Skoðun

Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrir­sagnir

Ragnar Sigurðsson skrifar

Eydís Ásbjörnsdóttir heldur því fram í grein sinni á Vísi að hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi sé staðreynd. En hærri fjárheimild á blaði jafngildir ekki auknum stuðningi við íbúana. Það sést svart á hvítu á meðfylgjandi kvittunum.

Eins og þingmaðurinn bendir réttilega á kostaði Loftbrúin um 740 milljónir króna í fyrra, þótt fjárheimildin væri 600 milljónir. Framlagið var vanáætlað og bæta þurfti við fjármagni, eins og gert hafði verið undanfarin ár. Að hækka vanáætlaða fjárheimild og skerða afsláttarfyrirkomulagið samhliða gerir breytinguna ekki að kjarabót fyrir landsbyggðarfólk.

Skoðum raunveruleg dæmi um flug milli Egilsstaða og Reykjavíkur.

Einn flugleggur í desember 2023

Í desember 2023 var afsláttur Loftbrúar af einum fluglegg 10.134 krónur. Með 9.000 króna niðurgreiðslu hefði farþeginn þurft að greiða 1.134 krónum meira fyrir nákvæmlega sama miða.

Tveir flugleggir í desember 2024

Í desember 2024 var afslátturinn af ferð fram og til baka 19.934 krónur. Með nýja fyrirkomulaginu hefði hann verið 18.000 krónur. Farþeginn hefði þurft að mæta 1.934 króna mismun.

Tveir flugleggir í febrúar og mars 2025

Í ferðinni frá febrúar–mars 2025 nam afslátturinn 33.454 krónum. Með 9.000 krónum á hvorn fluglegg hefði hann lækkað í 18.000 krónur. Það er 15.454 króna skerðing, eða rúmlega 46%. Sá kostnaður hefði lent á farþeganum.

Tveir flugleggir í apríl og maí 2023

Í ferðinni frá apríl–maí 2023 var afslátturinn 21.774 krónur. Með nýja fyrirkomulaginu hefði hann verið 3.774 krónum lægri.

Einn flugleggur árið 2022

Síðasta dæmið er einn flugleggur frá árinu 2022. Þar var afsláttur Loftbrúar 19.336 krónur. Níu þúsund króna niðurgreiðsla hefði þýtt 10.336 króna skerðingu, rúmlega helmingi minni afslátt.

Þetta eru eldri miðar á þáverandi verðlagi. Níu þúsund krónur hefðu ekki einu sinni dugað til að halda stuðningnum óbreyttum þá. Í öllum þessum dæmum hefði farþeginn þurft að greiða meira.

Hér þarf að greina á milli fjárheimilda og afsláttarins sjálfs. Fjárheimildir Loftbrúarinnar hafa ekki fylgt verðlagi. En 40% afslátturinn hefur fylgt miðaverðinu: þegar miðinn hækkar, hækkar niðurgreiðslan. Með fastri krónutölu hverfur sú tenging og farþeginn ber alla frekari verðhækkun.

Í bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar frá 26. október segir:

„Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega boðaðri skerðingu á Loftbrúnni. Leita þarf leiða til að auka stuðninginn og tryggja að hann haldi verðgildi sínu.“

Bæjarráð bendir jafnframt á nauðsyn flugsamgangna til að sækja þjónustu og hefur þungar áhyggjur af áhrifum ferðakostnaðar á þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Það kemur mér á óvart að þingmaðurinn skuli lýsa gagnrýni kjörinna fulltrúa sem pólitísku leikriti, sérstaklega eftir að hafa séð viðbrögð íbúanna hér. Reiðin og áhyggjurnar eru raunverulegar. Fólk sér fram á að þurfa að greiða meira fyrir að sækja nauðsynlega þjónustu og halda tengslum við sína nánustu. Þau viðbrögð eiga skilið að á þau sé hlustað.

Ég virði viljann til ráðdeildar. Það er vel hægt að skera niður hjá hinu opinbera. En hér er kostnaði velt yfir á íbúana. Austfirðingar eiga að greiða meira fyrir aksturinn og fá minni afslátt af dýrari flugmiðum, á meðan svigrúm er fundið til aukinna útgjalda annars staðar. Það er pólitísk forgangsröðun sem við sættum okkur ekki við.

Kvittanirnar liggja fyrir. Að kalla breytinguna eflingu breytir engu um þá staðreynd að í þessum ferðum hefði stuðningurinn lækkað og reikningur farþeganna hækkað.

Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi




Skoðun

Sjá meira


×