Skoðun

Skóg­rækt er þjóðaröryggis­mál

Auður Elva Kjartansdóttir skrifar

Á Loftslagsdeginum í gær voru loftslagsbreytingar og öryggi í brennidepli. Dagskráin spannaði þjóðaröryggi, orkuöryggi, fæðuöryggi og samfélagsöryggi. Þetta eru brýn viðfangsefni sem eiga fullt erindi við okkur öll. Skógar og skógrækt er tengjast mörgum þeirra áskorana og lausna sem rætt var um og ættu að fá meira vægi í umræðunni. Með ljóstillífun taka tré upp koltvísýring úr andrúmsloftinu og nýta orku sólar til vaxtar. Þannig binst kolefni í viði, rótum og öðrum hlutum trjánna. En framlag skóga til loftslagsmála og öryggis samfélagsins nær langt út fyrir kolefnisbindinguna eina.

Ég tel að við þurfum að líta á skógrækt sem langtímafjárfestingu í þjóðaröryggi. Samfélag sem verndar jarðveg sinn, styrkir eigin framleiðslugetu og byggir upp endurnýjanlegar auðlindir stendur betur að vígi þegar á reynir. Vel skipulögð skógrækt getur lagt sitt af mörkum á öllum þessum sviðum.

Fæðuöryggi

Skógar, skjóllundir og skjólbelti geta varið jarðveg gegn vind- og vatnsrofi og bætt skilyrði fyrir landbúnað. Skjól fyrir ræktun og búfé er áþreifanlegt framlag til framleiðslugetu landsins. Skipuleggja þarf skógrækt og matvælaframleiðslu saman.

Skógurinn getur líka verið matarkista — bæði fyrir menn og dýr. Þar má finna æta sveppi, nýta safa, síróp, ber og jurtir. Slík nýting getur aukið fjölbreytni staðbundinnar fæðuöflunar og kennt okkur að þekkja og nýta það sem landið gefur. Í samfélagsskógum geta börn og fullorðnir lært saman um ætar tegundir, ábyrga uppskeru og leiðina frá náttúru til matarborðs.

Innlend auðlind styrkir viðnámsþrótt

Með uppbyggingu skógarauðlindar getum við aukið möguleika okkar á innlendri viðarframleiðslu og úrvinnslu. Ef við viljum geta nýtt innlent hráefni þegar aðflutningar verða ótryggir, þarf framleiðslugetan að vera til staðar. Hana verður að byggja upp með samfellu. Langur vaxtartími skóga er því sterk rök fyrir því að hefjast handa núna. Ákvarðanir dagsins í dag ráða því hvaða auðlindir og valkosti komandi kynslóðir hafa.

Skógurinn er líka orka

Á Loftslagsdeginum var töluvert rætt um orkuöryggi og slökkt á ljósunum til að beina athygli okkar að mikilvægi orkunnar. Skógurinn er orka. Eldiviður, viðarkurl og viðarkögglar, oft nefndir pellet, er hægt að nýta til hitunar — einnig á svæðum þar sem ekki er jarðhiti. Með ábyrgri nýtingu skógarauðlindar og afgangsefna úr viðarvinnslu getum við kannað fleiri leiðir til innlendrar orkuframleiðslu. Fjölbreyttir orkugjafar geta styrkt viðbúnað og komið í veg fyrir að við séum háð fáum lausnum og innflutningi.

Orka úr viði er ekki sjálfkrafa kolefnishlutlaus. Meta þarf uppruna hráefnis, endurvöxt skóga, vinnslu, flutninga og hvaða orkugjafa hún kemur í staðinn fyrir. Hér á landi þarf jafnframt að skoða hvar slík nýting getur bætt við þá kosti sem jarðhiti og raforka veita þegar.

Frá skógi til loftslagslausna

Loftslagsframlag skóga nær einnig til þess hvernig afurðir þeirra eru nýttar. Viður í endingargóðum mannvirkjum getur varðveitt kolefni og komið í stað losunarfrekari efna, að því gefnu að hráefnisöflun og nýting séu sjálfbær. Þannig tengjast skógrækt, byggingariðnaður og loftslagsaðgerðir.

Lífkol, sem framleiða má úr viðarleifum með hitun við takmarkað súrefni, eru dæmi um frekari nýtingarmöguleika. Rannsóknir á notkun þeirra í steypu sýna möguleika á að geyma kolefni í byggingarefninu og minnka kolefnisspor þess. Ávinningurinn ræðst þó af framleiðsluaðferð, samsetningu og eiginleikum steypunnar og þarf að meta yfir lífsferil hennar.

Einnig er verið að rannsaka lífkol sem fóðuríblöndun til að draga úr metanlosun nautgripa. Þar eru niðurstöður enn misjafnar og því rétt að tala um rannsóknar- og þróunartækifæri fremur en tryggðan ávinning. Einnig hafa viðarkol verið rannsökuð sem íblöndun í fiskafóður með það að markmiði að bæta fóðurnýtingu og heilbrigði eldisfisks, sem sýnir enn eina mögulega tengingu skógarafurða við matvælaframleiðslu.

Ábyrg ræktun og langtímaumhirða

Skógarnir sjálfir þurfa líka að þola breyttar aðstæður. Umhirða, fjölbreytni, vöktun og viðbúnaður vegna gróðurelda og skaðvalda eru hluti af því að varðveita auðlindina. Árangurinn verður að meta út frá því hvernig skógarnir lifa, þroskast og þjóna samfélaginu.

Vernd skóga, endurheimt birkiskóga, ræktun nýrra skóga og endurheimt annarra vistkerfa þurfa að vinna saman. Samhliða verður að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Samfélagsskógar fyrir komandi kynslóðir

Skógur getur verið sameiginlegt verkefni heils samfélags. Í samfélagsskógi geta börn, fjölskyldur, skólar og félagasamtök komið saman, gróðursett, hlúð að trjánum og fylgst með skóginum vaxa. Þar skapast vettvangur fyrir nám, leik, útivist og samveru.

Við þurfum að gefa börnum tækifæri til að mynda eigin tengsl við náttúruna. Að setja plöntu í mold, koma aftur að henni og sjá hana vaxa er reynsla sem getur kennt þolinmæði, umhyggju og ábyrgð. Hún gerir loftslagsmálin áþreifanleg og gefur börnum færi á að taka þátt í að móta framtíðina.

Fjárfesting í skógrækt

Eina erindið á Loftslagsdeginum sem fjallaði sérstaklega um tré og samfélag var frábært erindi um samfélagslegt skógræktarverkefni í Síerra Leóne. Það vakti mig til umhugsunar: Getum við ekki líka horft okkur nær og nýtt lærdóminn hér á Íslandi? Byggjum upp samfélagsskóga þar sem börn tengjast náttúrunni, kynslóðir vinna saman og umhyggja fyrir landi vex.

Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur.




Skoðun

Sjá meira


×