Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 28. október 2026 22:01 Undanfarnar vikur hafa birst óþægilegar fréttir af öryggi barna og starfsmanna í skólum. Nýjustu PISA-niðurstöður sýna að aðeins 56% íslenskra ungmenna ná grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskóla. Í Kveik í gær var síðan fjallað um börn með fjölþættan vanda sem hafa verið vistuð í rándýrum einkareknum búsetuúrræðum með lítilli betrun. Þessi mál eiga sameiginlegan þráð og eru birtingarmynd kerfis sem hefur of lengi ruglað saman jöfnuði og einsleitni. Hugsjónin um skóla án aðgreiningar er falleg: Að ekkert barn sé útilokað og öll börn tilheyri samfélaginu. En í framkvæmd hefur hún allt of oft orðið að þröngsýnni kennisetningu um að öll börn eigi að vera í sama rými, í sama kerfi og sömu aðstæðum, óháð þörfum þeirra. Barn sem ræður illa við stórt og hávaðasamt skólaumhverfi er ekki endilega hluti af hópnum þótt það sitji inni í almennri kennslustofu. Barn með alvarlegan tilfinninga-, hegðunar- eða geðrænan vanda fær ekki hjálp við hæfi með því einu að vera látið dvelja innan um þrjátíu önnur börn. Og bekkjarfélagar þess eiga líka rétt á öryggi, kennslu og athygli. Barn sem er með annan bakgrunn, annað móðurmál og aðra menningu nær ekki að aðlagast íslenskum veruleika og læra íslensku á því að sitja í smekkfullri skólastofu og fylgja hópnum. Ofbeldishegðun, vanlíðan og síendurtekin áföll eru merki um að barn þurfi raunverulega og sérhæfða aðstoð. Skortur á litlum námsúrræðum, sérhæfðum skólum, meðferðarúrræðum og faglegri eftirfylgd hefur afleiðingar. Barnið sem þarf mestan stuðning fær hann ekki. Önnur börn missa kennslutíma og upplifa óöryggi. Kennarar og annað starfsfólk brenna út. Foreldrar þurfa að berjast árum saman. Að lokum greiðir samfélagið fyrir rándýr neyðar- og búsetuúrræði þegar vandinn er orðinn miklu stærri. Sérúrræði eru ekki það sama og útilokun. Rétt úrræði, á réttum tíma og með fagfólki, getur sparað okkur mikinn tíma, fjármagn og bjargað mannslífum. Niðurstöður PISA. Umfjöllun Kveiks. Ofbeldi í skólum. Allt þetta vil ég tengja við það hvernig stefnan um skóla án aðgreiningar var framkvæmd á landsvísu. Amma Arnars Atla hafði einmitt orð á því í Kveik á RÚV í gær „Þegar við flytjum upp í Hamrahverfið var ég svo ánægð því það var einhverfudeild þar og ég hugsaði að nú fengi hann þá hjálp sem hann þyrfti. En þá var akkúrat einhverfudeildin lögð niður og skóli án aðgreiningar settur í gang, sem er það fáránlegasta sem hefur verið gert, held ég.“ Ég er sammála. Þetta er það fáránlegasta sem hefur verið gert. Stefnan um skóla án aðgreiningar má missa sín. Hún er að mínu mati orsök þess að mörg börn ná ekki að fóta sig í skólakerfinu með slæmum afleiðingum. Ég legg til að við leggjum þessa stefnu niður. Mætum börnum með viðeigandi úrræðum. Fjölgum móttökudeildum, sérstökum úrræðum, sérskólum, einhverfudeildum og námsleiðum fyrir börn með afburða námsgetu. Þá fyrst förum við að sjá börn blómstra. Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Börn og uppeldi Grunnskólar Miðflokkurinn Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Undanfarnar vikur hafa birst óþægilegar fréttir af öryggi barna og starfsmanna í skólum. Nýjustu PISA-niðurstöður sýna að aðeins 56% íslenskra ungmenna ná grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskóla. Í Kveik í gær var síðan fjallað um börn með fjölþættan vanda sem hafa verið vistuð í rándýrum einkareknum búsetuúrræðum með lítilli betrun. Þessi mál eiga sameiginlegan þráð og eru birtingarmynd kerfis sem hefur of lengi ruglað saman jöfnuði og einsleitni. Hugsjónin um skóla án aðgreiningar er falleg: Að ekkert barn sé útilokað og öll börn tilheyri samfélaginu. En í framkvæmd hefur hún allt of oft orðið að þröngsýnni kennisetningu um að öll börn eigi að vera í sama rými, í sama kerfi og sömu aðstæðum, óháð þörfum þeirra. Barn sem ræður illa við stórt og hávaðasamt skólaumhverfi er ekki endilega hluti af hópnum þótt það sitji inni í almennri kennslustofu. Barn með alvarlegan tilfinninga-, hegðunar- eða geðrænan vanda fær ekki hjálp við hæfi með því einu að vera látið dvelja innan um þrjátíu önnur börn. Og bekkjarfélagar þess eiga líka rétt á öryggi, kennslu og athygli. Barn sem er með annan bakgrunn, annað móðurmál og aðra menningu nær ekki að aðlagast íslenskum veruleika og læra íslensku á því að sitja í smekkfullri skólastofu og fylgja hópnum. Ofbeldishegðun, vanlíðan og síendurtekin áföll eru merki um að barn þurfi raunverulega og sérhæfða aðstoð. Skortur á litlum námsúrræðum, sérhæfðum skólum, meðferðarúrræðum og faglegri eftirfylgd hefur afleiðingar. Barnið sem þarf mestan stuðning fær hann ekki. Önnur börn missa kennslutíma og upplifa óöryggi. Kennarar og annað starfsfólk brenna út. Foreldrar þurfa að berjast árum saman. Að lokum greiðir samfélagið fyrir rándýr neyðar- og búsetuúrræði þegar vandinn er orðinn miklu stærri. Sérúrræði eru ekki það sama og útilokun. Rétt úrræði, á réttum tíma og með fagfólki, getur sparað okkur mikinn tíma, fjármagn og bjargað mannslífum. Niðurstöður PISA. Umfjöllun Kveiks. Ofbeldi í skólum. Allt þetta vil ég tengja við það hvernig stefnan um skóla án aðgreiningar var framkvæmd á landsvísu. Amma Arnars Atla hafði einmitt orð á því í Kveik á RÚV í gær „Þegar við flytjum upp í Hamrahverfið var ég svo ánægð því það var einhverfudeild þar og ég hugsaði að nú fengi hann þá hjálp sem hann þyrfti. En þá var akkúrat einhverfudeildin lögð niður og skóli án aðgreiningar settur í gang, sem er það fáránlegasta sem hefur verið gert, held ég.“ Ég er sammála. Þetta er það fáránlegasta sem hefur verið gert. Stefnan um skóla án aðgreiningar má missa sín. Hún er að mínu mati orsök þess að mörg börn ná ekki að fóta sig í skólakerfinu með slæmum afleiðingum. Ég legg til að við leggjum þessa stefnu niður. Mætum börnum með viðeigandi úrræðum. Fjölgum móttökudeildum, sérstökum úrræðum, sérskólum, einhverfudeildum og námsleiðum fyrir börn með afburða námsgetu. Þá fyrst förum við að sjá börn blómstra. Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun