Gömul viðhorf til leikskóla lifa enn Anna Margrét Ólafsdóttir skrifar 28. apríl 2026 07:15 Þegar ég hóf leikskólakennaranám haustið 1991 sagði hneykslaður karlkyns fjölskyldumeðlimur við mig: „Ætlarðu að fara í þriggja ára nám til að læra það sem konur hafa kunnað alla tíð“. Auðvitað hunsaði ég þessi viðbrögð enda ein besta ákvörðun lífs míns að verða leikskólakennari. Þessi orð komu þó upp í hugann þegar ég hlustaði á oddvita Sjálfstæðisflokksins tala um leikskólamál á Sprengisandi fyrir stuttu. Þessi unga og vel menntaða kona er í grunninn með nákvæmlega sömu viðhorf til leikskólastarfsins og sá sem hneykslaðist á mér fyrir 35 árum síðan. Frá því að ég hóf leikskólakennaranám hefur sem betur fer margt breyst og þróast til betri vegar. Því verður þó ekki neitað að það vantar fleiri leikskólakennara til starfa og þótt ég muni líklegast ekki lifa það að nóg verði af leikskólakennurum þarf að stefna þangað með fjölbreyttum leiðum. Það að stytta leikskólakennaranámið aftur er ekki ein af þeim leiðum sem á að fara, þessi hugmynd Hildar Björnsdóttur er galin, sýnir mikið virðingarleysi gagnvart leikskólakennurum og sýnir mikla vanþekkingu á því starfi sem fer þar fram. Það er líka ömurlegt að heyra Hildi tala um daggæsluúrræði í samvinnu við stærri vinnustaði. Af hverju talar hún ekki bara hreint út og talar um geymslu fyrir foreldrana á meðan þeir sinna sinni vinnu?. Leikskólinn er skv. lögum fyrsta skólastigið en eins ótrúlega og það hljómar þá er Ísland eitt Norðurlandanna þar sem réttur barna til leiskóladvalar er ekki lögfestur. Það er hreinlega gat á milli fæðingarorlofs og grunnskólagöngu og börn eiga í raun engan rétt á leikskólaplássi. Það er ekki einu sinni skylda sveitarfélaganna að reka leikskóla. Sem betur fer er sú staða ekki uppi að sveitarfélög kjósi að sleppa leikskólanum enda væri samfélagið lamað ef því væri þannig háttað. Það eiga að vera sameiginlegir hagsmunir ríkis og sveitarfélaga að reka góða leikskóla og því nauðsynlegt að vinna markvisst að því að þessu verði breytt. Það að taka samtal strax við ríkisvaldið um þá breytingu er góð byrjun. Þess vegna kýs ég Samfylkinguna. Til að tryggja börnum þá menntun sem þau eiga að fá í leikskólanum þarf mun fleiri leikskólakennara og eins og sagt er hér að ofan er lausnin ekki að stytta námið. Hugsum út fyrir boxið og finnum leiðir sem gætu fjölgað fagfólkinu. Hvetjum fleiri til að fara í námið t.d. með námsstyrkjum til þeirra sem nú þegar starfa í leikskóla og vilja afla sér menntunar. Horfum fram á veginn en ekki í baksýnisspegil íhaldsins. Þess vegna kýs ég Samfylkinguna. Það er mjög mikilvægt að systkini geti verið í sama leikskóla en eins og staðan er núna er það alls ekki tryggt. Það er fátt eins ömurlegt í mínu starfi og það að koma ekki yngra systkini inn í leikskólann þegar innritun á sér stað. Það er ekki einu sinni tryggt að yngra systkinið komist að í sama hverfi. Þetta er óþarfa álag á barnafjölskyldur og það þarf að tryggja forgang yngri systkina í sama leikskóla og það eldra er. Þess vegna kýs ég Samfylkinguna. Um síðustu mánaðamót tók Reykjavíkurleiðin svokallaða gildi í Reykjavík og hafa viðbrögð foreldra almennt verið góð þótt ég telji að við sjáum ekki hvort og hvernig hún virkar fyrr en í haust. Reykjavíkurleiðin felur í sér að 36 stundir barns í leikskóla eru gjaldfrjálsar og því einungis greitt fyrir fæði. Hógvær gjaldtaka er fyrir umframvistun og er hún tekjutengd. Rukkað er fyrir sérstaka skráningardaga og foreldrar eru hvattir til að sækja börnin sín fyrr á föstudögum. Þetta er allt liður í að bæta starfsaðstæður í leikskólum borgarinnar og koma til móts við þann mismun sem er á vinnutíma starfsfólks og dvalartíma barna. Þótt þessar aðgerðir hjálpi varðandi styttri vinnuviku starfsfólks duga þær ekki því stytting vinnuvikunnar kostar meira en þessar aðgerðir einar og sér og það veit Samfylkingin sem ætlar að setja 600 milljónir í leikskólana til að bæta manneklu og starfsaðstæður. Þess vegna kýs ég Samfylkinguna. Þann 16. maí munum við Reykvíkingar kjósa okkur nýja borgarstjórn. Það er mjög mikilvægt að hafa í huga hvert við viljum stefna. Viljum við minni menntun starfsmanna fyrir okkar yngstu og bestu þegna? Viljum við að stefna Sjálfstæðisflokksins verði ofan á þar sem litið er á leikskólann sem geymslustað á meðan foreldrarnir sinna vinnu eða viljum við metnaðarfulla leikskóla þar sem leikskólakennurum fjölgar jafnt og þétt á komandi árum með auknum gæðum í leikskólastarfi? Í mínum huga er valið auðvelt og þess vegna kýs ég Samfylkinguna. Höfundur er leikskólastjóri og í 16. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Samfylkingin Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar