvörunarskilti og gekk inn á afmarkað svæði fyrir utan Hvíta húsið, að því er fram kemur í öðrum framburði, þar sem margir lögreglumenn tóku á móti honum. Best hélt því fram að hann væri Jesús og sagði „að hann vildi láta handtaka sig“, að því er segir í skýrslunni. Lögreglumenn standa yfir Best.Getty Lögreglumenn reyna að hlúa að vegfaranda sem varð fyrir skoti í skothríðinni.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira