Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Freyja Þórisdóttir skrifar 27. september 2026 17:29 Lögreglan í miðbæ Reykjavíkur hafði í nægu að snúast undir morgun. Vísir/Kolbeinn Tumi Lögreglu á stöð eitt barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun eða í dag. Þegar laganna verði bar að garði var gerandinn farinn af vettvangi en þó telur lögreglan sig vita um hvern ræðir og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlega áverka var að ræða.
Er þetta meðal þeirra atriða sem voru skráð í kerfi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 05:00 í morgun og þar til klukkan 17:00 en alls voru þrjátíu og átta mál skráð. Þá voru í það minnsta fjórir vistaðir í fangageymslu á tímabilinu. Á varðsvæði stöðvar eitt, sem nær yfir Vesturbæ, Miðborg, Hlíðarnar, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnes, var maður í annarlegu ástandi handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt og í kjölfarið vistaður í fangageymslu. Þá var í hverfi 105 tilkynnt um umferðarslys þar sem drengur féll af reiðhjóli og slasaðist en hann var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til frekari skoðunar. Tveir ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur og keyrði annar þeirra um á 111 kílómetrum á klukkustund en hinn á 113 og var í báðum tilvikum um að ræða götur þar sem leyfilegur hámarkshraði var 80 kílómetrar á klukkustund. Einnig voru nokkrir ökumenn stöðvaðir í akstri vegna gruns um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna en voru þau mál afgreidd að lokinni blóðsýnatöku. Í hverfi 113, sem er á varðsvæði lögreglustöðvar fjögur, var tilkynnt um líkamsárás. Einn maður í annarlegu ástandi var handtekinn á vettvangi en árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku til athugunar og aðhlynningar.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Sjá meira