Viðskipti innlent

Treble hlaut Ný­sköpunar­verð­launin

Agnar Már Másson skrifar
Hanna Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti Treble-teyminu verðlaunin.
Hanna Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti Treble-teyminu verðlaunin. Aðsend

Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun ársins 2026 en félagið hefur þróað og markaðssett hljóðhermunartækni sem endurskapar raunverulegar hljóðaðstæður í sýndarumhverfi.

Tæknin nýtist meðal annars við hönnun bygginga, þróun hljóðbúnaðar og gervigreindar sem þarf að geta skynjað og túlkað hljóð í umhverfi sínu.

Frá þessu er greint í tilkynningu en verðlaunin voru veitt á Nýsköpunarþingi í dag.

Treble Technologies var stofnað árið 2020 og hefur byggt upp alþjóðlega starfsemi með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið þróar hugbúnað sem tæknifyrirtæki, hönnuðir og aðrir sérfræðingar nýta til að herma eftir því hvernig hljóð berst og hegðar sér í raunverulegu umhverfi.

Á undanförnum árum hefur Treble nýtt hljóðhermunartækni sína til að styðja við þróun tækja og gervigreindar sem geta skynjað og skilið hljóð við raunverulegar aðstæður, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Í umsögn dómnefndar segir að Treble Technologies sýni með eftirtektarverðum hætti hvernig íslenskt rannsóknar- og þróunarstarf geti lagt grunn að alþjóðlegu tæknifyrirtæki. Með sérhæfðri þekkingu á sviði hljóðhermunar hafi fyrirtækið þróað tækni sem hafi skapað því sterka sérstöðu á alþjóðlegum markaði. Hröð þróun gervigreindar hafi opnað nýja möguleika fyrir tækni Treble og fyrirtækið hafi sýnt framsýni með því að nýta þekkingu og tækni sem upphaflega var þróuð fyrir hljóðhermun til að mæta nýjum þörfum á sviði gervigreindar.

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Nýsköpunarsjóðnum Kríu, Íslandsstofu og Hugverkastofu til félaga sem skara fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim tengslum milli rannsókna, hugvits og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. 

Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×