Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar 29. október 2026 22:34 Muhammad Taqi Usmani flutti fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi við Bústaðaveg í október þegar hann var gestkomandi hér á landi. Samkvæmt fjölmiðlum hefur hann varið dauðarefsingar á fólki sem snýr frá íslamskri trú sinni. Einnig hefur hann varið refsingar á borð við aflimanir og grýtingar sem grundvallaðar eru á strangri túlkun á íslömskum rétti. Slík orðræða er meiðandi og ógnandi. Hún er einnig framandi fyrir okkar samfélag. Hverjum dettur slíkt í hug í okkar vestræna, kristna samfélagi? Fyrir um 2000 árum var Jesús einmitt spurður hvað gera ætti við konu eina sem staðin var að því að brjóta mikilvægar reglur samfélagsins, en samkvæmt þágildandi reglum átti einmitt að grýta hana. Jesús svaraði: „Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana!“ Engum þar fannst hann svo hvítstrokinn í því samhengi að hann riði á vaðið. Og boðskapur frásögunnar sá að Jesús hafnaði algerlega slíkri lögmálshyggju og grýtingum. Á því byggjum við okkar samfélag, þ.e. á miskunn og fyrirgefningu, réttlæti og kærleika. Ábyrgðin sem fylgir tjáningarfrelsinu Tjáningarfrelsið er grundvallandi fyrir mannréttindi okkar allra. Slíku frelsi fylgir ábyrgð. Þegar einstaklingur eða hópur beitir tjáningarfrelsi sínu á þann máta að velferð annarra, einstaklinga eða hópa í samfélaginu er ógnað, þá er okkur vandi á höndum. Við hljótum öll að hafna málflutningi, líkt og þeim er birtist í skrifum Muhammad Taqi Usmani. Við verðum í sameiningu að standa vörð um velferð alls fólks sem byggir okkar samfélag. Með tjáningu okkar í þeim efnum setjum við fólki mörk og krefjum fólk um að bera ábyrgð á orðum sínum. Kristni og Islam Getum við stillt því þannig upp að Íslamstrú sé svona forpokuð og Kristni í takt við nútímann? Nei, svo einfalt er málið ekki. Ég leyfi mér að fullyrða að skoðanir Usmani eru jaðarskoðanir sé litið til skoðana íslenskra múslima. Og svo er það þannig að í samfélagi okkar eru kristin trúfélög sem vígja ekki konur til þjónustu. Í því sambandi er bæði hægt að horfa til kaþólskrar kirkju, rétttrúnaðarkirkju og hvítasunnuhreyfinga. Ekki er það í samræmi við jafnréttislög, jafnréttisáætlanir eða annað sem tryggir öllum kynjum samfélagsins ákveðin grundvallar mannréttindi. Í samfélagi okkar eru svo kristin trúfélög sem viðurkenna ekki samband né hjónaband samkynhneigðra. Slíkt má segja að brjóti í bága við lög frá Alþingi. Þá mætti spyrja hvort það sé bara í lagi? Þjóðkirkjan vígir konur til þjónustu og sinnir þjónustu við hjónavígslur samkynhneigðra. Þjóðkirkjan og önnur kristin trúfélög En er þar með allt frábært hjá þjóðkirkjunni og ómögulegt hjá öðrum kristnum hreyfingum í landinu? Nei, svo einfalt er málið ekki. Þjóðkirkjan glímir við ýmsar áskoranir, hefur glímt við ýmsar áskoranir og þannig verður það áfram. Trúartextar Bæði kristin trú og íslömsk trú byggir á fornum textum. Biblían er grundvallarrit kristinna manna og Kóraninn er grundvallarrit múslima. Bæði trúarbrögðin eru að stofni til Abrahams-trúarbrögð og eiga því sameiginlegan grundvöll, þar sem gestrisni og blessun í garð annarra eru grundvallar tónar. Forna texta þarf að túlka. Hvað þýða textarnir fyrir samfélag okkar í dag? Til dæmis spurningin: Hver er náungi minn? Sú spurning er mjög Biblíuleg, þar sem í Biblíunni er stöðugt verið að takast á um það atriði. Um það atriði þurfum við einnig stöðugt að ræða og takast á um, því svarið er ekki einfalt í framkvæmd. Samfélag okkar á öllum tímum er líka stöðugt að svara þeirri spurningu með ýmiskonar löggjöf og forgangsröðun verkefni. Til dæmis varðandi umönnun aldraðra, þjónustu við börn með sérþarfir, stöðu fólks af erlendu bergi og þannig mætti áfram telja. Íslensk menning Kannski er það svo að íslenskt samfélag hefur látið okkur prestum og öðrum forsvarsmönnum trúfélaga alfarið eftir það hlutverk að túlka hina fornu texta. Kannski er það ekki nógu gott og því þyrftum við í sameiningu að breyta. Kannski er það orðið svo að við þurfum núna öll, ekki bara prestar og forsvarsmenn trúfélaga, að taka þátt í einmitt þessari túlkun og útfærslu á hinum fornu textum. Um hvað fjalla textarnir? Hvernig lest þú? Hvaða boðskap hafa textarnir að færa inn í okkar samtíma? Ábyrðin á túlkuninni er okkar allra. Ábyrðin á því að þróa orðræðuna er mín og einnig þín. Ég vil hvetja þig kæri lesandi til að axla þá ábyrgð með mér. Kannski getum við axlað þá ábyrgð í sameiningu með því að spyrja ávallt þeirrar spurningar: Hvað myndi Jesús gera? Hvað myndi Jesús gera í þessum aðstæðum eða hinum? Hvað myndi Jesús gera varðandi málflutning sem fjallar um aflimanir, grýtingar og dauðarefsingar? Hafna algerlega slíkum málflutningi Fyrir mitt leyti hafna ég algerlega málflutningi sem réttlætir dauðarefsingar, aflimanir og grýtingar. Ég leyfi mér að hafna slíkum málflutningi sérstaklega nú þar sem trúfélag þetta, sem skapar slíkum málflutningi vettvang, er með höfuðstöðvar sínar við sömu götu og ég þjóna hér í Bústaðakirkju, hér vestar á Bústaðaveginum. Merkilegt þykir mér að slík orðræða sé nú komin svo nálægt okkur bæði í tíma og rúmi. Ég tel að það sé vísbending um að við þurfum öll að leggja okkar að mörkum til túlkunar og útfærslu á textunum. Slíkt gerum við vitanlega af mildi en samt festu, án þess að draga fólk í dilka eftir merkimiðum trúar og uppruna, aldurs eða kyns eða annars slíks, vitandi að margt má betur fara í okkar eigin lífi. Höfundur er sóknarprestur í Fossvogsprestakalli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun