Skoðun

Norður­lönd gætu misst Græn­land og Fær­eyjar ef endur­skoðun Helsing­fors­samningsins dregst á langinn

Maiken Poulsen Englund, Lars Barfoed, Torbjörn Nyström, Sara Fleischer og Hrannar Björn Arnarsson skrifa

Norrænu ríkisstjórnirnar verða nú að skýra hvaða stöðu Færeyjar, Grænland og Álandseyjar eigi að hafa í opinberu samstarfi Norðurlanda. Úr því á að fá skorið í yfirstandandi endurskoðun Helsingforssamningsins, en sú vinna hefur tafist. Við hvetjum ríkisstjórnirnar til að ljúka verkinu eftir skýrri tímaáætlun og í nánu samráði við löndin þrjú. Lögfræðilega úttektin liggur fyrir og nú er það ríkisstjórnanna að finna lausn. Dragist málið á langinn gætu Norðurlönd misst Grænland og Færeyjar.

Helsingforssamningurinn hefur frá árinu 1962 verið grundvöllur opinbers samstarfs Norðurlanda. Aðilar að honum eru norrænu ríkin fimm. Staða landanna þriggja í honum hefur árum saman verið eitt mikilvægasta óleysta álitamálið í samstarfinu, og hún er fjarri því að vera formsatriði eitt.

Á þingi Norðurlandaráðs í Ósló í október 2023 sagði formaður grænlensku landstjórnarinnar, Múte B. Egede: „Ef þið viljið ekki taka vináttuna við okkur alvarlega og tryggja að við séum með og að á okkur sé hlustað, verðum við að endurskoða þátttöku okkar hér.“ Í maí 2024 gerðu Grænlendingar hlé á þátttöku í samstarfi norrænu ráðherranna, eftir að Svíar, sem þá fóru með formennsku í samstarfinu, tilkynntu að löndunum þremur yrði ekki boðið á sumarfund norrænu forsætisráðherranna. Á þinginu í Reykjavík í október 2024 sagði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen: „Annaðhvort erum við alveg með eða alls ekki.“

Við tökum þessi orð alvarlega. Bæði Grænland og Færeyjar hafa gert ljóst að þátttaka þeirra í samstarfinu velti á því hvernig málið verður leyst. Við höfum áhyggjur af afleiðingunum fyrir norrænt samstarf ef málið dregst á langinn, ekki síst nú þegar samstarf um öryggis- og viðbúnaðarmál á Norðurlöndum og norðurslóðum hefur fengið nýtt vægi.

Það var Norðurlandaráð, samstarfsvettvangur norrænu þinganna, sem átti frumkvæði að því að uppfæra samninginn. Ráðið samþykkti einróma í október 2024 tilmæli 21/2024, sem meðal annars kveða á um að þátttaka Færeyja, Grænlands og Álandseyja í samstarfinu skuli endurspegla þróun sjálfstjórnar þeirra. Að frumkvæði Færeyinga hefur ráðið auk þess veitt löndunum þremur föst sæti í forsætisnefnd sinni frá 1. janúar 2026, og árið 2027 deila Danmörk, Færeyjar og Grænland formennskunni í Norðurlandaráði.

Ríkisstjórnirnar hafa líka hafist handa. Í febrúar 2025 ákváðu þær að láta gera lögfræðilega úttekt á þeim ramma sem þjóðarétturinn setur þátttöku landanna þriggja í samningnum. Úttektin, sem Elina Pirjatanniemi og samstarfsfólk hennar við Åbo Akademi unnu, var birt í febrúar 2026. Hinn 16. mars 2026 skipuðu samstarfsráðherrarnir starfshóp með fulltrúum ríkisstjórna allra landanna átta, sem á að gera tillögur að breytingum á Helsingforssamningnum um þátttöku landanna þriggja. Þetta eru mikilvæg skref og við kunnum að meta það starf sem unnið hefur verið.

Samkvæmt erindisbréfinu áttu tillögur starfshópsins að liggja fyrir á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í þessari viku. Þess í stað fá samstarfsráðherrarnir stöðuskýrslu um starfið á fundi sínum 28. október. Við skiljum að svo mikilvægt mál krefjist vandaðs undirbúnings, en við vonum að stöðuskýrslan verði áfangi á leiðinni að lausn á málinu, ekki endapunktur. Því lengur sem málið dregst, þeim mun erfiðara verður að halda því trausti sem byggst hefur upp. Þess vegna liggur á.

Maiken Poulsen Englund, formaður Norræna félagsins á Álandseyjum (Föreningen Norden Åland)

Lars Barfoed, formaður Norræna félagsins í Danmörku (Foreningen Norden Danmark)

Torbjörn Nyström, formaður Norræna félagsins í Færeyjum (Norrøna Felagið í Føroyum)

Sara Fleischer, formaður Norræna félagsins á Grænlandi (Foreningen Norden Grønland)

Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi




Skoðun

Sjá meira


×