Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Kjartan Kjartansson skrifar 22. apríl 2026 10:25 Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti ásakanir á hendur SPLC um fjársvik í gær. AP/Jacquelyn Martin Bandaríska dómsmálráðuneytið sakar gamalgróin mannréttindasamtök í suðurríkjunum um fjársvik og peningaþvætti í sakamálarannsókn á hendur þeim. Ásakanirnar tengjast því að samtökin greiddu uppljóstrurum innan öfgasamtaka eins og Kú Klúx Klan.
Southern Povery Law Center, mannréttindasamtök með höfuðstöðvar í Alabama, eru sökuð um að hafa féflett bakhjarla sína með því að nota framlög þeirra til þess að greiða öfgamönnum fyrir upplýsingar. Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra, sagði að samtökin hefðu með þessum hætti búið til öfgastarfsemi sem þau þóttust standa gegn. Saksóknarar á hans vegum halda því fram að öfgamennirnir hafi notað fé frá SPLC til þess að fremja glæpi. AP-fréttastofan segir að engin dæmi um það séu tilgreind í greinargerðum saksóknaranna. Fulltrúar samtakanna mótmæla ásökunum hástöfum. Þau hafi nýtt sér uppljóstrarar til þess að njósna um öfgasamtök og fylgjast með ofbeldisógn sem af þeim stafaði. Samtökin hafi oft deilt upplýsingum sem þannig fengust með lögreglu. Þeir fullyrða jafnframt að þessar njósnir hafi bjargað mannslífum. Hafi blekkt banka og bakhjarla Uppljóstranaverkefni SPLC er sagt hafa hafist á níunda áratug síðustu aldar en það hefur síðan verið lagt af. Samtökin segja að verkefnið hafi hafist á hátindi borgararéttarhreyfingar blökkufólks þegar kirkju blökkumanna voru sprengdar upp og ríkisvaldið gekk fram með ofbeldi gegn mótmælendm. Samtökin eru sögð hafa stofnað bankareikninga í nafni skúffufyrirtækja sem voru notaðir til þess að greiða uppljóstrurum innan samtaka hvítra þjóðernissinna og annarra haturshópa á laun. Minnivarði um fólk sem féll í réttindabaráttu blökkumanna í höfuðstöðvum SPLC í Alabama. Samtökin voru stofnuð til að veita fátækum blökkumönnum stuðning á tíma þar sem mörg ríki reyndu að halda í aðskilnað kynþátta sem átti að haf verið útrýmt með lögum.AP/Dave Martin Dómsmálaráðuneytið heldur því fram að SPLC hafi með þessum hætti blekkt fjármálastofnanir og eigin fjárhagslegu bakhjarla og framið fjársvik. SPLC segir að uppljóstraraverkefninu hafi verið haldið leyndu til þess að tryggja öryggi uppljóstraranna. Á meðal þeirra sem ráðuneytið segir að SPLC hafi greitt háar fjárhæðir er liðsmaður nýnasistasamtaka sem tók þátt í að skipuleggja samkomu hvítra þjóðernissinna í Charlottesville í Virgínu árið 2017. Sú samkoma endaði í óeirðum á milli öfgamanna og mótmælenda þeirra. Kona lést þegar einn öfgamannanna ók inn í hóp fólks mótmælenda. Repúblikanar telja sig eiga harma að hefna SPLC voru stofnuð í djúpa suðri Bandaríkjanna árið 1971. Samtökin eru með höfuðstöðvar í Montgomery í Alabama þar sem Martin Luther King yngri vakti fyrst landsathygli fyrir baráttu sína fyrir réttindum blökkumanna sem sætti kerfislægri kúgun, sérstaklega í ríkjum gamla Suðurríkjasambandsins. Samtökin hafa meðal annars rekið dómsmál gegn öfgasamtökum hvítra þjóðernissinna. Repúblikanar hafa lengi litið samtökin hornauga og telja þau vinstrisinnuð, að sögn AP-fréttastofunnar. Þá hafa þeir sakað þau um að beita sér gegn hægrimönnum vegna skoðana þeirra. Kash Patel, forstjóri FBI, á blaðamannafundinum þar sem áskanirnar á hendur SPLC voru kynntar í gær. Hann hefur boðað margmilljarða málaferli gegn fjölmiðli sem sagði frá því hvernig drykkjuskapur hans hefði áhrif á störf hans hjá alríkislögreglunni.AP/Jacquelyn Martin Undir stjórn Donalds Trump forseta hefur bandaríska alríkisstjórnin þjarmað að ætluðum andstæðingum hans og Repúblikanaflokksins. SPLC hafa meðal annars gagnrýnt orðræðu Trump, stefnu hans í kosningaréttarmálum og fleiru. Ekki síst fór fyrir brjóstið á repúblikönum að SPLC nefndu Turning Point USA, samtök sem Charlie Kirk stofnaði, í skýrslu um hatur og öfgahyggju árið 2024. Lýstu þau samtökum Kirk sem dæmigerðum öfgahægrisamtökum. Kirk var ráðinn af dögum í fyrra. Alríkislögreglan FBI hætti í kjölfarið samstarfi við SPLC en samtökin höfðu lengi veitt henni aðgang að gögnum sínum um hatursglæpi og öfgastarfsemi í Bandaríkjunum. Forstjóri alríkislögreglunnar sakaði samtökin um að vera „ófrægingarvél“
Bandaríkin Mannréttindi Donald Trump Erlend sakamál Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Sjá meira