Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar 25. október 2026 15:45 Kæri Elliði, Þú skrifar að góðvild sé ekki stefna. Ég er sammála. En orð eru það ekki heldur, og allra síst orð bæjarstjóra sem deilir mynd af hópi karlmanna af erlendum uppruna undir háðskri yfirskrift um franska nemendur (mynd sem reyndist hvorki frá Frakklandi né af nemendum) og fullyrðir svo að óheftur straumur innflytjenda, „sérstaklega múslima“, valdi skaða. Þú hefur leiðrétt orð þín um trúna. Gott. Takk. En sem kjörinn fulltrúi tekur þú orð þín ekki til baka af skólalóðinni, kaffistofunni eða úr kommentakerfunum þar sem þau lentu. Ábyrgð á orðum hefst áður en þau eru sögð, ekki eftir að þau hafa verið leiðrétt. Þú kallar eftir gögnum. Frábært. Þau eru til og þú þarft ekki að sækja þau til Danmerkur. Þau lýsa þversögn sem við sem störfum í málaflokknum höfum bent á árum saman: •Atvinnuþátttaka innflytjenda á Íslandi er sú mesta í OECD, 89%, OG jafnvel satt að segja meiri en innfæddra. •Samt telja aðeins 18% innflytjenda sig hafa góð tök á íslensku. Það er lægsta hlutfall í OECD, þar sem meðaltalið er 60%. •Aðeins um 10% innflytjenda taka þátt í fullorðinsfræðslu, (þar sem íslenskan er kennt) á móti 20% á Norðurlöndunum. •Opinber framlög til íslenskukennslu á hvern innflytjanda lækkuðu úr 7.417 kr. árið 2007 í 3.257 kr. árið 2023. Á sama tíma fjölgaði innflytjendum hlutfallslega meira hér en í nokkru öðru OECD-ríki. •Börn fædd á Íslandi af erlendum foreldrum eru 52 stigum á eftir jafnöldrum sínum í lesskilningi í PISA. Það jafngildir nærri tveimur árum af skólagöngu. •Í MIPEX-vísitölunni fær Ísland 56 stig af 100, stefna sem fer aðeins „hálfa leið“ að jöfnum tækifærum. Menntun er veikasti flokkurinn með 45 stig, og fyrir aðgerðir til að fjölga kennurum af erlendum uppruna fær Ísland núll. Þetta er þversögnin í hnotskurn: við krefjumst íslensku sem skilyrðis fyrir þátttöku en styðjum hana ekki sem leið að þátttöku. Fólk kemur hingað, vinnur meira en flestir og greiðir skatta. Við spörum okkur að kenna því málið og undrumst svo að börnin standi höllum fæti. Það er ekki vandi „ákveðinna svæða“. Það er vandi stefnuleysis, þú hefur ýmis vald sjálfur til að móta stenfu á þessa sviði er það ekki? Og fyrst þú nefnir uppruna: fjórir af hverjum fimm innflytjendum hér koma frá EES-löndum. Leikskólarnir sýna þetta vel. Yfir 21% starfsfólks þeirra er af erlendum uppruna, og án þess fólks væri mörgum leikskólum ekki haldið opnum. Samkvæmt OECD minnkar lestrarmunurinn niður í fjögur stig meðal barna sem byrja snemma í leikskóla, sem er minnsti munur í OECD. Þarna hefur þú, sem bæjarstjóri, raunverulegt vald. Þú skrifar sjálfur að tungumálakennsla eigi að vera raunverulegt forgangsverkefni. Velkominn í hópinn. Því spyr ég þig, Elliði: •Hefur þú tekið eitthvert þeirra skrefa sem lögð eru til í móttökuáætlun fyrir íbúa af erlendum uppruna? •Styður þú við íslenskunám erlendra íbúa Ölfuss í nærsamfélaginu? •Starfar fjölmenningarfulltrúi á þinni bæjarskrifstofu? •Hefur þú beitt þér fyrir því að Ölfus setji sér inngildingarstefnu og málstefnu eins og lög nr. 61/2011 gera ráð fyrir? Ég spyr af reynslu. Sem forstöðukona Fjölmenningarseturs stýrði ég gerð þessarar móttökuáætlunar í höfn rétt áður en stofnun var lagt niður. Hún var send öllum sveitarfélögum landsins og öllum var boðið á opinn kynningarfund með okkur. Bæjarstjórar mættu á fundinn, aðrir sendu okkur tölvupóst og sum sveitarfélög leituðu til okkar um stuðning við móttöku nýrra íbúa eða við gerð inngildingarstefnu. Okkur barst meira að segja bréf frá Guðna Th. Jóhannessyni, þáverandi forseta Íslands, þar sem hann þakkaði fyrir starf okkar og lýsti þeirri von að sveitarfélög um allt land nýttu tækifærin sem fælust í áætluninni og hjá Fjölmenningarsetri. Frá þér man ég ekki eftir að hafa heyrt, Elliði. Synd, þetta var gott tækifæri. Síðan hefur Fjölmenningarsetur verið lagt niður og fært inn í litla deild hjá Vinnumálastofnun, sem heldur áfram að minnka á sama tíma og innflytjendum fjölgar. Ef þú leitar að stefnu sem „skilar ekki árangri“, þá er hún þarna. Hún er ekki innflytjendunum að kenna. En tækifærin eru ekki útrunnin. Eftir að setrið var lagt niður hafa sveitarfélög áfram leitað til mín. Ég hef unnið með þeim að málstefnu í samræmi við lög og að inngildingarstefnu. Sú stefna snýst ekki bara um að innflytjendur aðlagist, heldur um að samfélagið taki raunverulega vel á móti þeim. Þú skrifar að aðlögun sé sameiginleg ábyrgð. Ég tek þig á orðinu. Ef þú vilt í alvöru koma í veg fyrir að tölurnar sem þú óttast verði að veruleika í Ölfusi, þá er næsta skref ekki önnur Facebook-færsla. Það er að snúa við blaðinu og taka réttu skrefin sjálfur. Dyrnar mínar standa opnar. Góðvild er ekki stefna. Fordómar eru það ekki heldur. Höfundur er stolt innflytjandi, fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs og fyrrverandi Alþingiskona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nichole Leigh Mosty Mest lesið Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun