Skoðun

Hall­gríms­kirkja heillar

Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Hallgrímskirkja er fjölsótt og vinsæl. Hún vekur athygli ferðalanga sem koma akandi frá Keflavík. Kirkjuturninn og kirkjuskipið gnæfa yfir borg og byggð og móta borgarlínuna. Þegar farið er um Kjalarnes þykir mörgum töfrandi að sjá Hallgrímskirkjuturn bera nákvæmlega við Keili. Arkitektaskólar senda fólk til Íslands til að skoða kirkjuna og byggingarlist Guðjóns Samúelssonar.

Ferðamenn koma í kirkjuna meðal annars vegna þess að fjölmiðlar heimsins hafa lyft henni í hæðir topplistanna. Árið 2015 valdi Architectural Digest Hallgrímskirkju sem eina af tuttugu fegurstu trúarbyggingum heims. Ári síðar útnefndi The Guardian kirkjuna sem eina af tíu mikilvægustu íhugunarhúsum heims. Ferðavefurinn Big Seven Travel birtir árlega lista yfir fimmtíu fallegustu byggingar heims. Á listanum árið 2021 var Hallgrímskirkja í 38. sæti. Ekkert annað hús á Norðurlöndunum komst inn á hann. Sem sé Hallgrímskirkja var samkvæmt þessum lista fegursta hús Norðurlanda. Mörgum þykir óperuhúsið í Sydney fagurt en Hallgrímskirkju var þó raðað ofar það árið!

Hallgrímskirkja er orðin klassík. Árið 2021 valdi ferðatímarit Condé Nast Traveler Hallgrímskirkju eina af sautján fegurstu kirkjum heims. Á árunum 2024–2025 skipaði National Traveller henni í áttunda sæti á lista yfir tíu fegurstu kirkjur veraldar. Árið 2025 varð svo Hallgrímskirkja í öðru sæti á lista Time Out yfir 24 fegurstu byggingar heims, næst á eftir Taj Mahal á Indlandi. Þar með var hún efst allra evrópskra bygginga á listanum. Árið 2026 skipaði ferðavefurinn Love Exploring Hallgrímskirkju í níunda sæti yfir fegurstu byggingar heims. Kirkjan, sem var umdeild og sumum þótti framandi í íslenskri byggingarlist, er orðin eitt þekktasta og dáðasta kennileiti landsins.

Fegurð og gildi Hallgrímskirkju verður ekki aðeins mælt í sætum á alþjóðlegum listum. Kirkjan gegnir mörgum hlutverkum. Hún er sóknarkirkja, þjóðarhelgidómur, fang listviðburða og ljóshús stórviðburða. Hún er áfangi ferðalanga, pílagrímastaður. Kirkjan hefur orðið mörgum hlið himins og margir segjast þar hafa náð að tengja við uppsprettur lífsins, sjálft sig og verðandi tímans. Alla daga sækir fólk í þetta himinhlið til að tengja við djúpið. Í kirkjunni er gott að íhuga og gott samband. Það sem mikilvægast er að kirkjan er hús Guðs. Hún er ekki utan þjónustusvæðis. Hún er falleg því hún þjónar því hlutverki að vera fundarstaður Guðs og manna.

Til hamingju Íslendingar með fjörutíu ára afmæli Hallgrímskirkju 26. október, 2026.

Höfundur er prestur.




Skoðun

Sjá meira


×