Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Eiður Þór Árnason skrifar 28. apríl 2026 17:20 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Flugfélagið Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er minna tap í krónum talið en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam 6,1 milljarði króna. Jákvæð gengisáhrif komu til lækkunar á tapi síðasta árs en Icelandair gerir upp í bandaríkjadölum. Ef horft er til þess þá eykst tap milli ára og fer úr 44,1 milljón dala í 45,3 milljónir dala í ár.
Þrátt fyrir þetta hafa tekjur félagsins aldrei verið hærri, að sögn stjórnenda. Jukust þær um 21% milli ára og voru 42,9 milljarðar króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Samhliða þessu voru hærri tekjur á hvern seldan sætiskílómetra og metsætanýting. Skilaði þetta tvennt 7% hækkun á einingatekjum Icelandair á tímabilinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Rekstrarafkoma batnaði og var EBIT tap að fjárhæð 6,6 milljarðar króna, sem er bæting um 1,1 milljarð króna á milli ára. EBIT hlutfalli batnaði sömuleiðis og fór úr því að vera neikvætt um 21,7% á síðasta ári í neikvætt um 15,4% á fyrsta ársfjórðungi nú. Bogi Nils Bogason forstjóri segir að fjárhagsstaða félagsins sé sterk og lausafjárstaðan hækkað um 107 milljónir bandaríkjadali miðað við sama tíma í fyrra „sem gerir okkur vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru, ásamt áframhaldandi áherslu á kostnaðaraðhald og hagræðingu í rekstri.“ Þetta er haft eftir Boga í tilkynningu til Kauphallar. Hann segir að tekjumetið endurspegli áherslu á markaðina til og frá Íslandi sem skili betri framlegð við núverandi markaðsaðstæður en tengiflug yfir Atlantshafið. „Tekjur af fraktstarfsemi jukust einnig á milli ára og afkoma af leiguflugi var góð í fjórðungnum. Gengisáhrif og launahækkanir höfðu neikvæð áhrif á kostnaðarþróun en við héldum áfram að leggja áherslu á stundvísi og hagræðingu í rekstri.“ Bogi segir að snörð hækkun olíuverðs hafi ekki haft teljandi áhrif á afkomu félagsins í ársfjórðungnum en meiri áhrif þessara hækkana sé að vænta frá og með öðrum ársfjórðungi. „Til að bregðast við þessari stöðu höfum við dregið flugframboð saman um rúmlega 2% frá miðjum apríl til loka júní. Þá eru hækkanir á farmiðaverði óhjákvæmilegar og fargjöld hafa verið hækkuð frá því að þessi þróun eldsneytisverðs hófst. Þetta hefur þó ekki haft mælanleg áhrif á eftirspurn eins og staðan er í dag,“ fullyrðir Bogi. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Sjá meira