„Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Árni Sæberg skrifar 19. maí 2026 13:20 Daði Már Kristófersson í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Vísir/Anton Brink Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki vanur því að setja á sig spádómshattinn en segir þó að stýrivaxtahækkun á morgun kæmi honum ekki á óvart.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands gefur á morgun út yfirlýsingu sína um vaxtaákvörðun. Greiningaraðilar gera fastlega ráð fyrir því að stýrivextir verði þá hækkaðir. Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður ræddi stýrivaxtaákvörðunina á morgun við fjármálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Heldur þú að þær aðgerðir sem þið hafið gripið til dugi til að koma í veg fyrir frekari stýrivaxtahækkanir? „Það er ekki gott að segja. Við höfum auðvitað gert það sem ríkið getur gert, sem er að koma rekstri ríkissjóðs í jafnvægi og styðja þannig almennt séð við aðgerðir Seðlabankans. Síðan réðumst við í sértækar aðgerðir sem sneru að þessu áfalli sem stríðsátökin í Persaflóa hafa valdið, sem við vitum að mun hafa áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar.“ Hægir á en verðbólga enn mikil Á sama tíma bendi töluvert magn upplýsinga til þess að nú hægi á íslenska hagkerfinu. Það allt saman tali fyrir minni breytingum á stýrivöxtum. „Það er hins vegar alveg ljóst að verðbólgan er meiri en við hefðum viljað sjá og það talar fyrir hærri stýrivöxtum.“ Hverju áttu von á á morgun? „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn en einhverjar breytingar til hækkunar kæmu mér ekki á óvart.“ Of mikil kólnun ekki af hinu góða Þá segir hann að Seðlabankinn sé í eðli sínu varfærin stofnun og því ætti hann erfitt með að rökstyðja vaxtalækkun á næstunni, sé litið til verðbólguvæntinga á markaði. Hins vegar sé það þannig að horfa þurfi mjög vandlega til þess hversu mikla hægingu hagkerfið þoli án þess að kostnaðurinn af henni verði meiri en hægt sé að sætta sig við. Hvað ertu að tala þá um? „Ef að hægir á íslenska hagkerfinu, þá kemur það auðvitað fram í atvinnuleysi, verri afkomu fyrirtækja, ekkert af þessu viljum við sjá af því að þetta eru þá neikvæðir hlutir í lífi fjölda Íslendinga sem að auðvitað við viljum reyna að forðast og það er bara þannig að ákvarðanir Seðlabankans taka langan tíma að koma fram. Þess vegna þarf að beita þeim með svona framsýnu auga, horfa fram í tímann og hugsa: eru afleiðingarnar af þessu réttlætanlegar til að ná niður verðbólgu ef þær valda neikvæðum áhrifum á líf Íslendinga?“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Seðlabankinn Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent PlayStation 5 slær Xbox 360 við Viðskipti erlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira