Tvennt getur verið rétt á sama tíma Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 1. apríl 2026 11:30 Það er hægt að aðhyllast aukið alþjóðasamstarf og samstöðu með líkt þenkjandi ríkjum, meðal annars með því að vilja þétta böndin við Evrópu og sjá hvað okkur sem þjóð býðst ef við eigum sæti við borðið – en um leið vilja verja fullveldi okkar og sjálfstæði, íslenska menningu og tungu. Það er engin mótsögn í því vera sjálfstæð þjóð og vera virk í alþjóðasamstarfi. Þvert á móti. Fyrir smáþjóð eins og Ísland er virk þátttaka í alþjóðasamfélaginu einmitt forsenda þess að við getum varið okkar hagsmuni, gildi og lífskjör. Það er hægt að gagnrýna stjórnvöld í ríkjum sem traðka á mannréttindum, drepa eigin borgara og valda ófriði og óöryggi í eigin heimshluta, og heiminum öllum – en um leið ítreka að aðrar þjóðir sem ráðast inn í þau virði alþjóðalög og reglur alþjóðakerfisins. Það er ekki mótsögn að fordæma ofríki og hryðjuverk en á sama tíma krefjast þess að fullveldi ríkja og friðhelgi landamæra sé virt. Það er hægt að standa með alþjóðalögum og alþjóðlegum dómstólum og láta rödd okkar heyrast – en um leið hafna hatri og alhæfingum um heilar þjóðir eða trúarhópa. Réttarríkið snýst um ábyrgð einstaklinga og stjórnvalda, ekki um að stimpla heilu samfélögin. Það er hægt að fagna fjölmenningu og fjölbreytileika í samfélaginu, vilja efla okkar atvinnulíf og samfélag með hugviti og starfskröftum annars staðar að úr heiminum – en um leið vilja hafa reglur og ramma utan um það hverjir hingað koma eða setjast að. Mannúð og festu í útlendingamálum þarf ekki að stilla upp sem andstæðum. Það er hægt að standa þétt með Úkraínu í baráttu hennar fyrir sjálfstæði og frelsi – en um leið vera friðarsinnar sem þrá ekkert heitar en vopnahlé og réttlátan, varanlegan frið. Stuðningur við varnir er ekki andstæða friðar. Hann er forsenda hans. Það er hægt að vera stolt af aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarfi við Bandaríkin – en um leið vilja efla samstarf okkar við Evrópuríki um varnir enn frekar. Öryggi Íslands byggir ekki á einni stoð heldur mörgum. Það er hægt að standa vörð um mannréttindi kvenna og hinsegin fólks – en um leið hafna skautun og upphrópunum sem gera jafnrétti að pólitísku bitbeini í stað sameiginlegs verkefnis. Jafnrétti er forsenda réttlátra samfélaga. Það er hægt að vilja hraða orkuskiptum, virkja og byggja upp meiri græna orku – en um leið krefjast þess að það sé gert af ábyrgð, með náttúruvernd að leiðarljósi og sátt í samfélaginu. Framfarir og vernd eru ekki andstæður heldur þurfa að haldast í hendur. Það er hægt að krefjast festu í ríkisfjármálum, aga og ábyrgðar – en um leið standa vörð um öflugt velferðarkerfi. Það talar ekki í kross að taka til í rekstri ríkisins og því að fjárfesta í heilbrigðisþjónustu, menntun og innviðum. Þvert á móti er ábyrg hagstjórn forsenda þess að við getum fjárfest í velferð og innviðum til lengri tíma. Það er hægt að vera stolt af íslenskum sjávarútvegi – en um leið vilja tryggja sanngirni, gagnsæi og sjálfbærni til framtíðar. Ábyrg umgjörð greinarinnar er einmitt það sem byggir upp traust og stolt til framtíðar. Það er hægt að vera ósammála – án þess að gera andstæðinginn að óvini. --- Við lifum á tímum þar sem ýmsir reyna að telja okkur trú um að við verðum að velja annan hvorn pólinn. Að heimurinn sé svartur eða hvítur. Með okkur eða á móti okkur. En raunveruleikinn er flóknari. Lýðræði snýst einmitt um það að geta horft á heildarmyndina og tekið upplýstar ákvarðanir. Að geta viðurkennt margbreytilegan veruleika. Að þola að heimurinn sé ekki einfaldur. Við Íslendingar eigum allt okkar undir því að alþjóðalög séu virt, að smáríki njóti sömu réttinda og stórveldin, að friðhelgi landamæra sé ekki orðin merkingarlaus. Við eigum allt okkar undir því að standa með frelsi, friði og mannréttindum. Ekki bara þegar það er þægilegt, heldur líka þegar það reynir á. Frelsið krefst ábyrgðar. Og samstaða krefst þess að við séum tilbúin að hlusta hvert á annað. Jafnvel þegar við erum ósammála. Tvennt getur verið rétt á sama tíma. Og kannski er það einmitt þroskamerki samfélags að geta viðurkennt það, í stað þess að hrópa hæst hvert úr sinni áttinni. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Viðreisn NATO Evrópusambandið Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar