Stórt skref í einföldun leyfisveitinga fyrir orkuverkefni: „Við erum rétt að byrja“ Birgir Olgeirsson skrifar 27. mars 2026 15:14 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Anton Brink Alþingi hefur samþykkt víðtækar breytingar á regluverki í umhverfis- og orkumálum sem eiga að hraða leyfisveitingum, fækka afgreiðslustöðum og færa stærri hluta ferlisins inn á eitt borð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Kjarni breytinganna er sá að umsækjendur eigi síður að fara milli margra stjórnvalda og að afgreiðsla orku- og umhverfismála verði samræmdari og skilvirkari.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir á Facebook að breytingarnar meðal annars felist í því að létta á umhverfismatsskilyrðum vegna hagnýtingar jarðhita til hitaveitu, hætta að krefjast starfsleyfis vegna hverrar borframkvæmdar, fella brott umhverfismat vegna kolefnisföngunar frá jarðvarmavirkjunum og stytta ferla með færri afgreiðslustöðum í stjórnsýslunni. Ein stærsta breytingin er að Umhverfis- og orkustofnun fær heimild til að sameina afgreiðslu margra leyfa í eina leyfisveitingu. Í reynd þýðir það að framkvæmdaraðilar eiga í fleiri tilvikum að geta fengið afgreiðslu á einum stað í stað þess að fara milli margra stofnana, þó að faglegt mat og bindandi umsagnir annarra stjórnvalda haldist eftir sem áður. Lögin eiga jafnframt að greiða fyrir nýjum orkukostum. Nú verður unnt að veita rannsóknarleyfi vegna vindorkunýtingar á hafi og sjávarfallavirkjana utan netlaga og verkefni í orkunýtingarflokki rammaáætlunar eiga að fá forgangsmeðferð. Þá eru heimildir ráðherra einnig rýmkaðar til að mæla fyrir um skráningarskyldu í stað starfsleyfisskyldu vegna tiltekinnar atvinnustarfsemi, sem á að draga úr stjórnsýslulegu flækjustigi fyrir fyrirtæki og framkvæmdaaðila. „Við erum rétt að byrja,“ skrifaði ráðherrann, sem stillir lagabreytingunum þannig upp sem upphafi frekari einföldunar á regluverki í orku- og umhverfismálum.
Orkumál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Umhverfismál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira